Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 446
446. fundur
Yfirlit
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 12. janúar 2009 kl. 16.00
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
1. Fundargerðir
· Skólanefnd Hornafjarðar, 110. fundur, 7. janúar 2009.
Árni spurði undir þessum lið um teikningar af parhúsum sem til umræðu hafa verið. Í ljósi umræðu í skólanefnd var rætt um íbúðir á Silfurbraut 2 – 4 sem taldar voru af starfsmönnum á ýmsan hátt vistlegar og góðar.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 84. fundur. 8. janúar 2009
Björn Ingi sagðist vera með efasemdir um staðsetningu kirkjugarðs við Réttarkletta. Varð um þá hugmynd að staðsetningu veruleg umræða á fundinum.
Fundargerð samþykkt.
2. Fjárhagsáætlun 2009
Ásta fór yfir úrsend gögn og þau rædd. Samþykkt að fjárhagsáætlun 2009 verði vísað til áframhaldandi umræðu á fundi bæjarráðs þann 19. janúar. Stefnt að því að næsti fundur bæjarstjórnar verði 28. janúar nk.
3. 3ja ára áætlun
Samþykkt að vísa 3ja ára áætlun til fyrstu umræðu í bæjarstjórn.
4. Ráðstöfun á framlagi til sveitarfélagsins 2008 vegna tímabundins niðurskurðar í aflamarki þorsks
Lagt til að ráðstöfun á 11.960.224 krónur framlagi skiptist með eftirfarandi hætti: Atvinnu- og rannsóknasjóður fái 6 m.kr. og afgangurinn alls 5.960.224 kr. verði óráðstafað um sinn en hluti af þessum fjármunum fari m.a. í að koma á fót rannsóknum á nýtingu jarðefna, líftækni og orkuiðnaði og í framhaldi starfsemi í þessum greinum. Samþykkt að taka þessar tillögur aftur fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
5. Útibú Lyfju á Höfn
Lögð fram drög að erindi til Lyfjastofnunar vegna umsóknar Lyfju um leyfi til áframhaldandi reksturs lyfjaútibús á Höfn sem gerir ráð fyrir óbreyttri starfsemi útibúsins. Bæjarráð mælir með umsókn Lyfju og felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir.
6. Byggðaáætlun 2010-2013
Lögð fram drög að umsögn um byggðaáætlun. Bæjarráð er sammála um að byggðaáætlun er eitt mikilvægasta verkefni stjórnvalda. Lykilorð nýrrar byggðaáætlunar á að vera aukin lífsgæði, aukin verðmæti og nýir íbúar. Samstarf og samvinna opinberra aðla, fyrirtækja og einstaklinga á að leiða til nýsköpunar, framþróunar og betra samfélags. Markmiðið er að auka fjölbreytni en jafnframt að styrkja það sem fyrir er þannig að svæðið blómstri. Landsbyggðin á ekki að vera neitt minna en eitt besta landsvæði heimsins til að lifa, vinna og mennta sig á. Þetta verður ekki gert nema með því að byggja upp stuðning í nærumhverfinu. Fjarlægar stofnanir geta síður orðið hluti af þeim drifkrafti sem til þarf að snúa vörn í sókn. Þess vegna er uppbygging þekkingarsetra lykilþáttur í uppbyggingu á landsbyggðinni. Bæjarráð Hornafjarðar leggur áherslu á að ekki á að skilgreina sérstök kjarnasvæði heldur að styðja við frumkvæði og vilja íbúa á hverjum stað.
Bæjarstjóra falið að senda umsögn til iðnaðarráðherra og byggðastofnunar í þessum anda.
7. Nýting eða niðurrif á gömlu sundlauginni
Bæjarráð er því sammála að ekki séu ástæður til að vernda þetta mannvirki og því verði stefnt að niðurrifi sundlaugarinnar þegar hún hefur lokið núverandi hlutverki sínu.
8. Breytingar á Hafnarbraut 40
Haukur kynnti tillögur að breytingum og endurbótum á húsinu og kostnaðaráætlun þar að lútandi.
9. Innsend erindi
· Jón Friðrik Sigurðsson, dags. 6. janúar 2009, verkefni á sviði malbikunar
Starfsmönnum falið að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.
· Heilbrigðisráðuneytið, dags. 7. janúar 2009, áform um sameiningu heilbrigðisstofnana send til umsagnar.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við heilbrigðisráðherra, aðstoðarmann félagsmálaráðherra, forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og embættismenn í heilbrigðisráðuneytinu um málið. Bæjarráð Hornafjarðar fagnar því að áfram er gert ráð fyrir þjónustusamningi við Sveitarfélagið Hornafjörð og leggur áherslu á að ráðuneyti og viðkomandi stofnanir á vegum ríkisins einhendi sér að ljúka samningagerðinni sem fyrst Sjálfstjórn sveitarfélaga á þessum málaflokki er mikilvæg og rökrétt næsta skref er að flytja verkefnin frá ríki til sveitarfélaga og tekjustofna með. Bæjarráð leggur áherslu á að ekki sé verði skorið meira niður á HSSA en á öðrum heilbrigðisstofnunum á landinu og óskar eftir viðræðum við heilbrigðisráðuneytið þar sem farið verður ofan í forsendur niðurskurðar á fjárlögum 2009. Bæjarráð Hornafjarðar telur einsýnt að vegna landfræðilegrar sérstöðu Hornafjarðar verður ekki um mikla samrekstrarmöguleika að ræða milli HSSA og annarra heilbrigðisstofnana.
· Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, dags. 5. janúar 2009, afgreiðsla áætlunar um úthlutun framlaga til sveitarfélaga vegna nýbúafræðslu.
· Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, dags. 5. janúar 2009, áætluð úthlutun framlags vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum fjárhagsárið 2009.
Til kynningar.
· Félags- og tryggingamálaráðuneyti, dags.5. janúar, húsaleigubætur – uppreiknuð eignamörk.
Til kynningar.
· Félags- og tryggingamálaráðuneyti, dags.5. janúar, uppreiknuð tekju- og eignamörk vegna félagslegra leiguíbúða.
Til kynningar.
· Samgönguráðuneytið, dags. 7. janúar, úrskurður í samgönguráðuneyti er varðar afslátt tiltekins sveitarfélags á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega.
Fjármálastjóra falið að svara erindinu.
· Félags- og tryggingamálaráðuneyti, 5. janúar 2009, boð á jafnréttisþing.
Vísað til félagsmálastjóra.
10. Önnur mál
Birgir Árnason kom inn á fundinn undir þessum lið. Rætt um framkvæmdir og útfærslur á breytingum á húsnæði grunnskólans.


