Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 443
443. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 8. desember 2008 kl. 16:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, og Haukur Ingi Einarsson.
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 108. fundur, 2. desember 2008.
Björn Ingi spurði um björgunarlaun, sbr. 1. lið á dagskrá hafnarstjórnar. Hjalti fór yfir málið og gerði grein fyrir kröfugerð sveitarfélagsins um björgunarlaun.
Fundargerð samþykkt.
· Starfshópur um skólamál, 11.fundur, 2. desember 2008.
Stefán greindi frá heimsókn nemenda á fund starfshópsins sem hann sagði hafa verið mjög ánægjulega. Nemendur hafi verið mjög vel undirbúnir og yfirvegaðir á fundinum.
Undir þessari fundargerð greindi Hjalti frá vinnu sinni og samtölum við skólastjórnendur grunnskólans um stjórnunarþátt skólans.
Fundargerð samþykkt
· Stýrihópur vegna fjölskyldustefnu, 13. fundur 26. nóvember 2008 og 14. fundur 3. desember 2008.
Fundargerðir samþykktar.
2. Gagnaver
Björn Ingi greindi frá því að hann eigi hlutdeild í Glacier Guard Datacenter. Töldu aðrir bæjarráðsfulltrúar ekki ástæðu til að hann viki af fundi meðan verið væri að ræða eingöngu efnislega um málefnið. Björn Ingi taldi að raforkukerfi landsins ætti að geta afhent gagnaverinu rafmagn, m.v. gögn frá Landsneti sem til umræðu voru á fundinum. Samþykkt að fá fulltrúa frá Landsneti á fund bæjarráðs. Bæjarstjóra falið að undirrita fram lagðan samning með áorðnum breytingum við Glacier Guard Datacenter. (Björn Ingi vék af fundi meðan ákvörðun um samning var tekin.)
3. Útflutningur á vatni
Hjalti fór yfir stöðu mála og greindi frá drögum að samningi sem aðilar hafa sent sín á milli. Fundur með samstarfsaðilum verður nk. föstudag.
4. Samningur um stafræna notkun myndverka í skólum
Samþykkt að skrifa ekki undir meðfylgjandi drög að samningi. Vísað til starfsmanna að fylgjast með framvindu málsins og vinnu hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna þess.
5. Endurvinnsla lífræns úrgangs
Haukur greindi frá samskiptum við starfsmenn Skinneyjar – Þinganess og bændur vegna málsins. Reynir hvatti til þess að sem flestir geti komið að þessu máli og nýtt sér þennan lífræna úrgang. Haukur sagði að með því að nýta þennan lífræna úrgang muni draga úr urðunarkostnaði. Bæjarráð hvetur til þess að vinnu að þessu máli verði haldið áfram.
6. Endurskoðun samnings um förgun brotamálma
Haukur fór yfir málið og greindi frá hugmyndum um að endurskipuleggja fyrirkomulag söfnunar brotamálma. Samþykkt að segja upp samningi um brotamálma, dags. 17. október 1997. Stefnt að því að efna til útboðs á næsta ári um nýjan samning á grundvelli innkaupareglna sveitarfélagsins.
7. Leigufélag
Hjalti og Haukur fóru yfir málið og ræddu tillögur um að byggja leiguíbúðir. Björn Ingi sagðist vera fremur andvígur því að sveitarfélagið auki við íbúðaeign sína en skilji það hins vegar vel að menn vilji koma af stað byggingu nýs íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu. Árni og Reynir sögðust á margan hátt sammála Birni en lögðu um leið áherslu á að mikilvægt sé að vinna áfram að málinu. Bæjarráð samþykkir að fela starfsmönnum að vinna áfram að undirbúningi leiguíbúða og koma með fullmótaðar tillögur á fund.
8. Ósk um breytingu á lóðarmörkum
Bæjarráð samþykkir að ósk um breytingu á lóðamörkum fari fyrir byggingar- og skipulagsnefnd.
9. Innsend bréf og erindi
· Umhverfisstofnun, afrit bréfs dags. 28. nóvember 2008, þrýstiprófun á afgreiðslulögn Olíudreifingar ehf.
Til kynningar.
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 1. desember 2008, úttekt á listfræðslu á Íslandi.
Vísað til skólanefndar.
10. Önnur mál
- Fjárhagsáætlun 2009 Ásta gerði grein fyrir breytingum sem orðið hafa á áætluninni frá vinnufundi bæjarstjórnar þann 6. desember sl. Bæjarráð samþykkir forsendur fjárhagsáætlunar eins og þær liggja fyrir 8. desember 2008.
- Reynir greindi frá stöðunni í starfshópi um húsnæði sveitarfélagsins. Sagði hann lokaskýrslu frá hópnum að vænta í þessari viku.
- Grunnskóli Hornafjarðar, unglingastig, biður um leyfi til að fella eitt grenitré í Hrossabithaganum. Er það gert í tengslum við þemaviku þar sem m.a. verður fjallað um sögu jólatrésins. Sagt að valið á grenitrénu verði í nánu samráði við Hauk Inga Einarsson og Rannveigu Einarsdóttur. Bæjarráð samþykkir að vísa erindi skólans til starfsmanna.
- Stefán og Hjalti fóru yfir samninga við verktaka í skólaakstri vegna breytinga á akstrinum frá og með næsta skólaári.
Fundi slitið kl. 18:50


