Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 221
221. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn. 27. ágúst 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Skólanefnd Hornafjarðar 52. fundur fimmtudaginn 20. ágúst 2003.
Krístín spurði um mötuneytismál fyrir nemendur í Hafnar- og Heppuskóla. Stefán greindi frá viðræðum við eigendur veitingahúsa á Höfn og stöðu málsins í heild. Vegna spurninga um lengda viðveru í Hafnarskóla kom fram að ekki er veittur systkinaafsláttur, sbr. gjaldskrá sem samþykkt var sl. vor.
Fundargerð samþykkt
Starfshópur um stofnun Jöklaseturs á Hornafirði, 9. fundur þriðjudaginn 15.ágúst 2003.
Fundargerð samþykkt
Jöklasetur á Hornafirði
Skil starfshóps um stofnun Jöklaseturs.
Halldóra Bergljót fór yfir skýrslu starfshópsins og það helsta sem kom út úr vinnu hans. Elín spurði um möguleika á samnýtingu starfsmanna við Jöklasetur og þjóðgarð. Hugmyndir í þá átt hafa komið fram hjá þeim sem vinna að málefnum Jöklaseturs og væntanlegs Vatnajökulsþjóðgarðs. Reynir og Kristín lýstu yfir ánægju með vinnu og tillögur starfshópsins.
Samþykkt að vísa málinu til bæjarstjórnar.
Tölvumál Hafnar- og Heppuskóla.
Stefán greindi frá svörum skólastjórnenda í Hafnar- og Heppuskóla við spurningum sem fram komu á síðasta fundi bæjarráðs.
Samþykkt að teknar verði á rekstrarleigu 18 borðtölvur og ein fartölva fyrir Heppuskóla. Samtals verði í skólanum 29 nemenda- og kennaratölvur (29 útstöðvar samtals). Fyrir Hafnarskóla verði teknar á rekstarleigu 20 borðtölvur og 1 fartölva. Samtals verði í skólanum 25 kennara- og nemendatölvur (25 útstöðvar samtals). Fjármögnun vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun 2003.
Innsend erindi og til kynningar
Bréf Félagsmálaráðuneytis 19. ágúst 2003 um útg. tækifærisvínveitingaleyfa.
Eignarhaldsfélagið Brunabót , bréf dags. 19. ágúst 2003 um ágóðahluta sveitarfélaga. Agóðahluti sveitarfélagsins er 2.412.000
Afrit af bréfi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar til Sparisjóðs Hornafjarðar og nágrennis, dags. 20. ágúst 2003 um listskreytingar í Nýheimum.
Önnur mál
Kynnt vinna við garð við deild heilabilaðra á HSSA. Einnig greint frá vinnu við kostnaðaráætlun og fjármögnun úr Gjafa- og minningarsjóði.
Stefán greindi frá tölvupósti sem hann sendi kaupfélagsstjóra KASK þann 26. ágúst vegna leigu á hluta Vöruhúss fyrir handmenntastofur. (Elín vék af fundi undir þessum lið.)
Albert greindi frá vinnu vegna samnings sem gerður var við líkamsræktarstöðina Orkuverið ehf. þann 13. maí 2002. Einnig greint frá samtölum við forsvarsmann Orkuvers svo og forsvarsmann Sporthallarinnar ehf. á Höfn.
Fundi slitið kl. 11: 30


