Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 441
441. fundur
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, og Haukur Ingi Einarsson.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd, 99. fundur, 19. nóvember 2008.
Haukur Ingi greindi frá samskiptum við Vegagerðina og frá fyrirhuguðum kynningarfundi með íbúum vegna nýs hringvegar um Hornafjarðarfljót. Hjalti greindi frá samtali sínu við ökukennara sem var með ýmsar ábendingar vegna hraðatakmarkandi aðgerða í þéttbýli.
Fundargerð samþykkt
· Heilbrigðis- og öldrunarráð, 97. fundur, 19. nóvember 2008.
Hjalti greindi frá samskiptum sínum við forstjóra Lyfjastofnunar vegna útibús Lyfju á Hornafirði.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs, 44. fundur, 19. nóvember 2008.
Björn Ingi ræddi um sjóðinn og þátttöku hans í stofnbúnaðarkaupum. Lýsti eftir skýrari reglum um það mál.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um stefnu í húsnæðismálum, 15. fundur 29.október , 16. fundur 30. október, 17. fundur 5. nóvember, 18. fundur 10. nóvember, 19.fundur, 17. nóvember, 20. fundur 19. nóvember 2008.
Björn Ingi gerði athugasemd við hversu lítið þessar fundargerðir segja um það sem fram fór á fundum nefndarinnar.
Fundargerðir samþykktar.
· Starfshópur um skólamál, 9. fundur, 18. nóvember 2008.
Rætt um fyrirhugaðan flutning 7. bekkjar í Heppuskóla samfara breytingum á skólamálum. Menn voru sammála um að með flutningi 7. bekkjar felist ákveðin tækifæri en jafnframt að vanda þurfi vel til verka.
Fundargerð samþykkt.
· Stýrihópur vegna fjölskyldustefnu, 12. fundur 19. nóvember 2008.
Fundargerð samþykkt.
Félagsmálstjóri, Jón Kristján Rögnvaldsson, kom inn á fundinn undir þessum lið. Rætt um hvort sýnileg breyting hafi orðið á ósk eftir fjárhagsaðstoð frá félagsþjónustu samfara þeim áföllum sem dunið hafa á þjóðinni. Jón taldi sig ekki sjá neinar merkjanlegar breytingar sem beint má rekja til breytts þjóðfélagsástands.
2. Reglur um tómstundakort
Björn Ingi ítrekaði þá skoðun sína að tómstundakortið ætti einkum að koma þeim til góða sem mest þyrftu á að halda. Hjalti lagði áherslu á að þessar reglur verði samþykktar, þær kæmu öllum til góða. Jafnframt verði lögð áhersla á að fylgjast vel með stöðu mála í samfélaginu og grípa þá til sértækra aðgerða ef á þarf að halda, samþykkt reglnanna útilokaði það ekki.
Samþykkt að vísa reglunum til bæjarstjórnar að lokinni yfirferð skólanefndar.
3. Sorpmál
Haukur fór yfir útreikninga á kostnaði vegna nýs fyrirkomulags á sorphirðu með grenndargámum í dreifbýli sem hefur tekið nokkrum breytingum til hækkunar frá útsendum gögnum. Jafnframt upplýsti hann að með þessum breytingum yrði sparnaður í rekstri ef miðað er við núverandi kerfi (bláir gámar). Einnig farið yfir staðsetningu og fjölda grenndargámastöðva í þéttbýlinu. Töluverðar umræður urðu um staðsetningu og fjölda grenndargámstöðva o.fl. málinu tengt. Samþykkt að halda áfram með verkefnið og jafnframt vísað til starfsmanna að fara yfir málið í samræmi við umræður á fundinum.
4. Landamerkjamál Uppsala og Sunnuhlíðar
Haukur greindi frá tilurð málsins og stöðu þess. Starfsmönnum falið að tryggja rétta skráningu fasteigna hjá Fasteignamati ríkisins.
5. Heilbrigðismál
Hjalti greindi frá samskiptum sínum við heilbrigðisráðuneytisins vegna málsins og stöðu þess. Hjalti lagði áherslu á að ráðuneytið tryggi greiðslur í samræmi við samning um heilbrigðismál og bréf frá ráðuneytinu frá 27. júní 2008. Var ekki gerð athugasemd við þá tillögu.
6. Ósk um bætta aðstöðu til blakiðkunar
Erindið samþykkt og vísað til starfsmanna að ljúka verkefninu.
7. Fjárhagsáætlun 2009
Hjalti og Ásta fóru yfir fjármálastöðuna og helstu hugmyndir að forsendum fjárhagsáætlunar. Samþykkt að vinnufundur bæjarstjórnar verði laugardaginn 6. desember en hefðbundinn mánaðarlegur fundur 4. des.
8. Þjóðgarðsmál
Hjalti greindi frá því að þjóðgarðurinn hafi fengið tilmæli um niðurskurð frá fyrri áætlunum. Hann fór yfir þau atriði sem hann taldi að leggja ætti áherslu á við þessar breyttu aðstæður. Bæjarráð var sammála þeim áherslum.
9. Innsend bréf og erindi
· ÍSÍ, bréf dags. 14. nóvember 2008, varðar framlög til íþróttafélaga, barna- og unglingastarfs og niðurgreiðslur æfingagjalda.
Til kynningar.
· Veraldarvinir, tölvubréf dags. 18. nóvember 2008, boð um að sinna umhverfistengdum verkefnum hjá sveitarfélaginu sumarið 2009 í sjálfboðavinnu.
Til kynningar.
· Fjölmenningarsetur, bréf og bæklingur ódagsett, varðar samstarf um upplýsingamiðlun til nýrra íbúa í sveitarfélögum.
Vísað til félagsmálaráðs.
· Úrvinnslusjóður, bréf dag. 14. nóvember 2008, greiðsla fyrir brennslu á óflokkuðum umbúðum til orkuframleiðslu.
Vísað til starfsmanna.
· Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, tölvubréf 19. nóvember 2008, samantekt varðandi úrræði um sálrænan stuðning við börn og ungmenni í skólum í ljósi efnahagsástandsins.
Vísað til skólanefndar og félagsmálaráðs.
10. Önnur mál
· Bréf frá sýslumannsembættinu á Höfn þar sem óskað er eftir umsögn um útgáfu á tækifærisleyfis til handa Nemendafélagi FAS til tónleikahalds/dansleiks í Sindrabæ, 29. nóvember nk. Bæjarráð samþykkir umbeðna ósk.
· Hjalti ræddi tvo kosti varðandi störf tæknifræðings/verkfræðings í þjónustu sveitarfélagsins. Hann sagði að annars vegar væri um að ræða verkfræðistofu staðsetta í sveitarfélaginu og hins vegar starf tæknimanns/verkfræðings á tækni- og umhverfissviði. Samþykkt að bæjarstjóri hefji samningaviðræður um verkfræðiþjónustu í samræmi við tillögur sem kynntar voru á fundinum. (Ásta vék af fundi undir þessum lið annarra mála.)
Fundi slitið kl. 18:


