Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 439
439. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi þriðjudaginn 10. nóvember 2008 kl. 11:30.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, og Haukur Ingi Einarsson.
1. Fundargerðir
· Starfshópur um endurskoðun á aðalskipulagi, 1. fundur, 31. október 2008.
Bæjarráð samþykkir að minnisblað frá Glámu – Kím dags. 8/10 verði haft til hliðsjónar við vinnuna.
Fundargerð samþykkt.
· Starfshópur um skólamál, 7. fundur, 4. nóvember 2008.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, fundargerð 758. fundar
Til kynningar.
2. Aðalfundur Brennu-Flosa
Samþykkt að Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri fari með umboð fyrir hönd sveitarfélagsins á fundinum. Ásta H. Guðmundsdóttir til vara.
3. Stjórn Grunnskóla Hornafjarðar
Árni R. Þorvaldsson lagði fram eftirfarandi bókun og vék síðan af fundi.
Þegar ég nefndi það á fundi bæjarstjórnar í ágúst að skynsamlegt gæti verið að flýta flutningi skólahalds í Nesjum út á Höfn í ljósi sameiningar skólanna og sölunnar á Nesjaskóla þá kom það skýrt fram í máli mínu að það gæti haft áhrif á stjórnunarþátt grunnskólans. Ástæða þess hversu vel hefur tekist til með sameiningu grunnskólans er m.a. sú ákvörðun að einn skólastjóri er staðsettur á hverri starfsstöð skólans með skýrt umboð til að stýra daglegum rekstri. Í mínum huga þurfa því að koma til sterk rök til þess að sveigt verði af þeirri leið, þ.e. að einn skólastjóri verði staðsettur í hverri starfsstöð grunnskólans.
Farið yfir málið og það rætt. Fundarmenn voru því sammála að málið verði einnig tekið fyrir í skólanefnd.
4. Bréf byggingarfulltrúa vegna Hafnarbrautar 14
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
5. Náttúruverndaráætlun - tillaga um friðlýsingu
Vísað til umhverfisnefndar , atvinnumálanefndar og byggingar- og skipulagsnefndar.
6. Innsend bréf og erindi
· Ungmennafélag Íslands, bréf dags. 29. október 2008, samþykkt sambandsráðsfundar.
Til kynningar.
· Betri byggð í Mýrdal, bréf dags. 31. október 2008, ný veglína þjóðvegar 1 um Mýrdal.
Bæjarráð Hornafjarðar tekur undir hugmyndir um bættar samgöngur með nýrri veglínu og jarðgöngum undir Reynisfjall og Geitafjall, sbr. tillögu sem samþykkt var á fundi íbúa í Mýrdalshreppi þann 23. október 2008.
· Umhverfisráðuneytið, 31. október 2008, auglýsing um breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Til kynningar.
· Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, dagskrá ársþings 20. og 21. nóvember 2008.
Til kynningar.
7. Önnur mál
Laugardaginn 8. nóvember unnu nemendur í Grunnskóla Hornafjarðar til fyrstu verðlauna í First Lego League keppninni. Skólinn vann einnig þessa sömu keppni árið 2007. Staðfestir þetta enn og aftur gott starf skólans þegar kemur að vísindum og nýsköpun. Af þessu tilefni vill bæjarráð óska skólanum til hamingju með verðlaunin og bjóða sigurvegurunum, kennurum þeirra og þeim foreldrum sem hópnum fylgdu í keppnina til samsætis.
Bæjarráð óskar Þórbergssetri til hamingju með nýsköpunarverðlaun SAF vegna menningartengdrar ferðaþjónustu.
Björn Ingi Jónsson lagði til að frítt verði í sund fyrir íbúa sveitarfélagsins yngri en 18 ára á meðan gamla sundlaugin verður í notkun.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
Fundi slitið kl. 13:15


