Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 438
438. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi þriðjudaginn 3. nóvember 2008 kl. 16:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Halldóra B. Jónsdóttir.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
1. Fundargerðir
· Heilbrigðis- og öldrunarráð, 96. fundur 23. október 2008.
Halldóra óskaði upplýsinga um nýja skipulagsskrá Gjafa- og minningarsjóðs. Mun hún fá skipulagsskrána afhenta.
Fram kom að bókað hafi verið um útibú Lyfju á síaðasta fundi bæjarráðs.
Árni fagnaði tillögu Eiríks Sigurðssonar um könnun á þörf fyrir íbúðir fyrir 60 ára og eldri. Hjalti las upp athugasemdir sem Eiríkur sendi honum vegna þessarar bókunar sinnar á fundi nefndarinnar.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um stefnu í húsnæðismálum, 13. fundur 24. september 2008 og 14. fundur 24. október 2008.
Fundargerð samþykkt..
· Starfshópur um skólamál, 6. fundur 28. október 2008.
Undir þessari fundargerð gerði Árni að umtalsefni að tekin hafi verið ákvörðun um skólahald verði flutt til Hafnar á næsta skólaári. Í þessu sambandi ræddi hann stjórnfyrirkomulag skólans og sagði eðlilegt að þau mál verði einnig til umræðu og ákvörðunar samhliða flutningi. Hjalti ræddi einnig um stjórnfyrirkomulag skólans. Hjalti taldi að til framtíðar verði 7. bekkur í Hafnarskóla þó að vegna plássins verði hann að vera í Heppuskóla í fyrstu. Halldóra spurði hvort hugmyndir um flutning 7. bekkjar hafi verið kynntar fyrir foreldrum. Hún taldi best ef hægt verði að koma honum fyrir í Hafnarskóla. Gerði meðal annars leiksvæði við Heppuskóla að umtalsefni í því sambandi. Stefán greindi frá fyrirhuguðum kynningarfundum, bæði meðal foreldra og starfsmanna. Halldóra tók undir það sjónarmið að byrja kennslu fyrr að deginum, sbr. fundargerð, t.d. kl. 8:10. Einnig var rætt um akstur að morgni innanbæjar og einnig voru ræddar lengri frímínútur.
Fundargerð samþykkt
· Stýrihópur vegna fjölskyldustefnu, 10. fundur 29. október 2008.
Fundargerð samþykkt
· Svæðisráð suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs, 9. fundur 30. október 2008.
Hjalti greindi frá umræðu innan svæðisráðs um hvort frekar eigi að nýta hluta af fjármunum í gestastofu í starf og uppbyggingu innan þjóðagarðsins ekki setja allt þetta fé í gestastofuna sjálfa. Halldóra sagðist efast um að menn haldi utan um starf þjóðgarðsins hér í sýslu ef ekki verði byggð gestastofa eða keypt undir hana húsnæði.
2. Gagnaver
Hjalti greindi frá hugmyndum hóps manna um gagnaver á Hornafirði. Fór hann yfir helstu atriði sem fram komu á fundinum. Kom fram að margt mæli með byggingu gagnavers á Hornafirði. Bæjarráð samþykkir að unnin verði drög að yfirlýsingu um samstarf milli aðila. Hjalti greindi einnig frá viðræðum við eiganda Martölvunnar um afritun og hýsingu gagna og tengd mál.
3. Fuglaathugunarstöð Suðausturlands
Halldóra spurði um tímann sem málið hafi tekið, sbr. dagsetningar á bréfum og ræddi einnig lögun þess lands sem fellur undir samninginn. Útskýrt hver ástæðan er fyrir þessari lögun sem tengist öðrum afnotum af aðliggjandi svæði. Bæjarráð samþykkir samning við Fuglaathugunarstöð Suðausturlands um umráða- og afnotarétt af tilgreindu landsvæði, sbr. útsend gögn.
4. Framkvæmdir sveitarfélagsins 2009-2011+
Farið yfir hugmyndir að helstu framkvæmdum, sbr. gögn afhent á fundinum. Halldóra óskaði eftir upplýsingum um stöðu við byggingu sundlaugar, hvað sé búið að framkvæma og hvað eftir. Einnig óskaði hún eftir sundurliðun á greiðslum vegna aðkeyptrar vinnu verkfræðinga og annarra hönnuða. Samþykkt að vísa þessum lið til vinnufundar í bæjarstjórn.
5. Uppbygging leiguíbúða á Höfn
Hjalti og Haukur fóru yfir málið og greindu frá helstu hugmyndum að leigufélagi sem tæki þetta verkefni að sér. Greint frá hugmyndum um fjármögnun og rekstrarkostnað. Samþykkt að haldið verði áfram með þessa vinnu.
6. Yfirlandskiptagerð á landsgræðslusvæðinu í Skógey
Farið yfir skýrslu og niðurstöður yfirlandskiptanefndar, dags. 22. október 2008.
7. Innsend bréf og erindi
· Umhverfisráðuneyti, starfshópur um utanvegaakstur, bréf dags. 21. október 2008.
Vísað til umhverfisnefndar og byggingar- og skipulagsnefndar.
· Skipulagsstofnun, afrit bréfs til Umhverfisráðuneytisins, dags. 22. október 2008.
Til kynningar
· Knattspyrnusamband Íslands, bréf dags. 24. október 2008, samþykkt sambandsins um fjárframlög til barna- og unglingastarfs.
Bæjarráð fagnar þessu framtaki KSÍ.
8. Önnur mál
Bæjarráð samþykkir að veita Launanefnd sveitarfélaga umboð til að semja við stéttarfélagið Fræðagarð.
Ásta greindi frá stöðu Gjafa- og minningarsjóðs eins og hún er í dag eftir það uppgjör á peningabréfum sem fram hefur farið.
Halldóra taldi að nú væri lag að fá hingað verkfræðinga/tæknifræðinga til starfa. Hjalti greindi frá þeirri vinnu sem fram hefur farið um þetta mál. Þetta mál komi innan tíðar fyrir bæjarráð.
Fundi slitið kl. 18.25


