Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 437
437. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi þriðjudaginn 28. október 2008 kl. 16:00.
Mættir voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
1. Fundargerðir
· Almannavarnanefnd, 30. fundur 20. október 2008.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar, 108. fundur 22. október 2008.
Bæjarráð vísar reglum um tómstundarkort til Menningar- og tómstundanefndar. Árni benti á að skólanefnd tæki undir fyrri bókanir um að skólahald flytjist úr Nesjum á Höfn skólaárið 2009-2010.
Fundargerð samþykkt.
· Starfshópur um skólamál, 5. fundur 21. október 2008.
Bæjarráð leggur áherslu á að þrátt fyrir flutning skólahalds úr Nesjum haldi starfsmenn Grunnskóla Hornafjarðar atvinnu. Ekki er þó hægt að tryggja að allir starfsmenn geti gengið að sambærilegum störfum eftir flutninginn. Rétt er þó að taka fram að sveitarfélagið er hér eftir sem hingað til bundið af reglum um ráðningar kennara og gildandi kjarasamningum.
Fundargerð samþykkt.
2. Óskir verktaka við sundlaugarbyggingu um endurnýjun samningar vegna hækkandi verðlags
Bæjarráðs samþykkir að verðbæta verkið um 12.037.642.- skv. minnisblaði frá Hauki Inga Einarssyni dags. 27. okt. 2008.
3. Jarðfylling á Leirusvæði - drög að verksamningum
Haukur Ingi mælir með að taka tilboði frá Rósaberg um jarðfyllingu. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi verksamning. Bæjarráð frestar samningum um dælingu.
4. Starfsmannastefna sveitarfélagsins
Hjalti kynnti málið og leggur til að starfsmannastefna taki gildi 1. janúar 2009. Björn Ingi lagði áherslu á að markmið yrðu gerð skýrari og sett fram á myndrænan hátt á einu A4 blaði. Tóku aðrir fundarmenn undir sjónarmið Björns Inga. Bæjarráð vísar málinu til áframhaldandi vinnu. Síðan verður starfsmannastefnan lögð fyrir bæjarstjórn í desember.
5. Fjármál sveitarfélagsins
Ásta lagði fram minnisblað dags. 24. okt. 2008 varðandi ávöxtun á fjármunum sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir tillögu að ávöxtun skv. ofangreindu minnisblaði sem gerir ráð fyrir að fjármunir verði bundnir í einn mánuð í senn á 18,7% innlánsvöxtum.
6. Hringvegur um Hornafjarðarfljót
Bæjarráð felur starfsmönnum og byggingar- og skipulagsnefnd að vinna að breytingu á aðalskipulagi sem gerir ráð fyrir að nýr vegur liggi samkvæmt leið 3 með þeim athugasemdum sem bæjaryfirvöld gerðu varðandi leiðina.
7. Tilnefning fulltrúa sveitarfélagsins í skólanefnd FAS
Árni R. Þorvaldsson og Sigrún Kapitóla aðalmenn,
Björk Pálsdóttir og Elín Magnúsdóttir til vara.
8. Umsókn um lóð nr. 40 við Ægissíðu
Bæjarráð samþykki umsóknina.
9. Innsend bréf og erindi
· Minnispunktar frá samráðsfundi sveitarfélaga um efnahagsmál 17. október 2008.
Til kynningar.
10. Önnur mál
· Rætt um framtíð apóteks á Hornafirði. Kom fram að Lyfjastofnun vilji loka Hafnarapóteki 1. desember n.k. ef tekst ekki að fá lyfjafræðing til starfa fyrir þann tíma. Mikil umræða skapaðist um málið og samþykkti bæjarráð eftirfarandi bókun: ,,Bæjarráð leggur áherslu á að útibú Lyfju verði starfrækt áfram. Starfsemi útibúsins hefur verið hnökralaus og engar málefnalegar ástæður eru fyrir því að endurskoða fyrirkomulag lyfsölu á staðnum. Sýnt hefur verið fram á örugga afgreiðslu lyfja og starfsemi útibúsins.“
Samþykkt að senda heilbrigðisráðherra, þingmönnum Suðurkjördæmis og heilbrigðisnefnd Alþingis bókunina.
· Gerð grein fyrir viðræðum við forsvarsmenn Hestamannafélagsins hornfirðings um byggingu reiðhallar við Stekkhól. Bæjarráð samþykkir að sveitarfélagið greiði fyrr út styrk sinn til að koma verkinu af stað aftur, alls 5 m.kr.. Ennfremur felur bæjarráð bæjarstjóra að vinna að nýjum samningi við Hestamannafélagið sem stuðli að því að félagið geti lokið við bygginguna.
· Reynir spurði greiðslur til heilsugæslunnar og hvort ekki væri hægt að stuðla að jafnari greiðslum til stofnunarinnar. Gerð grein fyrir því að launabætur og ýmsar aðrar leiðréttingar koma inn seinni hluta árs.
· Rætt um samning við Fuglaathugunarstöð Hornafjarðar og hugmyndir um uppbyggingu gagnavers. Samþykkt að taka hvort mál fyrir sem sér lið á næsta fundi bæjarráðs.
Fundi slitið kl. 18.40


