Bæjarráð
Bæjarráð Hornafjarðar 435
435. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi fimmtudaginn 9. október 2008 kl. 16:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Elín Magnúsdóttir, Halldóra B. Jónsdóttir.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
1. Fundargerðir
· Starfshópur um skólamál, 2. fundur, 30. september 2008.
Halldóra gerði að umtalsefni möguleika á sambýli leik- og grunnskóla þannig að yngstu árgangar grunnskólans tengist leikskólastiginu, m.a með sameiginlegu húsnæði, kennsluaðferðum o.fl. Bæjarráð leggur áherslu á að 1. – 3. bekkur flytjist næsta haust þannig að allt skólahald með grunnskólanemendur verði á Höfn frá skólabyrjun 2009 – 2010.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 51. fundur, 1. október 2008.
Halldóra spurði um hvenær dúkur verði settur á sundlaugina, hvernig gengið verði frá sundlaugarköntum og um steiningu á veggi. Haukur sagði dúkinn koma á laugina í þessum mánuði, kantar verði málaðir, og svaraði einnig til um steiningu veggja. Halldóra beindi því til nefndarinnar að skoðað verði að nýta valið efni frá Horni (Hornsmöl) í heitu pottana. Samþykkt að keyptar verði dælur til að dæla vatni úr sundlaugarkjallara. Einnig samþykkt að kaupa hreinsisugu fyrir sundlaugina, kaupverð kr. 922.000.
Fundargerð samþykkt.
· Stýrihópur vegna fjölskyldustefnu, 7. fundur, 24. september 2008 og 8. fundur,
október 2008.
Fundargerðir samþykktar.
2. Fjárhagsáætlun 2009
Ásta fór yfir stöðuna á sveitarsjóði, sagði hana ágæta.
Í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi í þjóðfélaginu ákveður bæjarráð að fjárhagsáætlun 2009 verði unnin frá grunni. Farið verði gaumgæfilega yfir rekstur allra stofnana sveitarfélagsins samhliða fjárhagsáætlunargerð.
3. Umsókn um byggingarlóð, gripahús við Ægissíðu, dags. 01. 10. 2008
Umsókn samþykkt.
4. Húsnæði fyrir félagsmiðstöð unglinga
Hjalti fór yfir málið. Samþykkt að vísa áframhaldandi vinnu þessa máls til starfsmanna.
5. Kjör fulltrúa á aðalfund Heilbrigðiseftirlits Austurlands
Samþykkt að Sigurlaug Gissurardóttir, formaður umhverfisnefndar, sitji fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
6. Innsend bréf og erindi
· Samgönguráðuneytið, ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2008, bréf dags. 22. september 2008.
Bæjarstjóri gerir ráð fyrir að sitja fundinn.
· Sambýlið á Hólabrekku, bréf dagsett 23. september 2008.
(Hjalti vék af fundi undir þessum lið fundargerðarinnar.)
Vísað til nefndar um húsnæðismál.
· Sigurgeir Jónsson, bréf dagsett 29. september 2008.
Til kynningar.
· Fréttatilkynning, 2. október 2008, skipulagsverðlaunin 2008 – lýst eftir tilnefningum.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
· Vegagerðin, bréf dagsett 3. október 2008.
Til kynningar.
7. Önnur mál
- Árni greindi frá málstofu um skólamál á vegum Sambands ísl. sveitarfélaga sem hann sótti þann 6. okt. sl. Hvatti hann til að menn kynntu sér erindin sem nálgast má á samband.is.
- Halldóra greindi frá samtali við starfsmann Vegagerðarinnar. Sagði hún að samkvæmt drögum að frummatsskýrslu sem send hefur verið Skipulagsstofnun telji Vegagerðin leið 1 og leið 3 vegtæknilega sambærilegar.
Fundi slitið kl. 17:35


