Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 433
433. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 22. september 2008 kl. 16:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Árni bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár.
1. Fundargerðir
· Menningar- og tómstundanefnd, 1. fundur, 11. júní 2008 og 2. fundur, 10. sept. 2008.
Hjalti greindi frá hugmyndum um sýningu á verkum Svavars Guðnasonar undir þessum lið. Einnig fjallaði hann um minningarreit um Þórhall Daníelsson, sbr. 9. lið á dagskrá 2. fundar. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna að málinu.
Fundargerð samþykkt.
· Byggingar- og skipulagsnefnd, 95. fundur, 10. sept. 2008.
Rætt var um aðgengi að Austurfjörutanga í gegnum land Horns, sbr. 6. lið á dagskrá nefndarinnar.
Haukur gerði að umtalsefni skýrslu verkfræðistofunnar Mannvits um umferðaröryggi á Höfn. Björn Ingi lagði áherslu á að hraðahindranir mættu ekki trufla akstur sjúkrabíla, einkum á Víkurbraut.
Á fundi byggingar- og skipulagsnefndar var tekin fyrir ósk Gísla Sigurbergssonar um framkvæmdaleyfi með það í huga að dýpka eystri farveg Hornafjarðarfljóta. Byggingar- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við framkvæmdina. Bæjarráð tekur undir afgreiðslu nefndarinnar og samþykkir framangreinda ósk um framkvæmdaleyfi.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn, 105. fundur. 11. sept. 2008.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd, 80. fundur, 11. sept.
Rætt um stjórn Fólkvangs í Óslandi. Bæjarráð samþykkir að óskað verði eftir við Umhverfisstofnun og umhverfisráðuneytið að sveitarfélagið taki alfarið yfir stjórn Fólkvangsins.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð, 95. fundur, dags. 17. september
Fundargerð samþykkt.
· Atvinnumálanefnd, 42. fundur, 17. sept. 2008.
Björn Ingi spurðist fyrir um stofnun leigufélags undir þessum lið á dagskrá. Hjalti gerði grein fyrir viðræðum við verktaka um hugsanlega aðkomu þeirra að byggingu leiguíbúða.
Fundargerð samþykkt.
· Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs, 8. sept. 2008.
Hjalti benti á að fundargerð svæðisráðs væri ekki alfarið rétt. Í 5. lið, 4. síðustu línu, ætti að standa Flatey í stað Skálafells. Bæjarráð leggur áherslu á að umhverfisráðuneytið staðfesti samstarf Vatnajökulsþjóðgarðs og Jöklasýningar.
Til kynningar
· Nefnd um húsnæðismál , 11 fundur 11. sept. 2008. (Bætt inn á dagskrá)
Bæjarráð samþykkir að lokaskýrslu nefndarinnar verði skilað inn fyrir 1. desember nk.
Fundargerð samþykkt
2. Erindi starfsmanna HSSA sem leggja stund á sjúkraliðanám samhliða vinnu –sent út í fundarboði 432. fundar.
Bæjarráð sammála um að vísa erindinu til þróunar- og endurmenntunarsjóðs sveitarfélagsins.
3. Endurskoðun á fjárhagsáætlun 2008
Ásta fór yfir þær breytingar sem lagt er til að gerðar verði á fjárhagsáætlun 2008. Þegar saman hafa verið tekin aukin útgjöld og auknar skatttekjur er gert ráð fyrir að rekstrarafgangur aukist um 118,5 m.kr., Miðað við endurskoðaða áætlun eru fjárfestingar minni sem nemur 103 m.kr. og handbært fé um áramót eykst um 347 m.kr. Endurskoðun á fjárhagsáætlun vísað til bæjarstjórnar með viðbót sem verður, sbr. 6. lið á dagskrá þessa bæjarráðsfundar.
4. Erindisbréf fyrir starfshóp um endurskoðun á aðalskipulagi
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.
5. Úttekt á möguleikum á vatnsútflutningi – gögn send á tölvupósti.
Bjarni Ólafur Stefánsson mætti á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir rannsókn/skýrslu þar sem kannaður var fýsileiki á vatnsútflutningi frá Hornafirði.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
6. Endurskoðun á stjórnskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar og þróun þjónustuvers
Bæjarstjóra falið að ganga til samninga við R3 ráðgjafa samkvæmt fyrirliggjandi umfangs- og kostnaðaráætlun frá fyrirtækinu. Jafnframt samþykkt að vísa kostnaði sem verður við þessa úttekt til endurskoðunar á fjárhagsáætlunar 2008.
7. Áhaldahús, Hornafjarðarveitur og Hornafjarðarhöfn
Hjalti og Haukur Ingi gerðu grein fyrir hugmyndum um hlutverk áhaldahúss. Bæjarráð fagnar þessari vinnu.
8. Samningur við Norðlenska um kaup á skilju fyrir sláturúrgang
Um er að ræða samning um kaup á skilju fyrir sláturúrgang. Gert er ráð fyrir að sveitarfélagið leggi fram kr. 2.500.000.- af áætluðum 5.000.000.- heildarkostnaði gegn því að Norðlenska greiði þetta framlag til baka (með verðbótum) og eignist skiljuna að tveimur árum liðnum. Með uppsetningu á slíkri skilju dregur úr urðun sláturúrgangs, til fellur afurð sem nýta má til loðdýraeldis og hægt verður að verða við lagaskyldu um að minnka magn lífræns úrgangs í urðun. Hjalti og Haukur lögðu áherslu á að þessi aðkoma sveitarfélagsins væri mikilvæg til að koma á þessari endurvinnslu og um leið betri nýtingu á urðunarsvæði. Björn Ingi lagði áherslu á í sínu máli að fyrirtækið greiddi sanngjarna vexti auk verðbótanna þó hann samþykki þennan gjörning. Bæjarráð samþykkir framangreint framlag (kr. 2.500.000.-) með þeim kjörum sem kynnt voru.
9. Umsóknir um bætta lýsingu í dreifbýli
Umsóknir samþykktar í samræmi við reglur þar að lútandi.
10. Útboð á jarðfyllingum á Leirusvæði – sent í tölvupósti
(Jón Guðmundsson mætti á fundinn undir þessum lið). Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu og ræddi kosti þess að dæla efni inn á Leirusvæðið í stað þess að keyra því. Magnið sem um ræðir er mikið og akstur á því, hvort sem væri úr höfninni eða lengra að, myndi skapa margvísleg vandamál. Jón Guðmundsson taldi að umferðin, ef efni yrði keyrt, myndi ekki valda minni áhrifum á umhverfi en ef efninu væri dælt.
Reynir lagði áherslu á að ef af dælingu verður sé mikilvægt að tryggja greiðan aðgang skipa inn og út úr höfninni.
Björn Ingi hafði áhyggjur af foki á svæðinu ef dælt yrði og gera þyrfti ráðstafanir til að hefta það. Undir það var tekið.
Bæjarráð fer fram á að fyrir liggi aðgerðaráætlun við frágang/fergingu á Leirusvæði áður en tekin verður afstaða til þeirra tilboða sem bárust í verkið.
11. Innsend bréf og erindi
· BSRB, dags. 3. sept. 2008, heilbrigðisþjónusta – á vegferð til einkavæðingar.
Til kynningar.
· Dropinn, dags. ágúst 2008, sumarbúðir fyrir sykursjúk börn.
Vísað til starfsmanna.
· Skipulagsstofnun, dags. 3. sept. 2008, listar yfir skipulagsfulltrúa.
Vísað til starfsmanna.
· Búnaðarsamband A-Skaftfellinga, dags. 11. sept. 2008, brunavarnir sveitum og Fljótavegur.
Starfsmönnum falið að svara erindinu.
· Samgönguráðuneytið, dags. 11. sept. 2008, framlag í Varasjóð húsnæðismála.
Til kynningar.
· SASS, dags. 16. sept. 2008, ársþings SASS.
Til kynningar.
· Dóms- og kirkjumálaráðherra, dags. 9. sept. 2008, almannavarnir.
Til kynningar.
· Skipulagsstofnun, 5. sept. 2008, skráning skipulagsfulltrúa.
Vísað til starfsmanna.
· Sigurgeir Jónsson, ódags. krafa um leiðréttingu í Landsskrá fasteigna.
Vísað til starfsmanna.
· Strætó bs., dags. 17. sept., nemakort í strætó á höfuðborgarsvæðinu.
Bæjarráð hefur móttekið bréf frá Strætó bs. þar sem tilkynnt er að sveitarfélög utan höfuðborgarsvæðisins geti „nú í fyrsta skipti sótt um að kaupa nemakort fyrir þá íbúa sína sem stunda viðurkennt nám á framhalds- eða háskólastigi á höfuðborgarsvæðinu.” Bæjarráð Hornafjarðar furðar sig á því að sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu ætli með þessum hætti að velta hluta af kostnaði af almenningssamgöngum á sínu svæði yfir á sveitarfélög á landsbyggðinni. Minnt er á að ríkisvaldið hefur með ákvörðun sínum um nánast einnar aldar skeið séð til þess að flestar helstu menntastofnanir þjóðarinnar eru staðsettar í Reykjavík og næsta nágrenni. Þetta hefur verið gert með fullu samþykki viðkomandi sveitarfélaga enda hefur þessi ráðstöfun orðið þessum sveitarfélögum drjúg tekjulind. Um leið og bæjarráð mótmælir þessari tilraun til skattlagningar á sveitarfélög á landsbyggðinni tilkynnist að Sveitarfélagið Hornafjörður mun ekki greiða fyrir þessi kort.
12. Önnur mál
- Hjalti gerði tillögu um fund bæjarráðs með ráðherrum, þingmönnum og opinberum stofnunum 16. – 17. október næstkomandi.
- Hjalti ræddi samstarf við Verkfræðistofuna ehf. og hugsanlega frekari útvíkkun á því.
- Hjalti gerði grein fyrir viðræðum sínum við Hótel Jökul um leigu á Nesjaskóla. Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samning á þeim forsendum sem kynntar voru á fundinum. (Ásta vék af fundi.)
- Stefán greindi frá fundi sem hann átti með þremur íbúum á Mýrum þar sem fram kom áhugi á að Holt nýtist íbúum á Mýrum sem félagsheimili. (Hjalti vék af fundi undir þessum lið.)
Fundi slitið kl. 19:45


