Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 432
432. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi fimmtudaginn 11. september 2008 kl. 9:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Árni bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár.
1. Fundargerðir
· Nefnd um íþróttamannvirki, 50. fundur. 2. sept. 2008.
Fundargerð samþykkt
· Fundur um fjölorkuhring, haldinn í iðnaðarráðuneytinu 20. ágúst 2008
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að undirrita viljayfirlýsingu um fjölorkuhring. leyti.
2. Erindi starfsmanna HSSA sem leggja stund á sjúkraliðanám samhliða vinnu
Bæjarráð gerir athugasemd við það að starfsmenn í námi þurfi að fara um langan veg til að fara í starfsþjálfun samhliða náminu. Starfsþjálfun sem oftast er hægt að sinna á viðkomandi vinnustað. Samþykkt að senda þessa athugasemd á viðkomandi menntastofnanir og ráðuneyti. Ákveðið að taka erindið aftur fyrir þegar heilbrigðis- og öldrunarráð hefur fjallað um það.
3. Rekstrarstaða bæjarsjóðs 31.7. 2008
Ásta fór yfir rekstrarniðurstöðuna og sagði hana vera í samræmi við áætlanir. Fram kom ánægja með þessa stöðu.
4. Drög að erindisbréfi fyrir starfshóp um skólamál
Erindisbréf starfshóps um skólamál samþykkt með áorðnum breytingum.
Eftirtaldir skipa starfshóp um skólamál í samræmi við samþykkt skólanefndar á 106. fundi nefndarinnar og samþykkt bæjarráðs á 431. fundi ráðsins: Guðrún Jónsdóttir, Anna María Ríkharðsdóttir og Sigríður Kristinsdóttir hver frá sínu framboði í skólanefnd, Nanna Dóra Ragnarsdóttir, fulltrúi foreldra, Kristín Gestsdóttir, fulltrúi starfsmanna Grunnskóla Hornafjarðar og Þorvaldur J. Viktorsson fulltrúi skólastjórnenda. Jafnframt samþykkt að Guðrún Jónsdóttir verði formaður starfshópsins. Formanni starfshópsins falið að kalla hann saman til fyrsta fundar.
5. Fundir sveitarstjórna með fjárlaganefnd Alþingis
Farið yfir tillögur að erindum sem lögð verða fyrir fjárlaganefnd.
6. Aðalfundur Sambands sveitarfélag á Austurlandi 26. og 27. sept. 2008
Fulltrúar verða í samræmi við kosningar á aðalfundinn á fundi bæjarstjórnar sl. vor.
7. Evrópusáttmáli um jafna stöðu kvenna og karla í sveitarfélögum og héruðum
Vísað til félagsmálaráðs.
8. Tillögur að stefnumótun Sambands íslenskra sveitarfélaga í málefnum innflytjenda
Vísað til félagsmálaráðs.
9. Félag eldri Hornfirðinga, ósk um styrk vegna tölvunámskeiðs, sbr. bréf dagsett 6. september 2008
Samþykkt að styrkja Félag eldri Hornfirðinga um150.000.- vegna tölvunámskeiðs. Tekið af óráðstöfuðu.
10. Skipulagsstofnun, athugasemdir vegna deiliskipulags við Víkurbraut, bréf dagsett 3. september 2008
(Jón Guðmundsson sat fundinn undir þessum lið.)
Haukur gerði grein fyrir athugasemdum Skipulagsstofnunar sem kalla á minni háttar breytingar á deiliskipulagi umrædds svæðis. Þá var tekin fyrir eftirfarandi bókun byggingar- og skipulagsnefndar og samþykkt að vísa deiliskipulagstillögunni til bæjarstjórnar:
“Við gerð deiliskipulagstillögu varð sú yfirsjón að ekki var tekið tillit til ákvarðana í aðalskipulagi, um að vegstæði sé áætlað milli Víkurbrautar og Bogaslóðar, og að mót Álaugarvegar og Víkurbrautar verði teygð yfir hluta lóðarinnar Víkurbrautar 5.
Til að leiðrétta þessa yfirsjón leggur byggingar- og skipulagsnefnd til að minniháttar breytingar verði gerðar á deiliskipulagstillögunni er snúa að legu göngustígs, trjágróðri á lóð, minnkun lóðar við Víkurbraut 5 og afmörkun deiliskipulagsreits að litlu leyti. Nefndin leggur því til að:
? Lega gangstígs norðan knatthúss verði breytt lítillega.
? Trjágróðri við knatthús verði breytt og staðsetning hans verði ekki bindandi.
? Afmörkun deiliskipulags verði breytt þannig að það verði sniðið neðan tengibrautar milli Bugðuleiru og Bogaslóðar sem gert er ráð fyrir í aðalskipulagi en er ekki áformuð nú um stundir. Einnig var ramminn dreginn utan um alla lóð verkstæðishússins sem fellur niður.
? Lóð nr. 5 við Víkurbraut verði minnkuð til þess að verða megi af tilfærslu Víkurbrautar (stofnbraut) eins og gert er ráð fyrir í Aðalskipulagi.
Engar þær framkvæmdir sem heimilaðar eru / verða skv. umræddu deiliskipulagi hafa áhrif á áhrifasvæði fyrrgreindra vega, þó svo sú villa hafi verið gerð að deiliskipulagssvæði og lóðamörk hafi innlimað vegstæðin að hluta.
Lóðarhafar Víkurbrautar 5 fallast á að mörkum lóðar þeirrar verði breytt. Það er hægt að gera svo að fullu sé vikið fyrir hugsanlegum vegalögnum skv. aðalskipulagi, án þess að hnika nokkru sem lýtur að eiginlegum framkvæmdum þeim sem deiliskipulagið fjallar um. Af þeim sökum munu breytingarnar, sem hér eru lagðar til, hvorki breyta forsendum athugasemda íbúa í nágrenninu né svörum bæjarstjórnar við athugasemdunum.
Með þessu er ekki verið að taka ákvörðun um þær veglínur sem Skipulagsstofnun vísar til í athugasemdum dagsettum 3. september 2008 enda er ekki verið að fjalla um veglínurnar að öðru leyti en að bregðast við mistökum við gerð deiliskipulagsuppdráttar sem hefðu getað hindrað framgang þeirra í framtíðinni. Með þessum breytingum er því lega þeirra tryggð ef ákveðið verður að leggja þessa vegi í framtíðinni.
Byggingar- og skipulagsnefnd muna fara þess á leit að umræddir vegir verði endurskoðaðar í nýju aðalskipulagi en vinna við það stendur yfir.”
Í ljósi ábendinga Skipulagsstofnunar um útlit hússins mælir byggingar- og skipulagsnefnd með því að tekið verði fram við gerð útboðsgagna um knattspyrnuhús að húsið skuli hafa bogaþak og vera í ljósum lit.”
Undir þessum lið var tekið til umfjöllunar knatthús, grundun þess, útlit, stærð, efnisval, útboðsmál o.fl. þættir sem snúa að byggingu þess. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
11. Innsend bréf og erindi
· Menntaþing menntamálaráðuneytisins haldið 12. september 2008, bréf ódagsett.
Til kynningar.
· Þórður Skúlason, kveðjur til sveitarstjórnarmanna, framkvæmdastjóra sveitarfélaga og annarra starfsmanna sveitarfélaganna, bréf dagsett 1. september 2008.
Þórði þakkað gott samstarf.
· Hafnasamband Íslands, hafnasambandsþing 2008, bréf dagsett 29. ágúst 2008.
Til kynningar
· Náum betri árangri - málstofa Sambands íslenskra sveitarfélaga um skólamál - , bréf dagsett 5. september 2008.
Samþykkt hvert framboð geti sent fulltrúa á fundinn. Einnig samþykkt að vísa erindinu til skólanefndar.
· Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Austurlandi, varðar umsóknir í Framkvæmdasjóð fatlaðra vegna úthlutunar árið 2009, bréf dags. 02.09. 08.
Vísað til starfsmanna.
· Vinnueftirlitið, öryggi á vinnustöðum og erlendir starfsmenn, bréf dags. 3. sept. 08.
Til kynningar.
· Seyðisfjarðarkaupstaður, bréf til sveitarfélaga á Austurlandi, dags. 04.09. 08.
Til kynningar
12. Önnur mál
- (Ásta vék af fundi undir þessum lið annarra mála) Hjalti gerð grein fyrir hugmyndum að leigu á húsnæði í heimavistarhluta Nesjaskóla, breytingum á kyndingu og afhendingu á kennsluhúsnæði skólans. Hjalta falið að ljúka samningsgerð.
- Hjalti fór yfir samskipti, bréfleg og fundi, við Vegargerðina vegna fyrirhugaðrar byggingar knattspyrnuhúss og tengd mál. Hjalta falið að svara Vegagerðinni í samræmi við umræður á fundinum.
- Hjalti gerði grein fyrir bréfi Vegagerðarinnar vegna malarnáms í Friðsæld.
- Haukur gerði grein fyrir tilboðum sem bárust í fyllingu/fergingu á Leirusvæði.
- Árni spurði um heimasíðu sveitarfélagsins. Hjalti greindi frá stöðunni.
Fundi slitið kl. 11:45


