Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 430
430 fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 25. ágúst 2008kl. 16:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Elín Magnúsdóttir og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Stefán Ólafsson, Ásta Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Árni bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár.
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd, 41. fundur, 18. ágúst 2008
Bæjarráð óskar eftir því að fá gögn sem sýna fjölda íbúa á Hornafirði með erlent ríkisfang ásamt fleiri upplýsingum. Æskilegt er að þau gögn sem vísað er í fylgi fundargerðum til bæjarráðs.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn, 104. fundur, 19. ágúst 2008
Stefán greindi frá væntanlegri heimsókn hafnaráðs nk. fimmtudag. Sagði hann ráðið stoppa hér um 2 klst. Farið yrði í siglingu með Birni lóðs, hafnarmannvirki skoðuð og fundað eftir siglingu.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð, 94. fundur, 20. ágúst 2008
Bæjarráð tekur undir bókun heilbrigðis- og öldrunarráðs, 3. liður á dagskrá ráðsins, „yfirlýsing ríkisstjórnarinnar í uppbyggingu hjúkrunarheimila”.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs, 40. fundur, 28. maí 2008
Fundargerð samþykkt
2. Ósk um leyfi til að reisa kláfferju yfir Breiðá, bréf dags. 18. ágúst 2008
Bæjarráð tekur undir kosti þess að hafa kláfferju á umræddum stað. Samþykkt að vísa erindinu til skipulags- og byggingarnefndar.
3. Skýrsla um úrgangsmál á Austurlandi 2008, samantekt fyrir Samband sveitarfélaga á Austurlandi, júní 2008
Skýrslunni er vísað til umhverfisnefndar.
4. Umsókn um námsvist utan lögheimilissveitarfélags (kynnt á fundinum)
Stefán gerði grein fyrir ástæðu umsóknarinnar. Bæjarráð samþykkir umbeðna ósk um námsvist utan lögheimilissveitarfélags í ljósi þeirra skýringa sem fram komu hjá starfsmanni.
5. Atvinnumál - gagnaver, vatnsútflutningur
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi bókun:
Bæjarráð hvetur til þess í þeirri umræðu sem á sér stað um gagnaver á Íslandi að horft verði til Hornafjarðar við ákvörðun á staðarvali fyrir gagnaver. Það er álit bæjarráðs að aðstæður í Sveitarfélaginu Hornafirði séu á margan hátt hinar ákjósanlegustu fyrir gagnaver. Auðvelt er að finna nægilegt landrými fyrir slíka starfsemi og svæðið liggur utan helstu jarðskjálftasvæða á Íslandi. Aðgengi að fersku vatni er auðvelt og veðurfar með þeim hætti að ekki stafar hætta af fyrir starfsemina. Bæjarstjóra falið að óska eftir því við starfsstöð Nýsköpunarmiðstöðvar í Nýheimum að þegar lokið verður skýrslu um kosti vatnsútflutnings frá Hornafirði verði unnin sambærileg skýrsla vegna gagnavers. Samþykkt að senda þessa bókun einnig til iðnaðarráðuneytisins.
Undir þessum lið var upplýst um vinnu við skýrslu að vatnsútflutningi.
6. Reglur um úthlutun lóða
Haukur Ingi fór yfir breytingar. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi reglur.
7. Innsend bréf og erindi
· Skaftárhreppur, aðalskipulag 2002 – 2014, breyting á aðalskipulagi við Laka
Engar athugasemdir eru gerðar við framangreint skipulag.
· Bréf frá Friðgeiri Björnssyni formanni yfirlandskiptanefndar, vegna Skógeyjar í Hornafirði, dags. 15. ágúst 2008
Stefán greindi frá fundi yfirlandskiptanefndar í Nýheimum með landeigendum að Skógey og vettvangsferð með sömu aðilum um Skógey sl. laugardag. Töluverð umræða skapaðist um landskipti og þá stöðu sem málið er í.
· Gísli Sigurbergsson, bréf dagsett 19. ágúst 2008
Farið yfir álit lögfræðings sveitarfélagsins, dagsett 25. ágúst 2008, sem snertir það mál sem um er rætt. Starfsmönnum falið að óska eftir fundi með bréfritara þar sem farið verði yfir efnisatriði málsins og tillögum að úrlausn þess.
8. Önnur mál
Stefán greindi frá fundi um húsnæðismál Grunnskóla Hornafjarðar þann 18. ágúst 2008 og afhenti fundargerð þess fundar.
Fundi slitið kl. 18:35


