Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 429
429. fundur
Mættir voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Árni bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár. Hann óskaði eftir því að útboðsgögn vegna jarðfyllinga á Leirusvæði, send út í tölvupósti, verði tekin fyrir sem sérliður, bætt inn sem 10. lið á dagskrá. Samþykkt.
1. Fundargerðir
· Húsnæðisnefnd, 13. ágúst 2008, 83. fundur
Fundargerð samþykkt
· Byggingar- og skipulagsnefnd, 13. ágúst 2008, 94. fundur
Fundargerð samþykkt
2. Reglur um sí- og endurmenntun starfsmanna sveitarfélagsins
Fram kom að drög að reglum hafa verið kynnt forstöðumönnum stofnana sveitarfélagsins og rædd á sameiginlegum fundi með þeim. Bæjarráð samþykkir að vísa drögum að reglum um sí- og endurmenntun til umsagnar í skólanefnd, heilbrigðis- og öldrunarráði, menningarmálanefnd, félagsmálaráði, hafnarstjórn og til trúnaðarmanna á vinnustöðum sveitarfélagsins. Umsagnir þurfa að hafa borist í síðasta lagi 20. september næstkomandi.
3. Verð á skólamáltíðum fyrir 1. – 3. bekk Grunnskóla Hornafjarðar
Samþykkt að verð fyrir matarskammt nemenda í 1. – 3. bekk verði 269 kr. og taki hlutfallslega sömu verðbreytingum á skólaárinu og fæði fyrir nemendur í 4. – 10. bekk.
4. Tillaga að aðalskipulagsbreytingu – þjónustusvæði á Stekkanesi
Bæjarráð vísar tillögu að aðalskipulagsbreytingu – þjónustusvæði á Stekkanesi án athugasemda til afgreiðslu í bæjarstjórn.
5. Reglur um úthlutun byggingarlóða
Farið yfir drög, dagsett 14. 08. 08. Ýmsar spurningar vöknuðu við yfirferð málsins og gerðar athugasemdir. Bæjarráð samþykkir að vísa til starfsmanna að setja inn þær breytingar sem ræddar voru á fundinum og leggja málið fyrir næsta fund.
6. Stækkun á lóð við Júllatún
Erindi um lóðarstækkun var tekið fyrir á 94. fundi byggingar- og skipulagsnefndar. Þar var starfsmönnum falið að grenndarkynna erindið fyrir íbúum á svæðinu. Starfsmaður hefur rætt við forráðamenn RARIK sem sá ekki að þessi stækkun skipti máli vegna spennistöðvar sem er á svæðinu. Bæjarráð samþykkir stækkun á lóð með fyrirvara um nýtingu.
7. Tilboð í eftirlitskerfi vatnsveitu
Haukur fór yfir málið og greindi frá hvernig vatnsveitukerfi sveitarfélagsins er vaktað og hvaða hugmyndir eru um að styrkja það með öflugra eftirlitskerfi. Einnig fór hann yfir vöktun á öðrum kerfum, t.d. fráveitu, með sama kerfi. Haukur lagði til að tilboði Hind ehf. um eftirlitskerfi verði tekið og í stað þess dregið úr fyrirhuguðum framkvæmdum við vatnsveituna á þessu ári. Bæjarráð samþykkir þá tillögu og um leið tilboð Hind ehf.
8. Jarðhitaleit – framhald frá 428. fundi bæjarráðs
(Ómar Bjarki Smárason var í síma undir þessum dagskrárlið) Ómar fór yfir málið. Hann sagði að stefnt væri að því að ljúka jarðhitaleit í Skaftafelli í haust/vetur, verk sem dregist hefur frá upphaflegum áætlunum. Þá var farið yfir hugmyndir um frekari jarðhitaleit í Öræfum, Suðursveit og á Mýrum.
Bæjarráð samþykkir að farið verði í jarðhitaleit á þar til greindum svæðum í sveitarfélaginu, sbr. samkomulag við Orkusjóð sem kynnt var á 428. fundi bæjarráðs.
9. Sauðfjárveikivarnalína við Hornafjarðarfljót
Hjalti fór yfir málið og samskipti hans við Matvælastofnun. Sagði hann málið hafa verið í sama farvegi í tvo mánuði, ekkert hafa þokast áfram hjá stofnuninni.
Bæjarráð ítrekar fyrri yfirlýsingar þess efnis að sauðfjárveikivarnalínan verði treyst við austurfarveg Hornafjarðarfljóta. Kallað er eftir skýrri stefnu Matvælastofnunar í þessu máli og aðgerðum án tafar.
10. Útboðsgögn vegna jarðfyllinga á Leirusvæði
Bæjarráð samþykkir fram lögð útboðsgögn með breytingum sem gerðar voru á fundinum.
11. Innsend bréf og erindi
· Vegagerðin, dags. 11. ágúst 2008, vegna áætlunar á leiðinni Höfn – Egilsstaðir – Höfn
Bæjarráð lýsir yfir megnri óánægju með framkvæmd sérleyfishafa á þessari áætlun. Þá lýsir bæjarráð yfir furðu sinni á því að ekkert samráð skuli haft við Sveitarfélagið Hornafjörð á meðan haft er samráð við önnur sveitarfélög sem liggja að þessari áætlunarleið. Þá er þess krafist að sveitarfélaginu verði kynnt útboðsgögn áður en sérleyfið verður boðið út ný.
· Eyþóra Hjartardóttir, tölvubréf dags. 12. ágúst 2008, vegna Friðsældar.
Bæjarráð krefst þess að almennt malarnám verði heimilað í Friðsæld. Mótmælt er þeirri niðurstöðu að malarnám í Friðsæld verði ekki opið fyrir alla og farið er fram á fund með Vegagerðinni vegna þessa máls.
· Skipulags- og byggingarfulltrúi Skaftárhrepps, dags. 24. júlí 2008, vegna breytinga á aðalskipulag Skaftárhrepps 2002-2014
Til kynningar.
· Samband íslenskra sveitarfélaga, dags. 11. ágúst 2008, vegna allsherjarþings Evrópusamtaka sveitarfélaga.
Til kynningar.
12. Önnur mál
Reynir gerði gagnaver að umtalsefni. Bæjarstjóra falið að fara yfir málið með viðkomandi stjórnvöldum.
Fundi slitið kl. 18:20


