Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 427
Fundur 427
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 21. júlí 2008 kl. 09:00. Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig: Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir.
Árni bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
Haukur Ingi Einarsson var í símasambandi við fundinn á meðan rætt var um lið 1, lið 3 og lið 5 á dagskrá.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, 93. fundur 17. júlí 2008.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 104. fundur 4. júlí 2008.
Bæjaráð óskar eftir fundargerðum verkfunda vegna framkvæmda við stálþil í höfninni.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 49. fundur, 16. júlí 2008.
Bæjarráð samþykkir að hellulögn undir rennibrautum í sundlaug verði stækkuð í samræmi við tillögur frá ASK þar að lútandi. Rætt var um stoðvegg undir girðingu umhverfis lóð sundlaugar, áætlaður kostnaður er um 10,2 m.kr. Bæjarráð samþykkir stoðvegg við sundlaug sem snýr að skólamannvirkjum. Ennfremur óskar bæjarráð eftir upplýsingum hjá tæknimönnum sveitarfélagsins um framhaldið. Undir þessum lið var rætt um meint sig á íþróttasvæði, bæjarráð óskar eftir því að gerðar verði mælingar á þessu svæði.
Fundargerð samþykkt.
2. Drög að samningi um skólamáltíðir- kynnt á fundinum
Bæjarráð samþykkir að samningur um skólamáltíðir hækki í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs sem orðið hefur og mun verða. Drög að samningi um skólamáltíðir sem kynnt voru á fundinum samþykkt. Greiðsla nemenda verði skv. vísitölu júnímánaðar fyrir hvern matarskammt kr. 310 í stað kr. 300 á sl. skólaári og tekur breytingu skv. vísitölu neysluverðs. Árni Rúnar vek af fundi undir þessum lið. Guðrún Ingimundardóttir mætti í stað hans.
3. Knattspyrnuhús
· Deiliskipulagstillaga
Bæjarráð samþykkir að deiliskipulagstillögu verði vísað til bæjarstjórnar .
· Svör byggingar- og skipulagsnefndar við innsendum athugasemdum við tillöguna.
Bæjarráð samþykkir að athugasemdum og svörum við þeim verði vísað til bæjarstjórnar eftir smávægilegar breytingar á texta.
4. Almannavarnir
Bæjarráð leggur til að fjöldi í almannavarnanefnd verði óbreyttur, leitað verði til viðkomandi félaga um að skipa fulltrúa í nefndina. Stefnt verður að því að skipa í nefndina á næsta fundi bæjarstjórnar.
5. Tilboð í dúk á sundlaug
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Ossa ehf. vegna dúklagningar á sundlaug á grundvelli tilboðs fyrirtækisins dags. 1. júlí 2008 að upphæð kr. 10.060.200.-.
6. Laun bæjarstjórnarmanna
Farið yfir málið og ræddar hugmyndir um breytingar á launum bæjarstjórnar og nefnda. Vísað til starfsmanna að koma með tillögur um breytingar á launum.
7. Ósk um umsagnir á útgáfu rekstrarleyfa
· Sýslumaðurinn á Höfn, bréf dags. 10. júlí 2008, vegna endurnýjunar leyfis til sölu gistingar á Hala, umsækjandi Fjölnir Torfason.
Bæjarráð gerir ekki athugsemd við útgáfu leyfisins.
· Sýslumaðurinn á Höfn, bréf dags.4. júlí 2008, vegna endurnýjunar leyfis til sölu gistingar að Stafafelli í Lóni, , umsækjandi Bergsveinn Ólafsson.
Bæjarráð gerir ekki athugsemd við útgáfu leyfisins.
8. Innsend bréf og erindi
· Samgönguráðuneytið, bréf dagsett 24. júní 2008, varðar útibú Siglingastofnunar á Höfn.
Bæjarráð fagnar stofnun útibús Siglingastofnunar á Höfn.
· Hafnasamband Íslands, bréf dags. 30. júní 2008, tilkynning um hafnasambandsþing 2008 á Akureyri 25. og 26. september 2008.
Til kynningar
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 16. júní 2008, alþjóðleg ráðstefna um orkugjafa framtíðarinnar í samgöngum, 18. og 19. september 2008.
Til kynningar
9. Önnur mál
Næsti fundur í bæjarráði verður fyrstu viku í ágúst.
Fundi slitið kl. 12:00


