Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 220
220. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, þriðjudaginn. 19. ágúst 2003, kl 15:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi M. Pálsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Heilbrigðisnefnd Austurland 37. fundur 13. ágúst 2003 til kynningar.
Launanefnd sveitarfélaga 188. fundur 13. ágúst 2003 til kynningar.
2. Ráðning stuðningsfulltrúi í Heppuskóla
Stefán kynnti málið og lagði til að ráðinn yrði stuðningsfulltrúi í 50% starf skólaárið 2003-2004, kostnaður vegna þessa er ca. 260.000.- til áramóta en út skólaárið ca. 600.000.-. Bæjarráð samþykkir og vísar til endurskoðunar á fjárhagsáætlun.
3. Endurnýjun tölvubúnaðar
Stefán kynnti málið og afhenti minnisblað hans og Ingu Jónu dags. 13. ágúst sl.
Aukin kostnaður í Hafnar og Heppuskóla er samtals ca 800.000.- til áramóta m.v. óskir forstöðumanna. Bæjarráð tekur málið fyrir á næsta fundi.
4. Lóðarumsókn frá KASK
Bæjarráð samþykkir umsókn um stækkun lóðar við vöruport Kask í Álaugarey sbr. umsókn móttekin 16/7 2003. Settur er sá fyrirvari að svæðinu verði skipt í tvær aðskildar lóðir önnur sem geymslulóð en hin sem lóð undir olíuafgreiðslu skv. bréfi Olíufélagsins dags. 25.06.2003. Tæknideild er falið að ganga frá nýjum lóðaleigusamningum. Elín sat hjá við afgreiðslu málsins.
5. Ósk um breytingu á lóð - Álaugarvegur 7
Bæjarráð samþykkir og felur tæknideild að ganga frá málinu. Elín sat hjá við afgreiðslu málsins.
6. Innlausn á stofnfé sveitarfélagsins í Sparisjóði Hornafjarðar og nágrennis
Bæjarráð samþykkir innlausn á stofnfé sveitarfélagsins í Sparisjóði Hornafjarða og nágrennis.
7. Innsend erindi og til kynningar
Samband ísl. sveitarfélaga bréf dags. 6. ágúst 2003 - Tímabundin hækkun á framlagi í fjölskyldu- og styrktarsjóð.
8. Önnur mál
Stefán sagði frá viðræðum við Kask varðandi leiguverð í Vöruhúsi, Elín vék af fundi undir þessum lið.
Fundi slitið kl.:16:00


