Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 423
423. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 9. júní 2008 kl. 16:00.
Mætt voru: Reynir Arnarson, Guðrún Ingimundardóttir og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar, 82. fundur 3. júní 2008.
Halldóra spurði um stöðuna í húsnæðismálum og hversu margir væru á biðlista.
Guðrún upplýsti um að einstæðir foreldrar hefðu forgang og yfirleitt væri hægt að mæta þeirri þörf. Biðlistar lengjast fremur en hitt og þá vegna þess að fólk vill stærri íbúðir. Nú eru 18 á biðlista.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs, 341. fundur 2. júní 2008.
Guðrún lagði áherslu á að hlutir sem keyptir væru fyrir fjármuni gjafa- og minningarsjóðs væru merktir sem gjöf frá sjóðnum.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um stefnu í húsnæðismálum 10. fundur 2. júní 2008.
Halldóra spurði um vinnu nefndarinnar. Reynir upplýsti um að fjallað hafi verið mikið um húsnæði Grunnskóla Hornafjarðar og búið væri að lista upp allt húsnæði í eigu sveitarfélagsins.
Halldóra óskaði eftir að fá listann sendan í tölvupósti
Fundargerð samþykkt.
· Stýrihópur v. fjölskyldustefnu Hornafjarðar 6. fundur, 4. júní 2008.
Bæjarráð fjallaði um tillögu stýrihópsins. Starfsmönnum falið að fara yfir tillöguna og leggja fyrir bæjarráð að því loknu.
Fundargerð samþykkt.
2. Lóðamál
Haukur Ingi fór yfir kynningu sem hann hélt um deiliskipulag á Leirusvæði. Sagði hann að lítil sem enginn mæting hafi verið á fundinum. Tveir aðilar komu til að spyrjast fyrir um lóðir fyrir parhús. Hann greindi frá að tveir einstaklingar hafi haft samband við hann í síma.
Haukur greindi frá hugmyndum um áfangaskiptingu á Leirusvæði og kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að lóðirnar meðfram Fákaleiru verði auglýstar til úthlutunar sem og þær sem verða tilbúnar á þessu ári skv. áfangaskiptingu sem kynnt var á fundinum.
3. Ósk sýslumannsembættisins á Höfn um umsagnir á útgáfu rekstrarleyfa
· Bréf dags. 2. júní 2008, vegna sölu veitinga í söluskálanum í Nesjum, ums. Kristjana Jensdóttir.
Sveitarfélagið gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
· Bréf dags. 3. júní 2008, vegna sölu veitinga í veitingaskála í Þórbergssetri, ums. Fjölnir Torfason.
Sveitarfélagið gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
· Bréf dags. 2. júní 2008, vegna gistingar á Hrollaugsstöðum, ums. Björn B. Þorbergsson.
Sveitarfélagið gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
4. Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um sjúkratryggingar – send aftur frá heilbrigðisnefnd Alþingis.
Vísað til Hör.
5. Innsend bréf og erindi
· Úrskurðarnefnd í vátryggingarmálum, bréf dags. 27. maí 2008, til Ragnars Aðalsteinssonar hdl. og Sigríðar R. Júlíusdóttur hdl. v. Mar ehf. ásamt úrskurði nefndarinnar.
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum sínum við eiganda Mar ehf. og VÍS um málið.
· Nefnd um stöðu einstæðra og forsjárlausra foreldra og réttarstöðu barna þeirra, svo og réttarstöðu stjúpforeldra, bréf dags. 30. maí 2008, spurningar til félagsþjónustu sveitarfélaga.
Vísað til félagsmálaráðs
· Kraftur í kringum Ísland, tölvubréf dags. 2. júní 2008, ósk um styrk í formi gistiaðstöðu.
Vísað til starfsmanna.
· Samgönguráðuneytið, bréf dags. 2. júní 2008, framlag vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum fjárhagsárið 2008.
Til kynningar.
6. Önnur mál
· Hjalti greindi frá ábendingum sem hann fékk um fjölda mastra sem eru staðsett í og við Höfn. Sérstaklega var gerð athugasemd um staðsetningu stóra mastursins við Höfðaveg. Starfsmönnum falið að rifja málið upp og hafa samband við hlutaðeigandi aðila.
Fundi slitið 17.00


