Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 422
422. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 2. júní 2008 kl. 16:00.
Mætt voru: Reynir Arnarson, Árni Rúnar Þorvaldsson og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig: Haukur Ingi Einarsson og Ásta H. Guðmundsdóttir.
Reynir bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar, 92. fundur 28. maí 2008 og fundargerð 40. fundar Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs 28. maí 2008.
Halldóra Bergljót tekur undir með Björk varðandi upplýsingar um þá þjónustu sem sveitarfélagið veitir til eldri borgara og annarra og leggur til að fjármálastjóra verði falið að vinna að þessu máli. Bæjarráð samþykkir að fela fjármálastjóra að hafa umsjón með þessari vinnu. Halldóra Bergljót lýsti óánægju með að ársreikningar HSSA komi svo seint fram, einnig óskar hún eftir því að fá stöðu stofnunarinnar fyrstu fjóra mánuðina.
Árni ræddi um Gjafa og minningarsjóð, verið er að endurskoða skipulagskrá, drög verða lögð fyrir bæjarráð. Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 48. fundur 27. maí 2008.
Haukur kynnti stöðu á byggingu sundlaugar. Einnig sagði hann frá stöðu mála varðandi knattspyrnuhús, verið er að semja útboðsgögn. Halldóra Bergljót spurði hvort búið væri að gera kostnaðaráætlun vegna byggingu knattspyrnuhúss og óskar eftir rekstraráætlun fyrir kalt og heitt hús. Fundargerð samþykkt.
· Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs – suðursvæði, 7. fundur 23. maí 2008. Fundargerð til kynningar.
· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 754. fundur, 23. maí 2008. Fundargerð til kynningar.
2. Staða sveitarsjóðs 30. apríl 2008.
Ásta kynnti stöðu sveitarsjóðs 30. apríl þar kemur fram að rekstur er í samræmi við fjárhagsáætlun.
3. Bréf frá Sýslumanni á Höfn dags. 7. maí 2008.
Ósk um umsögn um breytingu á rekstrarleyfi fyrir Hótel Skaftafell ehf. dags. 2. maí 2008. Bæjarráð gerir ekki athugsemdir.
4. Innsend bréf og erindi
Samband ísl. sveitarfélaga, tölvupóstur dags. 23. maí 2008, Samráðsfundur um stefnumótun í innflytjendamálum. Bæjarráð samþykkir að tilnefna einn fulltrúa frá hverju framboði ásamt starfsmanni.
5. Skipan nýs fulltrúa í nefnd um stefnu sveitarfélagsins í húsnæðismálum.
Bæjarráð samþykkir að Árni R. Þorvaldsson komi í stað Helgu Lucíu Bergsdóttur.
6. Önnur mál
Bæjarstjóri mætti á fund kl: 17:20 og kynnti bréf frá Umhverfisráðuneytinu varðandi samning milli Skálafells og Vatnajökulsþjóðgarðs.
Samþykkt að taka málið fyrir sem sér lið á bæjarstjórnarfundi á fimmtudaginn.
Fundi slitið kl. 17:40


