Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 418
418. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 5. maí 2008 kl. 12:00.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, og Ásta Halldóra Guðmundsdóttir.
Varaformaður bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir
· Skólanefnd Hornafjarðar, 103. fundur 30. apríl 2008.
Elín lýsti yfir nánægju með jákvæða þróun í neyslu áfengis og vímuefna meðal unglinga, sbr. 3. lið á fundi skólanefndar. Undir þessum lið var einnig rætt um kjarasamninga vegna grunnskóla.
Fundargerð samþykkt
· Nefnd um íþróttamannvirki, 47. fundur 29. apríl 2008.
Bæjarráð samþykkir að taka þær tvær rennibrautir sem samþykktar voru af öllum nefndarmönnum í nefnd um íþróttamannvirki. Einnig samþykkt að setja upp þriðju rennibrautina sem samþykkt var af meirihluta nefndar um íþróttamannvirki svo fremi að kostnaður fari ekki fram yfir þá upphæð sem rætt hefur verið um að fari í rennibrautir.
Fundargerð samþykkt
2. Hafnarvík – Heppa
Árni sagði frá þeim fundum sem haldnir hafa verið um málið og ræddi um að myndaður yrði stýrihópur um verkefnið. Starfsmönnum falið að koma með tillögur um skipan í stýrihóp og drög að erindisbréfi fyrir hann.
3. Þjónustumiðstöð fyrir Menningarmiðstöð Hornafjarðar
Hjalti gerði grein fyrir hugmyndum um kaup á húsi undir þjónustumiðstöð fyrir Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Menningarmálanefnd hafði skilað áliti um málið.
Bæjarráð felur bæjarstjórna að ganga til viðræðna við eiganda hússins í samræmi við umræður á fundinum.
4. Ósk um niðurfellingu fasteignagjalda
Bæjarráð samþykkir að fella niður sorpgjald af fasteigninni.
5. Ósk um umsögn á útgáfu rekstrarleyfis til sölu gistingar og veitinga á Hótel Jökli
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
6. Innsend bréf og erindi
· Samband íslenskra sveitarfélaga, tölvupóstur dags. 28. apríl 2008, Evrópusáttmáli um jafna stöðu kvenna og karla í sveitarfélögum.
Bæjarráð vísar málinu til félagsmálaráðs.
· Jöfnunarsjóður, bréf dags, 28. apríl 2008, tilkynning um endanlegt framlag vegna nýbúafræðslu 2008.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 30. apríl 3008, skýrsla utanríkisráðherra um EES skuldbindingar sveitarfélaga.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 2. maí 2008, morgunverðarmálþing 8. maí n.k.: Er þörf fyrir nýja þjónustuhugsun hjá opinberum stofnunum?
Vísað til starfsmanna.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 2. maí 2008, niðurstöður verkefnavinnu Fornvarardagsins.
Vísað til skólanefndar og félagsmálaráðs.
7. Önnur mál
Rætt var um stöðu í viðræðum við ríkið í heilbrigðismálum og læknamálum.
Fundi slitið kl. 13:20


