Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 416
416. fundur
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Haukur Ingi Einarsson og Ásta Halldóra Guðmundsdóttir.
Reynir bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 38. fundur 14. apríl 2008.
Farið yfir drög að „Samþykktum og úthlutunarreglum fyrir Atvinnu- og rannsóknasjóð” sveitarfélagsins, dags. 21. apríl 2008. Drögunum vísað til umfjöllunar í atvinnumálanefnd.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðar, 99. fundur 24. janúar og 102. fundur 14. apríl 2008.
Halldóra spurði hvað væri að frétta af vélbátnum Hedda frænda EA, sbr. fundargerð, og hvaða kostnaður hafi fallið á hafnarsjóð vegna hans. Hjalti greindi frá þróun mála vegna veru bátsins í Hornafjarðarhöfn en ekki kom fram kostnaður vegna þessa máls. Einnig spurði hún um upptöku fyrir smábáta. Hjalti greindi frá framkvæmdum við breikkun og lengingu brautarinnar og framkvæmdum við göngubrú. Halldóra spurði um upptöku fyrir innanfjarðarbáta. Vísað til hafnarstjórnar að skoða það mál.
Fundargerðir samþykktar.
· Nefnd um stefnu í húsnæðismálum, 8. fundur 16. apríl 2008.
Reynir greindi frá vinnu nefndarinnar.
Fundargerð samþykkt.
2. Þjónustusamningur
Hjalti greindi frá stöðu mála í viðræðum við heilbrigðisráðuneytið og þeim forsendum sem gengið væri út frá í samningaviðræðum. Þá greindi hann frá atriðum sem snúa að félagsmálaráðuneytinu vegna þessa samnings.
3. Kári Schram, kvikmyndagerðarmaður í heimsókn
Kári Schram mætti á fundinn og greindi frá hugmyndum um að gera sjónvarpsþætti um Austur-Skaftafellssýslu með áherslu á mannlíf, umhverfi o.fl. Kári sagði að þætti þessa mætti nota til sýninga í sjónvarpi, til kynningar á svæðinu, til að setja inn á netið o.s.frv. Jafnframt greindi hann frá því sem hann hefur verið að kynna sér hér á svæðinu.
Samþykkt að taka málið fyrir á fundi bæjarráðs fljótlega.
4. Knattspyrnuhús
Farið yfir gögn sem dreift var á fundinum. Greint frá því að engin formleg athugasemd hafi komið fram eftir kynningu á knattspyrnuhúsinu í Nýheimum. Þá var greint frá samtölum við starfsmenn Veggerðarinnar vegna þessa máls. Einnig rætt um hæð á húsinu og klæðningu. Bæjarstjóra falið að ræða við Vegagerðina og aðra aðila sem eiga húseignir við suðurenda íþróttavallar. Starfsmönnum falið að vinna að skipulagi á svæðinu með þessa staðsetningu knattspyrnuhúss í huga.
5. Leiguverð fyrir ræktunarlönd í eigu sveitarfélagsins
Haukur greindi frá tillögum að leiguverði á spildum og hvernig það verð var fundið út. Bæjarráð samþykkir fram komnar tillögur að leiguverði á landspildum og ræktunarlöndum.
6. Tilboð í rennibrautir í sundlaug
Farið yfir fram komin tilboð í rennibrautir við nýja sundlaug. Samþykkt að vísa þeim til umfjöllunar í nefnd um íþróttamannvirki.
7. Samningur um jarðhitaleit í Skaftafelli
Hjalti fór yfir málið og greindi jafnframt frá því að áhugi væri á að leitað verði að jarðhita við Rauðaberg á Mýrum.
Gert er ráð fyrir að boruð verði tilraunahola í Skaftafelli. Rætt um hver ætti að nýta heitt vatn á svæðinu ef til kæmi. Framlag sveitarfélagsins vegna þessa samnings er 3 millj. króna og hefur þegar verið greitt.
Bæjarráð samþykkir fram lagðan samning.
8. Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um skráningu og mat fasteigna, 529.mál, starfsemi og fjármögnun Fasteignamats ríkisins
slóð http://www.althingi.is/altext/135/s/0830.html
Vísað til tækni- og umhverfissviðs.
9. Göngustígur milli Kirkjubrautar 48 og 50
Tillaga tækni- og umhverfissviðs um göngustíg samþykkt.
10. Ósk um styrk vegna ljósmynda- og málverkasýningar
Samþykkt að vísa málinu til bæjarstjóra.
11. Aðalfundarboð Sláturfélagsins Búa svf.
Samþykkt að bæjarstjóri sitji fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
12. Innsend bréf og erindi
· Félags og tryggingamálaráðuneytið, bréf dagsett 11. apríl 2008, hækkun húsaleigubóta.
Ásta greindi frá því að þetta auki kostnað sveitarfélagsins.
· Lýðheilsustöð, tölvubréf dags. 17. apríl 2008, niðurstöður evrópskrar könnunar meðal nemenda í 10. bekkjum grunnskóla á áfengis- vímuefna, og tóbaksnotkun ESPAD).
Vísað til skólanefndar og æskulýðs- og tómstundráðs
13. Önnur mál
Halldóra spurði hvers vegna úrvinnsla fyrir hverja og eina stofnun í starfsmannakönnun væri merkt trúnaðarmál. Hjalti greindi frá því að ástæða þess væri að hver og ein stofnun tæki ákvörðun um meðferð gagna fyrir sig.
Fundi slitið kl. 18:30


