Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 415
415. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 14. apríl 2008kl. 16:00.
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir , Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir
· Byggingar og skipulagsnefnd 89. fundur 27. mars og 90. fundur 9. apríl 2008
Rætt var um dagskrálið 1 varðandi ósk um stækkun á lóð við Kirkjubraut 48. Bæjarráð tekur undir bókun byggingarnefndar, málinu vísað til tækni- og umhverfissviðs. Rætt var um lið 2, staðsetning á nýjum kirkjugarði, málinu vísað til tækni- og umhverfissviðs til nánari vinnslu. Rætt var um framkvæmd á tjaldstæði og lokafrágang. Málinu vísað til starfsmanna. Rætt var um fund um vistvænan útivistarbæ með Náttúrulega ehf. Bæjarráð telur að vinna við skipulag á göngustígum eigi heima við endurskoðun á aðalskipulagi.
Fundargerðir samþykktar
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, 180. fundur 8. apríl 2008.
Fundargerð samþykkt.
· Fundargerð 22. landsþings Sambands ísl. sveitarfélaga til kynningar.
2. Áskorun frá kennurum um greiðslu frá sveitarfélaginu vegna aukins álags í starfi í vetur - áður á dagskrá 10. apríl sl.
Eftirfarandi tillaga var lögð fyrir bæjarráð: Þeir starfsmenn sem eru í starfi hjá sveitarfélaginu og HSSA 1. apríl 2008 fá greiddar launabætur, 40.000.- króna eingreiðslu m.v. 100 % starfshlutfall. Kostnaði sem af þessu hlýst sem er um 9,2 m.kr. vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun 2008.
Árni Rúnar Þorvaldsson lagði fram eftirfarandi bókun:
Í ljósi þess að þessi ákvörðun er tekin út frá öllum starfsmönnum sveitarfélagsins en ekki eingöngu út frá grunnskólakennurum tekur hann þátt í afgreiðslu málsins.
Samþykkt með tveimur atkvæðum, Björn Ingi situr hjá.
3. Reglur um úthlutun fjár til bættrar lýsingar í dreifbýli
Haukur Ingi fór yfir reglurnar og greindi frá fundum í Mánagarði og á Hrollaugsstöðum þar sem þessi mál voru m.a. til umfjöllunar. Rætt var um fyrirliggjandi drög að reglum, bæjarráð samþykkir að starfsmenn ljúki málinu m.v. umræður á fundinum.
4. Framkvæmdir
Haukur Ingi fór yfir fyrirhugaðar framkvæmdir sveitarfélagsins í sumar. Rætt var um áfangaskiptingu á framkvæmdum við Leirusvæðið.
Samþykkt að kalla verkfræðing sveitarfélagsins á fund til að fara yfir framkvæmdir og tengd tæknileg atriði. Rætt var um leigu á ræktunarlöndum í eigu sveitarfélagsins, bæjarráð samþykkir að auglýsa skuli ræktunarlönd til leigu skv. uppdrætti sem farið var yfir á fundinum.
5. Innsend bréf og erindi
· Ungmennasambandið Úlfljótur, 75. ársþings 13. mars. 2008, tillaga.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélag. 22. landsþing 4. apríl 2008, ályktun um frumvarp til skipulagslaga.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, áherslur landsþinga 2006 og 2008, framgangur og staða mála 2008.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélag, stefnumörkun og aðgerðaáætlun sambandsins á árunum 2008-2010, samþykkt, á landsþingi 4. apríl 2008.
Til kynningar.
· Jafnréttisstofa, tölvubréf dags. 9. apríl 2008, niðurstaða jafnréttisvogar sveitarfélaga.
Til kynningar.
· Samband. ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags 10. apríl 2008, fundarröð Samgönguráðs Stefnumótun í samgögnum, Samgöngur og byggðaþróun, á Hótel Sögu, 17 apríl 2008.
Til kynningar.
6. Önnur mál
Bæjarstjóri mætti á fund kl: 17:30. Sagði hann frá fundi sem hann var að koma af í heilbrigðisráðuneytinu varðandi lausn á samning milli aðila um heilbrigðismál. Málið verður tekið fyrir á næsta fundi.
Fundi slitið kl. 18:50


