Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 414
414. fundur
Yfirlit
Mættir voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir , Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar, 80. fundur 6. mars 2008.
Ásta greindi frá stöðu í húsnæðismálum hjá sveitarfélaginu.
Fundagerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar, 99. fundur 1. apríl 2008.
Björn Ingi spurðist fyrir um 3. lið, greinargerð vegna þjónustuhúsnæðis Menningarmiðstöðvar og hvort ástæða væri til að vísa málinu til nefndar um húsnæðismál. Hjalti greindi frá hvaða hugmyndir hafi verið uppi um lausn á þjónustuhúsnæði fyrir Menningarmiðstöð. Lagði hann til að bæjarráð lyki þessu máli á næstu 2 – 4 vikum.
Fundagerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar, 98. fundur 27. mars 2008.
Fundagerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 46. fundur 3. mars 2008.
Rætt um vaðlaug og frágang á henni. Greint frá því að tillaga hafi komið frá hönnuðum um að mála vaðlaug í stað þess að dúkleggja. Því hafi nefndin hafnað.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um stefnu í húsnæðismálum sveitarfélagsins, 3. fundur 5. mars, 4. fundur 11. mars, 5. fundur 27. mars og 6. fundur 1. apríl 2008 sendar í tölvupósti.
Reynir greindi frá ósk nefndarinnar um að hún fái heimild til að leita til arkitekts vegna vinnu nefndarinnar. Bæjarráð samþykkir þessa ósk nefndarinnar. Kostnaði sem kann að verða vegna þessarar vinnu vísað til endurskoðun á fjárhagsáætlun. Einnig var greint frá vinnu nefndarinnar.
Fundargerðir samþykktar.
· Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs, 6. fundur 31. mars 2008.
Hjalti greindi frá málum sem unnið hefur verið að á vegum svæðisráðs og því sem fram undan er í vinnu ráðsins.
· Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga, 752. fundur 28. mars 2008.
Reynir lagði til að bæjarráð taki undir bókun Sambands ísl. sveitarfélaga um fráveitur, sbr. 9. lið fundargerðar. Var það samþykkt samhljóða. Rætt um 2. lið, endurskoðun á Jöfnunarsjóði. Starfsmenn greindu frá þeirri vinnu sem er í gangi í ráðhúsi vegna tillagna nefndar um endurskoðun.
Bæjarráð samþykkir að ljúka málinu á fundi sínum nk. mánudag.
3. Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags
Umsókn er hafnað og framkvstj. fræðslu- og félagssviðs falið að svara umsækjanda.
4. Vinabæjarsamstarf
Bæjarráð samþykkir að slíta því norræna vinabæjarsamstarfi sem sveitarfélagið hefur tekið þátt í um alllangt skeið. Jafnframt er bæjarstjóra falið að þakka þeim sveitarfélögum sem aðilar hafa verið að þessu samstarfi.
5. Sala á Nesjaskóla
Bæjarstjóri greindi frá stöðu mála. Jafnframt lagði hann fram tillögu um skiptingu þeirra fjármuna sem fást við söluna. Tillagan gerir ráð fyrir að meginhluti þess fjár renni annars vegar til viðhalds þess húsnæðis sem sveitarfélagið á í dreifbýli og hins vegar í sérstakan atvinnu- og rannsóknarsjóð. Samþykkt að vísa tillögu bæjarstjóra um ráðstöfun fjárins til atvinnumálanefndar. Jafnframt er starfsmanni tæknideildar falið að fara yfir viðhaldsþörf húseigna sveitarfélagsins í dreifbýli. (Ásta Halldóra vék af fundi undir þessum dagskrárlið.)
6. Breytingar á æskulýðs- og tómstundamálum
Hjalti fór yfir afgreiðslu skólanefndar, æskulýðs- og tómstundaráðs og menningarmálanefndar um þetta mál. Björn Ingi fór yfir málið og ræddi einnig afgreiðslu þessara nefnda. Þá fagnaði hann þeirri hugmynd að endurskoða nefndaskipan samfara breytingum í æskulýðs- og tómstundamálum. Árni og Reynir voru á sömu skoðun um að skoða þurfi breytingar á nefndarkerfi.
Bæjarráð samþykkir að hafin verði vinna við breytingar á nefndarkerfi sveitarfélagsins. Jafnframt er samþykkt að staða tómstundafulltrúa verði auglýst.
7. Þjónustusamningur um heilbrigðis- og öldrunarmál
Hjalti gerði grein fyrir viðræðum sínum við starfsfólk í heilbrigðisráðuneytinu og í félagsmálaráðuneytinu. Hann skýrði frá þróun mála frá því að bæjarráði fundaði með fjármálaráðherra í lok febrúar. Í máli Hjalta kom m.a. fram að sú staða væri komin upp að semja þyrfti við félagsmálaráðuneytið um þann hluta samningsins sem félli undir málefni aldraðra en við heilbrigðisráðuneytið um þann hluta sem félli undir sjúkraþjónustu, heilsugæslu og heimahjúkrun. Árni benti á að málið hafi verið rætt á Alþingi í síðustu viku.
8. Vinnustaðagreining
Hjalti fór yfir könnun sem gerð var meðal starfsmanna sveitarfélagsins og greindi frá meginniðurstöðum. Bæjarstjóra falið að kynna könnunina fyrir starfsmönnum sveitarfélagsins og íbúum þess.
9. Erindi frá Lionsklúbbi Hornafjarðar um land til skógræktar
Samþykkt að verða við ósk Lionsklúbbs Hornafjarðar, sbr. bréf. Bæjarstjóra falið að ljúka málinu í samræmi við umræður á fundinum.
10. Innsend bréf og erindi
· Búnaðarfélag Mýrahrepps, Kvenfélagið Eining, Ungmennafélagið Valur, bréf dags ódagsett, varðar félagsheimilið að Holti á Mýrum.
Samþykkt að framkvstj. fræðslu- og félagssviðs fundi með bréfriturum. Málinu jafnframt vísað og nefndar sem er að fara yfir húsnæðismál sveitarfélagsins. (Hjalti vék af fundi undir þessum lið innsendra bréfa og erinda.)
· Varasjóður húsnæðismála, bréf dags,. 27. mars 2008, úthlutun rekstrarframlags vegna félagslegra íbúða árið 2007.
Til kynningar.
· Seyðisfjarðarkaupstaður, bréf dags. 27. mars. 2008, lokun starfsstöðvar Fasteignamats ríkisins á Egilsstöðum.
Bæjarráðsmenn voru því sammála að markmiðið eigi að vera það að fjölga eigi opinberum störfum á landsbyggðinni.
· Úrvinnslusjóður, bréf dags. 28. mars 2008, breytt fyrirkomulag varðandi greiðslu fyrir meðferð flokkaðs úrgangs á söfnunarstöðum.
Haukur Ingi greindi frá þeim áhrifum sem breytt fyrirkomulag varðandi greiðslu fyrir meðferð flokkaðs úrgangs hefur fyrir okkar sveitarfélag. Samþykkt að vísa því til starfsmanna að svara bréfi Úrvinnslusjóðs.
· Umhverfisstofnun, bréf dags. 31. mars 2008, ársfundur Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga árið 2008.
Vísað til umhverfisnefndar.
· Lýðheilsustöð, bréf dags. 1.apríl 2008, svör leik- og grunnskólastjóra við könnun á aðstæðum barna og unglinga með áherslu á hreyfingu og næringu. http://www.lydheilsustod.is/media/allthefurahrif/Allthefurahrif.pdf
Vísað til skólaskrifstofu.
· Stapi lífeyrissjóður, bréf dags. 31. mars 2008, fundarboð vegna ársfundar sjóðsins árið 2008.
Til kynningar.
· Jöfnunarsjóður sveitarfélaga bréf dags 31. mars 2008, áætlanir um úthlutanir framlaga á árinu 2008.
Til kynningar.
11. Önnur mál
Fundi slitið kl. 18:40


