Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 413
413. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 31. mars 2008kl. 16:00.
Mættir voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir , Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 101. fundur,18. mars 2008.
Björn Ingi spurði um hugmyndir um vigtunargjald sem ræddar voru á fundi hafnarstjórnar og var svarað hvaða fyrirkomulag væri nú á þessum málum. Einnig rætt um snjómokstur og hreinsun á akstursleiðum meðfram Miklagarði. Fram kom að prammi, sbr. 2. lið á dagskrá hafnarstjórnar, er ætlaður til að fjarlægja grjót af ákv. stöðum í höfninni. Árni spurðist fyrir um útibú Siglingastofnunar á Höfn. Einnig rætt um fyrirhugaða förgun trébátsins Hedda frænda EA, sbr. fundargerð hafnarstjórnar.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar, 90. fundur 19. mars 2008.
Árni spurði hvort eitthvað hafi heyrst frá heilbrigðisráðuneyti vegna þjónustusamnings. Hjalti greindi frá samtölum við embættismenn í heilbrigðisráðuneyti og fjármálaráðuneyti vegna þessa máls sem og samtals sem hann átti við heilbrigðisráðherra. Björn Ingi spurðist fyrir um rekstrarstöðu HSSA, sbr. 4. lið í fundargerð hör.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar,179. fundur 25. mars 2008.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar, 102. fundur 26. mars 2008.
Hjalti ræddi 3. lið á dagskrá nefndarinnar, tillögu til bæjarráðs um breytingar á æskulýðs- og tómstundamálum. Einnig greindi hann frá umræðum í æskulýðs- og tómstundaráði um málið. Lagði til að málið verði tekið til frekari umfjöllunar þegar menningarmálanefnd hefur tekið málið til umfjöllunar. Björn Ingi sagðist vera með ákveðnar efasemdir um þessar breytingar, a.m.k. á meðan nefndaskipan er óbreytt. Árni lagði áherslu á að þessi starfsmaður (tómstundafulltrúi) ynni með æskulýðs- og tómstundaráði hvar sem hann yrði vistaður skipulagslega séð. Rætt var um hugsanlegar breytingar á nefndaskipan og hvenær þær ættu að verða ef af yrði.
Björn Ingi ræddi 6. lið á dagskrá nefndarinnar, sumarfrí í leikskólum. Var hann ekki sáttur við afgreiðslu þessa máls í skólanefnd. Miklar umræður sköpuðust í framhaldinu og á það t.d. bent að önnur úrræði væru til staðar en að vera með leikskóla opna allt árið. Einnig var bent á að skoða þyrfti rekstrarkostnað ef gerð væri tillaga um leikskóla opinn allt árið. Bæjarráð var sammála um að starfsmenn skoði þetta mál, svo sem að leita eftir sjónarmiðum ýmissa aðila vegna málsins.
Bæjarráð samþykkir að Tryggingastofnun ríkisins verði sent bréf þar sem mótmælt er einhliða ákvörðun um breytingar á greiðslum stofnunarinnar til sérstakrar talþjálfunar leik- og grunnskólanema.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 76. fundur 18. mars 2008 óundirrituð en samþykkt.
Björn Ingi óskaði eftir samþykktum um vinnuskólann. Ákv. að senda á nefndarmenn yfirlit yfir vinnu skólans sl. tvö ár. Þá spurðist B.I. fyrir um jarðgerð. Haukur greindi frá stöðu mála. Haukur Ingi greindi frá fyrirlestrum og umræðum á fundi sem haldinn var 4. mars um flokkun sorps, urðun, brennslu o.fl.
Fundargerð samþykkt.
2. Gjaldskrá fyrir félagslega heimaþjónustu í sveitarfélaginu
Gjaldskrá fyrir félagslega heimaþjónustu samþykkt samhljóða.
3. Drög að samstarfssamningi um starfsemi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Hornafirði
Farið yfir drög að samningi og samþykktar ákv. breytingar á þeim drögum. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög með áorðnum breytingum.
4. Hugmyndir áhugahóps um útivist um að gera Höfn að vistvænum útivistarbæ
Bréfi og tillögum hóps áhugafólks um útivist send til umsagnar í byggingar- og skipulagsnefnd. Jafnframt var Hauki Inga falið að vera í samskiptum við áhugahópinn.
5. Samrekstur stofnana sveitarfélagsins – gögn áður send
Samþykkt að vísa tillögum til afgreiðslu í bæjarstjórn.
6. Jarðhitaleit – sérstakt átak 2008 -2010 sem mótvægisaðgerð ríkisstjórnarinnar
Hjalti greindi frá viðræðum við Ómar Bjarka Smárason hjá Stapa ehf. vegna jarðhitaleitar í sveitarfélaginu. Samþykkt að sækja um fjármagn til jarðhitaleitar á Mýrum, Suðursveit og Öræfum, í samræmi við „jarðhitaleit - sérstakt átak 2008 – 2010 sem mótvægisaðgerð ríkisstjórnarinnar”.
7. Innsend bréf og erindi
· Sigurður Þráinsson Jarðaskrifstofu, tölvubréf dags. 17. mars 2008, málefni Friðsældar.
Hjalti greindi frá samskiptum við Sigurð Þráinsson vegna þessa máls.
Bæjarráð Hornafjarðar leggur áherslu á að náma í Friðsæld verði opin fyrir efnistöku vegna framkvæmda við lagningu nýs Hringvegar um Hornafjörð og aðrar mikilvægar framkvæmdir á svæðinu, s.s. framkvæmdir við höfnina og húsbyggingar. Bæjarráð Hornafjarðar leggur til að gengið verði til samninga við landeigenda Dynjanda um umferðarrétt að námunni sem er í eigu ríkisins í umsjón landbúnaðarráðuneytisins. Náist ekki samningar um umferðarrétt leggur bæjarráð til að kvaddir verði til matsmenn til að leysa úr ágreiningi ef upp kemur. Bæjarráð Hornafjarðar leggur áherslu á að unnið verði fljótt og vel að úrlausn málsins enda liggur nú þegar fyrir ósk um efnistöku í tengslum við hafnarframkvæmdir.
· Ríkiskaup, tölvubréf dags. 18. mars 2008, fréttaskot.
Til kynningar.
· Samgönguráðuneytið, bréf dags. 4. mars 2008, uppgjör framlaga út Jöfnunarsjóði vegna ársins 2007.
Í samantekt framkvæmdastjóra fjármálasviðs kemur fram að áætlaðar greiðslur Jöfnunarsjóðs, samkvæmt yfirliti sjóðsins fyrir árið 2008, eru samtals um 362,8 millj. en fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2008 gerir ráð fyrir 349,7 millj. Þá á Jöfnunarsjóður eftir að gera áætlun um tekjujöfnunarframlag.
· Félag leikskólakennara, bréf dags. 19. mars 2008, ályktanir aðalfundar félagsins.
Til kynningar.
· Lex lögmannsstofa, bréf dags. 25. mars 2008, varðar hagsmuni hóps fasteignaeigenda vegna undirbúnings framkvæmda við hringveg um Hornafjörð.
Bæjarráð bendir á að ekki hafi verið auglýst breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna fyrirhugaðs Hringvegar. Þá hafi verið haldnir þrír borgarafundir vegna málsins auk annarrar kynningar. Meðferð málsins hefur öll verið í samræmi við góða stjórnsýslu þvert á það sem sagt er í bréfinu.
· Landgræðsla ríkisins, bréf dags. 25. mars 2008,varðar samráð/samstarf sveitarfélagsins um héraðsáætlanir landgræðslunnar.
Haukur Ingi Einarsson verður tengiliður sveitarfélagsins.
· Skólahreysti, bréf í mars 2008, ósk um styrk við verkefnið. Slóð http://www.skolahreysti.is/
Vísað til skólaskrifstofu
· Skipulagsstofnun, tölvubréf dags. 26. mars 2008, Skipulagsdagurinn 2008 – samráðsfundur stofnunarinnar og sveitarfélaga, ósk um ábendingar sveitarfélagsins um umræðuefni.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
8. Önnur mál
Fundi slitið kl. 18:20


