Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 412
412. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 17. mars 2008 kl. 16:00.
Mættir voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 100. fundur, 22. febrúar 2008.
Fundargerð samþykkt
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar, 98. fundur 11. mars 2008.
Fundargerð samþykkt
· Stýrihópur vegna fjölskyldustefnu Hornafjarðar, 1. fundur 19. febrúar, 2. fundur 27. febrúar, 3. fundur 5. mars og 4. fundur 12. mars. 2008.
Fundargerðir samþykktir
2. Knattspyrnuhús
Bæjarráð samþykkti að sýna þær tillögur sem komnar eru varðandi staðsetningu, stærð og fl. í tengslum við þær sýningar sem Menningarmiðstöð stendur fyrir um páskana.
3. Tillaga til bæjarráðs um breytingar á æskulýðs- og tómstundamálum
Hjalti kynnti framlagða tillögu og sagði þær byggja á tillögum stýrihóps um félagslíf grunnskólanema. Bæjarráð vísar tillögunum til Æskulýðs- og tómstundaráðs, Menningamálanefndar og Skólanefndar til umsagnar.
4. Málefni Hvata ehf. og Nýherjabúða ehf. - kynnt á fundinum
Hjalti upplýsti stöðu mála.
5. Hugmyndir að þáttagerð og gerð kynningamynda
Hjalti gerði grein fyrir hugmynd Kára G. Schram um kynningamynd um Austur-Skaftafellssýslu. Bæjarstjóra falið að koma á fundi Kára og bæjarráðs.
6. Innsend bréf og erindi
· Risør kommune, bréf dags. 21. febrúar 2008, vinabæjasamstarf.
Til kynningar, málið tekið upp á næstunni.
· Samband ísl. sveitarfélaga, bréf dags. 4. mars 2008, skólamálastefna sambandsins ásamt greinargerð.
Málinu vísað til Skólanefndar
· Ályktanir frá aðalfundi Sindra.
Til kynningar
· Neytendastofa, bréf dags. 7. mars s.l. um seðilgjöld og aðrar sambærilegar fylgikröfur.
Til kynningar
· Lánasjóður sveitarfélaga, bréf dags. 11. mars 2008, aðalfundur sjóðsins 4. apríl n.k.
Bæjarráð samþykkir að Hjalti Þór Vignisson verði fulltrúi sveitarfélagsins á aðalfundinum.
· Unicef á Íslandi, bréf dags. 13. mars 2008, ritið Barnasáttmálinn.
Til kynningar
· Ríkiskaup, tölvubréf dags. 13. mars 2008, kynningarfundur um tölvusamningana, síma og þ.h. 18. mars 2008.
Til kynningar
7. Önnur mál
Hjalti lagði fram kostnaðaráætlun vegna túnræktar frá Búnaðarsambandi Suðurlands dags. 16. mars. sl. Svæðið er um ræðir nær frá ristarhliði við bæjarmörkin að Gömlubúð. Bæjarráð vísar málinu til Byggingar- og skipulagsnefndar.
Halldóra Bergljót spurðist fyrir um fjármögnum framkvæmda við sundlaug og knattspyrnuhús vegna gengislækkunar ísl. krónunnar.
Fundi slitið kl. 17:25


