Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 410
410. fundur
Fundur var haldinn í bæjarráði Hornafjarðar á Hótel Klöpp í Reykjavík í tengslum við ferð bæjarstjóra og bæjarráðs til Reykjavíkur 26.febrúar 2008 kl. 17:00.
Mættir voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri.
Reynir bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir
· Byggingar og skipulagsnefnd 88. fundur 19. febrúar 2008.
Bæjarráð tekur undir álit byggingar- og skipulagsnefndar um að merkja reiðvegina meðfram þjóðveg 1, nánar tiltekið frá pípuhliði að Almannaskarði annars vegar og að afleggjara við Stekkhól hins vegar. Bæjarráð felur starfsmönnum á tækni- og umhverfissviði að fylgja þessu eftir við Vegagerðina.
Fundargerð samþykkt.
· Gjafa og minningarsjóður Skjólgarðs 39. fundur 2008.
Umræða skapaðist um úthlutunarreglur sjóðsins. Bæjarráð tekur undir bókun gjafa- og minningarsjóðs um að mikilvægt sé að endurskoða þær.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð 89. fundur 20. febrúar 2008.
Björn Ingi spurði um skerðingar á framlagi heilbrigðisráðuneytisins til heilsugæslu, flutning á vistunarmati til Landlæknisembættisins og sumarfrí leikskóla sbr. umræðu á HÖR fundi.
Árni greindi frá því að skerðinga á framlagi til heilsugæslu væri til skoðunar og óskaði hafi verið eftir rökstuðningi frá ráðuneytinu um málið. Einnig upplýsti hann um breytingar á vistunarmati. Í umræðum kom fram að mikilvægt væri að tryggja óbreytt vistunarmát með nýjum þjónustusamningi.
Mikil umræða skapaðist um sumarfrí á leikskólum. Bæjarráð telur mikilvægt að skólanefnd fjalli um málið og leiti eftir sjónarmiðum frá HSSA um málið.
Árni benti á umræðu um námsleyfi starfsmanna og lagði áherslu á að starfsmenn sitji við sama borð hvað þetta varðar óháð í hvaða stofnun viðkomandi starfar.
Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundaráð 97. fundur 21. febrúar 2008.
Bæjarráð felur starfsmönnum að útfæra hugmyndir starfshóp um félagslíf grunnskólanemenda og leggja fyrir bæjarráð fyrir páska.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 75. fundur 14. febrúar 2008.
Rætt um niðurgreiðslur vegna framkvæmda við fráveitu falli niður í lok árs miðað við núverandi reglur. Bæjarráð felur bæjarstjóra að kanna hagsmunagæslu Sambands íslenskra sveitarfélaga í þessum málum.
Einnig skapaðist mikil umræða um að halda göngustígum við og umhverfi þeirra haldið snyrtilegu.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 45. fundur 20. febrúar 2008.
Bæjarráð samþykkir að snjóbræðslukerfi verði lagt undir hellur við Heppuskóla og það svæði tengt við fyrirhugaða hellulögn við nýja sundlaug.
Ekki var talin ástæða til að setja sjóbræðslulagnir á göngustíg í áttina að Hafnarskóla, hann hverfur að mestu leyti þegar farið verður í næsta áfanga byggingarinnar.
Fundargerð samþykkt.
2. Samrekstur stofnana sveitarfélagsins
Bæjarráð ræddi fyrirliggjandi greinargerð frá starfsmönnum dags. 20. febrúar 2008. Samþykkt að vísa greinargerðar til Hafnarstjórnar og kynna fyrir starfsmönnum. Bæjarráð mun taka málið aftur fyrir þegar kynning hefur farið fram.
3. Samstarf sveitarfélaga
Rætt um fund sem bæjarráð og bæjarstjóri áttu með framkvæmdastjóra Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) um hugsanlegt samstarf Sveitarfélagsins Hornafjarðar við SASS þann 27. febrúar 2007. Bæjarráð leggur áherslu á að fá fund með formanni og framkvæmdastjóra SSA sem fyrst vegna málsins. Einnig felur bæjarráð bæjarstjóra að leita eftir frekari upplýsingum um kostnað við aðild að SASS samanborið við SSA.
4. Fjallskilasamþykkt drög 18. febrúar 2008
Samþykkt og vísað til bæjarstjórnar
5. Deiliskipulag á Leirusvæði
Tillögur að deiliskipulagi samþykkt og vísað til bæjarstjórnar. Bæjarráð leggur áherslu á að kostnaðaráætlun liggi fyrir um undirbúning lóðanna áður en áfangaskipting er ákveðinn.
6. Skipulagsvinna vegna gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs
Samþykkt og vísað til bæjarstjórnar.
7. Minnisblað formanns svæðisráðs vegna vinnu að verndaráætlun fyrir suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs
Bæjarráð leggur áherslu á góða samvinnu yfirstjórnar, svæðisráðs og starfsmanna þjóðgarðsins við bæjaryfirvöld. Bæjarráð leggur til að minnisblaðið verði lagt fyrir byggingar- og skipulagsnefnd.
8. Samþykkt um fráveitur í sveitarfélaginu
Gerð grein fyrir breytingum á samþykktinni. Samþykkt og vísað til bæjarstjórnar.
9. Drög að verksamning um urðun úrgangs
Verksamningur samþykktur.
10. Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um meðhöndlun úrgangs 327. mál
slóð: http://www.althingi.is/altext/135/s/0522.html
Til kynningar.
11. Skólamál
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi hans og framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs með skólastjórum Grunnskóla Hornafjarðar.
12. Innsend bréf og erindi
· Verkefnið Lífshlaupið, hvatningar og átaksverkefni ÍSÍ, bréf dags, 13. febrúar 2008.
Vísað til æskulýðs- og tómstundarráðs.
· Varasjóður húsnæðismála, bréf dags. 14. febrúar 2008, sölu- og rekstrarframlög.
Vísað til fjármálastjóra.
· ÍSÍ, bréf dags. 14. febrúar 2008, Ísland á iði.
Vísað til æskulýðs- og tómstundarráðs.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvupóstur 19. febrúar 2008, alþjóðleg ráðstefna um forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum.
Til kynningar
· Lýðheilsustöð, ódagsett bréf, 9. Norræna lýðheilsuráðstefnan.
Til kynningar
13. Önnur mál
Rætt um fundi sem bæjarráð og bæjarstjóri áttu með fjármálaráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, iðnaðarráðherra, framkvæmdastjóra
Samtaka sveitarfélaga á Suðurlandi og stjórnendum Flugstoða dags. 27. febrúar.Fundarferð fram haldið tvo næstu daga á eftir. Bæjarstjóra falið að taka saman greinargerð um ferðina og senda til fjölmiðla staðarins og annarra bæjarstjórnarmanna eftir yfirferð bæjarráðs.
Fundi slitið kl. 20:00


