Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 408
408. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 11. febrúar 2008 kl. 16:00.
Mættir voru: Árni Rúnar Þorvaldsson varaformaður, Elín Magnúsdóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Árni bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir
· Nefnd um húsnæðismál, 1. fundur 21. janúar 2008.
Ásta gerði fyrir vinnu við gagnaöflun, sbr. fundargerð.
Fundargerð samþykkt
· Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs – suðursvæði, 4. fundur, 4. febrúar 2008.
Árni kynnti undir þessum lið fyrirhugaða heimsókn umhverfisráðherra nk. miðvikudag ásamt formanni stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem málefni þjóðgarðsins verða m.a. til umfjöllunar á fundum.
Til kynningar.
2. Drög að stöðu bæjarsjóðs um áramót 2007/2008
Ásta fór yfir útsend gögn og svaraði fyrirspurnum.
3. Staðarval fyrir knattspyrnuhús
Farið yfir útsend gögn, þ.e. mismunandi staðsetningar og hæð húsa sem og kostnaðaráætlanir. Samþykkt að bæjarráð fari á höfuðborgarsvæðið til að skoða knattspyrnuhús og hitta hönnuði og arkitekta.
4. Vefmál
Sveinbjörn Imsland, fyrir hönd Hátíðni hf., kom inn á fundinn að ósk bæjarráðs til að svara spurningum um vefmál. (Sveinbjörn vék af fundi.)
Tekin fyrir drög að svari til Galdurs ehf. vegna fyrirspurnar fyrirtækisins um val á tilboði í stjórnsýsluvef sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir að senda fyrirtækinu fram lögð drög að svari.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Hátíðni hf. að nota vefforritið “Eplica” í stað “PHP” sem var í upphaflegu tilboði. Tilboðið byggir á því að greiðslur verði þær sömu og við áður samþykkt tilboð, samþykkt á 405. fundi bæjarráðs þann 21. janúar sl.
5. Ósk starfsmanns um laun í námslotum
Bæjarráð vísar til starfsmanna að ljúka erindi (ósk) starfsmanns og segir jafnframt eðlilegt að starfsmenn sveitarfélagsins sitji við sama borð í þessum efnum. Bæjarráð samþykkir að fela starfsmönnum að hefja vinnu við reglur um endurmenntun og/eða framhaldsnám starfsmanna sveitarfélagsins.
6. Innsend bréf og erindi
· Landgræðsla ríkisins, bréf dags. 4. febrúar 2008, kynning á verkefninu Héraðsáætlanir Landgræðslunnar.
Vísað til umhverfisnefndar.
· Skipulagsstofnun, tölvubréf dags. 5. febrúar 2008, Skipulagsárið 2008, dagskrá atburða á vegum Skipulagsstofnunar, slóð: http://www.skipulag.is/focal/webguard.nsf/Attachment/Skipulagsstofnun_dagskra_2008/$file/Skipulagsstofnun_dagskra_2008.pdf- Athygli er vakin á að skjalið er ekki í útprentanlegu formi, hvorki viðhengið né skjalið á vef Skipulagsstofnunar.
Vísað til starfsmanna.
· Vegagerðin, afrit af bréfi til Ferðamálafélagsins dags. 30. janúar 2008, vegur og brú yfir Sultartungnaá.
Bæjarráð leggur ríka áherslu á að umræddur vegur og brú verði greiðfær með vorinu.
7. Önnur mál
Framtíð nýsköpunar- og frumkvöðlastarfs á Suðausturlandi, minnispunktar bæjarstjóra.
Í minnispunktunum er m.a greint frá fyrirhugaðri aðkomu Nýsköpunarmiðstöðvar að frumkvöðlastarfi á Suðausturlandi. Einnig greint frá fundum með starfsmönnum Nýsköpunarmiðstöðvar. Markmiðið er eftir sem áður að efla samfélagið og styrkja stoðir þess. Með fyrirhuguðum breytingum er verið að leggja niður Frumkvöðlasetur Austurlands og Nýsköpunarmiðstöð tekur við í stað þess. Málið verður tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
Fundi slitið kl. 18:


