Bæjarráð

Fundargerð bæjarráðs 407

407. fundur

Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn  4. febrúar 2008  kl. 16:00.

Mættir voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson.  Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.

Reynir bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:

1.       Fundargerðir.

·         Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 36. fundur, 30. janúar 2008.

Atvinnumálanefnd samþykkti eftirfarandi tillögur á fundi sínum:

1.  Að lagðar verði allt að 2 milljónir króna til að undirbúa vinnslu og útflutning á vatni í héraðinu.  Frumkvöðlasetur Austurlands hefur unnið verkefna- og kostnaðaráætlun vegna verkefnisins sem gerir ráð fyrir kostnaði upp á 2 miljónir.  Atvinnumálanefnd telur rétt að leitað verði til setursins að vinna verkefnið en leggur jafnframt áherslu á að aðrir hagsmunaaðilar leggi fram fjármuni í verkefnið.

2. Að lögð verði allt að 1 milljón króna  í atvinnuuppbyggingu í tengslum við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs.  Að mati atvinnumálanefndar er þessi vinna á frumstigi og telur nefndin mikilvægt að gerð verði nákvæm verk- og kostnaðaráætlun.  Þá leggur nefndin til að leitað verði til Háskólasetursins á Hornafirði, Frumkvöðlaseturs Austurlands ehf. og Ríki Vatnajökuls ehf. til að finna verkefninu réttan farveg.

3. Að lagðar verði 5,8 miljónir króna í verkefni sem tengjast matvælaframleiðslu.  Atvinnumálanefnd leggur að þessu sinni áherslu á að verkefni á sviði sjávarútvegs verði styrkt sérstaklega.  Matís ohf. og Frumkvöðlasetur Austurlands ehf. hafa verið í samstarfi við stofnanir og fyrirtæki um slík verkefni og leggur Atvinnumálanefnd til að þessir aðilar verði fengnir til að vinna þetta verkefni.

Tillögur atvinnumálanefndar um ráðstöfun á úthlutuðu fé félagsmálaráðuneytisins vegna mótvægisaðgerða samþykkt.

Rætt var um fram komnar hugmyndir um fjallskil.

Fundargerð samþykkt.

·         Starfshópur um félagslíf grunnskólanema, 9. fundur.

Fundargerð samþykkt.

·         Ungmennaráð Hornafjarðar, 2. fundur 25. janúar 2008.

Fundargerð samþykkt.

2.       Málefni Jöklaseturs

Rætt var um rekstrarkostnað og með hvaða hætti megi ná betri tökum á rekstrinum.  Framlögð ósk stjórnar Jöklaseturs, um aukaframlag að upphæð kr. 2 millj. vegna rekstrarársins 2007, samþykkt. Bæjarráð ítrekar að leitað skuli eftir samningum við Vatnajökulsþjóðgarð um jöklasýninguna.  Bæjarstjóra jafnframt falið að ræða við stjórn setursins um reksturinn.

 3.       Frummatsskýrsla vegna hringvegar um Hornafjörð

Niðurstaða matsvinnu Vegagerðarinnar vegna nýs hringvegar um Hornafjörð er að mæla með svokallaðri leið 1.  Um þrjár meginleiðir er að ræða skv. tillögu Vegagerðarinnar en auk þeirra leggur Vegagerðin fram mismunandi útfærslu á þessum þremur leiðum, sbr. bls. 13 í frummatsskýrslu. Umhverfisáhrif, umferðaröryggi og greiðfærni ráða mestu um afstöðu Vegagerðarinnar. Bæjarráð Hornafjarðar er ósammála niðurstöðu Vegagerðarinnar í veigamiklum atriðum og leggur þar til grundvallar auknar vegstyttingar, umferðaröryggi og að draga sem mest úr áhrifum á hefðbundin landbúnaðarafnot. 

 Skipta má fyrirhugaðri framkvæmd í þrennt. Í fyrsta lagi liggur fyrirhugð leið um sveitina Mýrar sem er vestan Hornafjarðarfljóta. Í öðru lagi um Skógey sem er á milli Hornafjarðarfljóta og Hoffellssár. Í þriðja lagi liggur leiðin um Nesjasveit sem er austan Hornafjarðarfljóta. 

 Á Mýrum tekur Vegagerðin leið 1 umfram aðrar leiðir sem er með öllu óskiljanlegt vegna umferðaröryggis.  Leið 1 liggur á sama stað og núverandi vegur við Holtabæi og sveigir til suðurs á milli Holts og Tjarnar.  Bæjarráð Hornafjarðar telur mikilvægt að nýtt vegstæði liggi eins og leið 3 gerir ráð fyrir, þ.e. að sveigja frá núverandi hringvegi um 2,5 km fyrir austan Hólm og þaðan liggur hún sunnan við Stóraból og þverar Hornafjarðarfljót við móts við Skógey.  Með þessu fækkar vegtengingum stórlega og eykur öryggi íbúa og vegfarenda.

 Í matsvinnu Vegagerðarinnar segir á bls. 14 að hvaða leið sem sé valin um Skógey séu áhrifin sambærileg.  Undir þetta mat getur bæjarráð Hornafjarðar tekið.

 Í Nesjum liggur leið 1 rétt norðan við ósa Laxá og þverar hana rétt neðan við  Borgir og sveigir inn á núverandi hringveg við Árnanes.  Bæjarráð Hornafjarðar vill benda á að á þessum slóðum er afar þétt byggð og mikil landbúnaðarstarfsemi.  Á þessari leið liggur leiðin, skv. tillögu Vegagerðarinnar, yfir skeiðbraut hestamanna, yfir gróin tún í Borgum og yfir ræktunarlönd Akurness og Seljavalla.  Ennfremur mun þessi leið ekki auka umferðaröryggi fram yfir núverandi ástand því vegtengingar verða jafnmargar og áður.  Bæjarráð Hornafjarðar leggur áherslu á að vegurinn um Nesjasveit liggi sunnan við Árnanes eins og leið 3 gerir ráð fyrir.  Sú veglagning styttir vegalengdir mest innan héraðsins og eykur umferðaröryggi stórlega umfram tillögu vegagerðarinnar. 

Stytting vegalengda innan Sveitafélagsins Hornafjarðar er grundvallaratriði að mati bæjarráðs Hornafjarðar. Sú umtalsverða stytting sem verður samfara því að fara leið 3 samanborið við að fara leið 1 er það mikil að bæjarráð Hornafjarðar telur að almannahagsmunir liggi við. 

 Bæjarráð Hornafjarðar er sammála um að leið 2 hafi umtalsverða ókosti í för með sér. Í fyrsta lagi hefur leiðin umtalsverð áhrif á landslag á austasta hluta leiðarinnar, þ.e. eftir að hún tekur land við Dilksnes. Þar er gert ráð fyrir að hún liggi í gegnum stór klapparholt sem geta talist einkennandi fyrir landslag á þessum slóðum. Ennfremur liggur hún yfir nær samfelldar sjávarfitjar á milli Árnaness og Dilksness. Þá liggur hún mun nær Árnanesbæjunum en leið 3. Bæjarráð Hornafjarðar hafnar því að leið 2 verði farin.

 Bæjarráð Hornafjarðar telur einnig einsýnt að leið 3 hafi minni áhrif á landslag en leið 2 auk þess að leið 3 sker jarðir landeigenda í sveitafélaginu minnst þeirra þriggja leiða sem í mati eru. Helsti munur á milli leiðanna felst í því að leið 3 liggur yfir Flóa í Skarðsfirði sem er á náttúruminjaskrá. Á hinn bóginn liggur leið 3 ekki í sama mæli yfir sjávarfitjar og leið 2. Einnig bendir flest til þess að leið 3 hafi ekki jafn mikil áhrif á landslag og leið 2.  

 Til að milda umhverfisáhrif leiðar 3 leggur sveitarfélagið til að leiðin liggi ekki yfir Skarðsfjörð eins og núverandi tillaga gerir ráð fyrir heldur liggja austan Hafnarvegar í samræmi við gildandi aðalskipulag sveitarfélagsins. Þessi leið mun ekki hafa umhverfisáhrif á Skarðsfjörð.  

 Leiðir 2 og 3 hafa það báðar sammerkt að stór hluti Nesjasveitar liggur ekki lengur í alfaraleið. Bæjarráð Hornafjarðar telur það mikilvægt að merkingar og auglýsingar verði settar upp við gatnamót þjóðvegar og Hafnarvegar þar sem þjónusta í sveitafélaginu verði auglýst. 

 Í frummatsskýrslu kemur fram á bls. 22 að kostnaður leiðar 1 sé samtals 2,324 milljarða kr. en leiðar 3 samtals 2,977 milljarða kr.  Sveitarfélagið hefur áður gert athugasemdir við fjárhagslegt mat þessara kosta og telur útreikninga Vegagerðarinnar ótrúverðuga.  Í útreikningum á kostnaði á leið 1 er ekki teknar inn í endurbætur á vegarkaflanum frá Hólmi að Holtum og einnig frá Árnanesi að Haga. Til að samanburður á milli valkosta Vegagerðarinnar sé sanngjarn þarf að taka endurbætur á þessum köflum með í dæmið.   Fjárhagslegur munur á milli þessara kosta er því hverfandi að mati bæjarráðs og getur því ekki legið til grundvallar þegar endanlegt vegstæði verði valið.

 Það er því niðurstaða bæjarráðs Hornafjarðar að leið 3 í tillögum Vegagerðarinnar sé besti kosturinn af þeim leiðum sem hún leggur til að verði metnar í framkvæmdamati. Ekki síst vegna bætts umferðaröryggis sem og verulegra styttingu á vegalengdum innan sveitafélagsins sem leið 3 hefur í för með sér. Niðurstaða bæjarráðs Hornafjarðar er því að leið 3 verði fyrir valinu með þeirri breytingu að ekki verði farið út í Skarðsfjörð með veginn.

4.       Greinargerð starfshóps um félagslíf grunnskólanema á Hornafirði

Eygló Illugadóttir, formaður starfshóps um félagslíf grunnskólanema, mætti á fund nefndarinnar undir þessum lið. Fór hún yfir vinnu og helstu tillögur nefndarinnar.

Hjalti þakkaði starfshópnum fyrir vinnuna. Hann gerði að umtalsefni áherslu hópsins á sérstakan starfsmann sem veitti félagsmiðstöðinni forstöðu. Sagði Eygló algjöra samstöðu hafa verið í nefndinni um það mál. Í sambandi við kaflann um forvarnir benti Hjalti á nýjan samning sveitarfélagsins og Sindra þar sem félaginu er uppálagt að móta sér forvarna- og lýðheilsustefnu. Í sambandi við húsnæði félagsmiðstöðvar sagði hann mikilvægt að átta sig á stærð húsnæðisins í fermetrum talið. Spurði um Sindrabæ, hvernig hann falli að hugmyndum starfshópsins og einnig hvort félagsmiðstöð gæti tengst byggingu sem hýsa á sal grunnskólans í framtíðinni.

Starfsmönnum falið að fara yfir tillögur nefndarinnar, þar á meðal ráðningu starfsmanns og gera bæjarráði grein fyrir sínum hugmyndum.  

 5.       Humarhátíð 2008

Bæjarráð samþykkir að Humarhátíðarnefnd fái kr. 300.000 að auki til að halda Humarhátíð líkt og gert var í fyrra. Heildarframlag til nefndarinnar verði þannig 1200 þús. krónur. Björn Ingi sagði það sína skoðun að sveitarfélagið þurfi að koma sýnilegar að hátíðinni, svo sem með ýmsum viðburðum.

 6.       Tilboð í malbikun

Haukur Ingi gerði grein fyrir tilboði í malbik og kom fram að verð sé hagstæðara ef meira magn er keypt.  Bæjarráð samþykkir að fresta malbikunarframkvæmdum á árinu 2008 til ársins 2009.  Gert er ráð fyrir að leggja 70 m. kr. í malbikunarframkvæmdir á árinu 2009.

 7.       Vefmál

Bæjarráð hefur áður samþykkt að taka tilboði Hátíðni enda lægsta tilboðið. Jafnframt var samþykkt svar til Galdurs ehf. vegna fyrirspurnar fyrirtækisins. Samþykkt að forsvarsmaður Hátíðni komi á fund bæjarráðs í næstu viku til að ræða hugmyndir um áframhaldandi vinnu að stjórnsýsluvef.

 8.       Gjaldskrá fyrir hreinsun rotþróa

Gjaldskrá fyrir hreinsun rotþróa samþykkt.

 9.       Framkvæmdayfirlit vegna 3ja ára áætlunar ?verður sent út í tölvupósti

Áætlunin gerir ráð fyrir að aðalsjóður framkvæmi fyrir 500 m.kr. og  taki langtímalán að upphæð 50,0 m.kr. á móti eru afborganir langtímalána 251,02 m.kr.  Langtímalán aðalsjóðs lækka því á tímabilinu um 200,0 m.kr. Ný  langtímalán  B-hluta að upphæð 32,0 m.kr. á móti afborgun langtímalána að upphæð 64,8 m.kr. Langtímalán B-hluta lækka því á tímabilinu um 32,8 m.kr.   Lagður fram listi með fyrirhuguðum framkvæmdum 2009-2011.

10.    Afskriftir viðskiptaskulda

Bæjarráð samþykkir að afskrifa viðskiptaskuldir, að upphæð kr. 4.925.744.-, sbr. framlagt minnisblað.

11.    Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um samgönguáætlun 292. mál

Til kynningar.

·                     http://www.althingi.is/altext/135/s/0332.html

Til kynningar.

12.    Innsend bréf og erindi

·         Landsskrifstofa Staðardagskrár 21, Ólafsvíkuryfirlýsingin, bréf dags. 18. janúar   2008.

Vísað til umhverfisnefndar.

·         Samband ísl. sveitarfélaga/Samgönguráðuneytið,fundur um almenningssamgöngur á Grand hótel í Reykjavík, 7. febrúar 2008.

Til kynningar.

·         Saman-hópurinn, bréf dags. 29. janúar 2008, ósk um styrk.

Umsókn hafnað.

·         Sverrir Scheving Thorsteinsson, dags. 30. janúar 2008, varðandi ósk um frest til ákvarðana um söfn hans.

Bæjarstjóra falið að ljúka málinu á grundvelli þess samnings sem gerður var 15. maí 2007.

·         Hulda Björk Svansdóttir, tölvupóstur 31. janúar 2007, ósk um stuðning sveitarfélagsins við heilsuverkefnið ?Heil og sæl í vinnunni?.

Starfsmönnum í ráðhúsi falið að koma með tillögu um málið.

13.    Önnur mál

·         Greint frá því að þorrablótsnefnd Nesja- og Lónmanna, Umf. Máni og Kvenfélagið Vaka hafi fært Mánagarði að gjöf 80 stóla að andvirði kr. 900 þús. Bæjarráð þakkar þessa rausnarlegu gjöf. 

 

Fundi slitið kl. 17:45

 




Fundargerðir

Dag.grein
17.05.2013 Fundargerð bæjarráðs 632.
13.05.2013 Fundargerð bæjarráðs 632
06.05.2013 Fundargerð bæjarráðs 631
29.04.2013 Fundargerð bæjarráðs 630
22.04.2013 Fundargerð bæjarráðs 629
15.04.2013 Fundargerð bæjarráðs 628
02.04.2013 Fundargerð bæjarráðs 627
18.03.2013 Fundargerð bæjarráðs 626
11.03.2013 Fundargerð bæjarráðs 625
04.03.2013 Fundargerð bæjarráðs 624
25.02.2013 Fundargerð bæjarráðs 623
18.02.2013 Bæjarráð Hornafjarðar 622
12.02.2013 Fundargerð bæjarráðs 621
04.02.2013 Fundargerð bæjarráðs 620
28.01.2013 Fundargerð bæjarráðs 619
21.01.2013 Fundargerð bæjarráðs 618
14.01.2013 Fundargerð bæjarráðs 617
07.01.2013 Fundargerð bæjarráðs 616
18.12.2012 Fundargerð bæjarráðs 615
10.12.2012 Fundargerð bæjarráðs 614
03.12.2012 Fundargerð bæjarráðs 613
26.11.2012 Fundargerð bæjarráðs 612
19.11.2012 Fundargerð bæjarráðs 611
12.11.2012 Fundargerð bæjarráðs 610
05.11.2012 Fundargerð bæjarráðs 609
29.10.2012 Fundargerð bæjarráðs 608
22.10.2012 Fundargerð bæjarráðs 607
15.10.2012 Fundargerð bæjarráðs 606
08.10.2012 Fundargerð bæjarráðs 605
08.10.2012 Fundargerð bæjarráðs 605
01.10.2012 Fundargerð bæjarráðs 604
24.09.2012 Fundargerð bæjarráðs 603
10.09.2012 Fundargerð bæjarráðs 602
03.09.2012 Fundargerð bæjarráðs 601
27.08.2012 Fundargerð bæjarráðs 600
13.08.2012 Fundargerð bæjarráðs 599
18.07.2012 Fundargerð bæjarráðs 598
16.07.2012 Fundargerð bæjarráðs 597
02.07.2012 Fundargerð bæjarráðs 596
18.06.2012 Fundargerð bæjarráðs 595
12.06.2012 Fundargerð bæjarráðs 594
04.06.2012 Fundargerð bæjarráðs 593
21.05.2012 Fundargerð bæjarráðs 592
16.05.2012 Fundargerð bæjarráðs 591
14.05.2012 Fundargerð bæjarráðs 590
07.05.2012 Fundargerð bæjarráðs 589
30.04.2012 Fundargerð bæjarráðs 588
26.04.2012 Fundargerð bæjarstjórnar 179
23.04.2012 Fundargerð bæjarráðs 587
17.04.2012 Fundargerð bæjarráðs 586
10.04.2012 Fundargerð bæjarráðs 585
27.03.2012 Fundargerð bæjarráðs 584
19.03.2012 Fundargerð bæjarráðs 583
12.03.2012 Fundargerð bæjarráðs 582
05.03.2012 Fundargerð bæjarráðs 581
27.02.2012 Fundargerð bæjarráðs 580
20.02.2012 Fundargerð bæjarráðs 579
13.02.2012 Fundargerð bæjarráðs 578
08.02.2012 Fundargerð bæjarráðs 577
30.01.2012 Fundargerð bæjarráðs 576
23.01.2012 Fundargerð bæjarráðs 575
16.01.2012 Fundargerð bæjarráðs 574
10.01.2012 Fundargerð bæjarráðs 573
22.12.2011 Fundargerð bæjarráðs 572
19.12.2011 Fundargerð bæjarráðs 571
12.12.2011 Fundargerð bæjarráðs 570
05.12.2011 Fundargerð bæjarráðs 569
28.11.2011 Fundargerð bæjarráðs 568
21.11.2011 Fundargerð bæjarráðs 567
14.11.2011 Fundargerð bæjarráðs 566
07.11.2011 Fundargerð bæjarráðs 565
31.10.2011 Fundargerð bæjarráðs 564
24.10.2011 Fundargerð bæjarráðs 563
17.10.2011 Fundargerð bæjarráðs 562
10.10.2011 Fundargerð bæjarráðs 561
03.10.2011 Fundargerð bæjarráðs 560
19.09.2011 Fundargerð bæjarráðs 559
12.09.2011 Fundargerð bæjarráðs 558
29.08.2011 Fundargerð bæjarráðs 557
22.08.2011 Fundargerð bæjarráðs 555
22.08.2011 Fundargerð bæjarráðs 556
15.08.2011 Fundargerð bæjarráðs 554
08.08.2011 Fundargerð bæjarráðs 553
18.07.2011 Fundargerð bæjarráðs 552
11.07.2011 Fundargerð bæjarráðs 551
05.07.2011 Fundargerð bæjarráðs 550
20.06.2011 Fundargerð bæjarráðs 549
06.06.2011 Fundargerð bæjarráðs 548
30.05.2011 Fundargerð bæjarráðs 547
23.05.2011 Fundargerð bæjarráðs 546
16.05.2011 Fundargerð bæjarráðs 545
09.05.2011 Fundargerð bæjarráðs 544
02.05.2011 Fundargerð bæjarráðs 543
20.04.2011 Fundargerð bæjarráðs 542
11.04.2011 Fundargerð bæjarráðs 541
04.04.2011 Fundargerð bæjarráðs 540
28.03.2011 Fundargerð bæjarráðs 539
21.03.2011 Fundargerð bæjarráðs 538
14.03.2011 Fundargerð bæjarráðs 537
07.03.2011 Fundargerð bæjarráðs 536
28.02.2011 Fundargerð bæjarráðs 535
21.02.2011 Fundargerð bæjarráðs 534
14.02.2011 Fundargerð bæjarráðs 533
07.02.2011 Fundargerð bæjarráðs 532
07.02.2011 Fundargerð bæjarráðs 532
31.01.2011 Fundargerð bæjarráðs 531
24.01.2011 Fundargerð bæjarráðs 530
17.01.2011 Fundargerð bæjarráðs 529
10.01.2011 Fundargerð bæjarráðs 528
03.01.2011 Fundargerð bæjarráðs 527
21.12.2010 Fundargerð bæjarráðs 526
13.12.2010 Fundargerð bæjarráðs 525
06.12.2010 Fundargerð bæjarráðs 524
29.11.2010 Fundargerð bæjarráðs 523
22.11.2010 Fundargerð bæjarráðs 522
15.11.2010 Fundargerð bæjarráðs 521
08.11.2010 Fundargerð bæjarráðs 520
01.11.2010 Fundargerð bæjarráðs 519
25.10.2010 Fundargerð bæjarráðs 518
11.10.2010 Fundargerð bæjarráðs 517
04.10.2010 Fundargerð bæjarráðs 516
27.09.2010 Fundargerð bæjarráðs 515
19.09.2010 Fundargerð bæjarráðs 514
13.09.2010 Fundargerð bæjarráðs 513
06.09.2010 Fundargerð bæjarráðs 512
30.08.2010 Fundargerð bæjarráðs 511
23.08.2010 Fundargerð bæjarráðs 510
16.08.2010 Fundargerð bæjarráðs 509
03.08.2010 Fundargerð bæjarráðs 508
12.07.2010 Fundargerð bæjarráðs 507
28.06.2010 Fundargerð bæjarráðs 506
21.06.2010 Fundargerð bæjarráðs 505
07.06.2010 Fundargerð bæjarráðs 504
20.05.2010 Fundargerð bæjarráðs 503
11.05.2010 Fundargerð bæjarráðs 502
03.05.2010 Fundargerð bæjarráðs 501
26.04.2010 Fundargerð bæjarráðs 500
15.04.2010 Fundargerð bæjarráðs 499
06.04.2010 Fundargerð bæjarráðs 498
22.03.2010 Fundargerð bæjarráðs 497
15.03.2010 Fundargerð bæjarráðs 496
08.03.2010 Fundargerð bæjarráðs 495
26.02.2010 Fundargerð bæjarráðs 494
15.02.2010 Fundargerð bæjarráðs 493
05.02.2010 Fundargerð bæjarráðs 492
01.02.2010 Fundargerð bæjarráðs 491
23.01.2010 Fundargerð bæjarráðs 490
19.01.2010 Fundargerð bæjarráðs 489
11.01.2010 Fundargerð bæjarráðs 488
22.12.2009 Fundargerð bæjarráðs 487
30.11.2009 Fundargerð bæjarráðs 486
23.11.2009 Fundargerð bæjarráðs 485
16.11.2009 Fundargerð bæjarráðs 484
09.11.2009 Fundargerð bæjarráðs 483
02.11.2009 Fundargerð bæjarráðs 482
28.10.2009 Fundargerð bæjarráðs 481
19.10.2009 Fundargerð bæjarráðs 480
12.10.2009 Fundargerð bæjarráðs 479
05.10.2009 Fundargerð bæjarráðs 478
28.09.2009 Fundargerð bæjarráðs 477
21.09.2009 Fundargerð bæjarráðs 476
14.09.2009 Fundargerð bæjarráðs 475
08.09.2009 Fundargerð bæjarráðs 474
31.08.2009 Fundargerð bæjarráðs 473
17.08.2009 Fundargerð bæjarráðs 472
04.08.2009 Fundargerð bæjarráðs 471
20.07.2009 Fundargerð bæjarráðs 470 
06.07.2009 Fundargerð bæjarráðs 469
22.06.2009 Fundargerð bæjarráðs 468
08.06.2009 Fundargerð bæjarráðs 467
02.06.2009 Fundargerð bæjarráðs 466
25.05.2009 Fundargerð bæjarráðs 465
19.05.2009 Fundargerð bæjarráðs 464
18.05.2009 Fundargerð bæjarráðs 464
11.05.2009 Fundargerð bæjarráðs 463
08.05.2009 Fundargerð bæjarráðs 462
04.05.2009 Fundargerð bæjarráðs 461
27.04.2009 Fundargerð bæjarráðs 460
21.04.2009 Fundargerð bæjarráðs 459
14.04.2009 Fundargerð bæjarráðs 458
30.03.2009 Fundargerð bæjarráðs 457
23.03.2009 Fundargerð bæjarráðs 456
16.03.2009 Fundargerð bæjarráðs 455
09.03.2009 Fundargerð bæjarráðs 454
02.03.2009 Fundargerð Bæjarráðs 453
23.02.2009 Fundargerð bæjarráðs 452
16.02.2009 Fundargerð Bæjarráð 451
09.02.2009 Fundargerð bæjarráðs 450
02.02.2009 Fundargerð bæjarráðs 449
26.01.2009 Fundargerð bæjarráðs 448
19.01.2009 Fundargerð bæjarráðs 447
12.01.2009 Fundargerð bæjarráðs 446
23.12.2008 Fundargerð bæjarráðs 445
15.12.2008 Fundargerð bæjarráðs 444
08.12.2008 Fundargerð bæjarráðs 443
01.12.2008 Fundargerð bæjarráðs 442
24.11.2008 Fundargerð bæjarráðs 441
17.11.2008 Fundargerð bæjarráðs 440
10.11.2008 Fundargerð bæjarráðs 439
03.11.2008 Fundargerð bæjarráðs 438
28.10.2008 Fundargerð bæjarráðs 437
20.10.2008 Fundargerð bæjarráðs 436
09.10.2008 Bæjarráð Hornafjarðar 435
29.09.2008 Fundargerð bæjarráðs 434
20.09.2008 Fundargerð bæjarráðs 433
11.09.2008 Fundargerð bæjarráðs 432
01.09.2008 Fundargerð bæjarráðs 431
25.08.2008 Fundargerð bæjarráðs 430
18.08.2008 Fundargerð bæjarráðs 429
07.08.2008 Fundargerð bæjarráðs 428
21.07.2008 Fundargerð bæjarráðs 427
09.07.2008 Fundargerð bæjarráðs 426
07.07.2008 Fundargerð bæjarráðs 425
23.06.2008 Fundargerð bæjarráðs 424
09.06.2008 Fundargerð bæjarráðs 423
02.06.2008 Fundargerð bæjarráðs 422
26.05.2008 Fundargerð bæjarráðs 421
19.05.2008 Fundargerð bæjarráðs 420
05.05.2008 Fundargerð bæjarráðs 418
28.04.2008 Fundargerð bæjarráðs 417
21.04.2008 Fundargerð bæjarráðs 416
21.04.2008 Fundargerð bæjarráðs 416
14.04.2008 Fundargerð bæjarráðs 415
10.04.2008 Fundargerð bæjarráðs 414
31.03.2008 Fundargerð bæjarráðs 413
17.03.2008 Fundargerð bæjarráðs 412
10.03.2008 Fundargerð bæjarráðs 411
26.02.2008 Fundargerð bæjarráðs 410
18.02.2008 Fundargerð bæjarráðs 409
11.02.2008 Fundargerð bæjarráðs 408
04.02.2008 Fundargerð bæjarráðs 407
28.01.2008 Fundargerð bæjarráðs 406
21.01.2008 Fundargerð bæjarráðs 405
10.01.2008 Fundargerð bæjarráðs 404
20.12.2007 Fundargerð bæjarráðs 403
11.12.2007 Fundargerð bæjarráðs 402
03.12.2007 Fundargerð bæjarráðs 401
27.11.2007 Fundargerð bæjarráðs 400
19.11.2007 Fundargarð bæjarráðs 399
12.11.2007 Fundargerð bæjarráðs 398
01.11.2007 Fundargerð bæjarráðs 397
23.10.2007 Fundargerð bæjarráðs 396
15.10.2007 Fundargerð bæjarráðs 395
01.10.2007 Fundargerð bæjarráðs 394
24.09.2007 Fundargerð bæjarráðs 393
17.09.2007 Fundargerð bæjarráðs 392
10.09.2007 Fundargerð bæjarráðs 391
03.09.2007 Fundargerð bæjarráðs 390
27.08.2007 Fundargerð bæjarráðs 389
20.08.2007 Fundargerð bæjarráðs 388
09.08.2007 Fundargerð bæjarráðs 387
23.07.2007 Fundargerð bæjarráðs 386
09.07.2007 Fundargerð bæjarráðs 385
25.06.2007 Fundargerð bæjarráðs 384
19.06.2007 Fundargerð bæjarráðs 383
07.06.2007 Fundargerð bæjarráðs 382
29.05.2007 Fundargerð bæjarráðs 381
22.05.2007 Fundargerð bæjarráðs 380
14.05.2007 Fundargerð bæjarráðs 379
08.05.2007 Fundargerð bæjarráðs 378
07.05.2007 Fundargerð bæjarráðs 382
03.05.2007 Fundargerð bæjarráðs 377
17.04.2007 Fundargerð bæjarráðs 376
10.04.2007 Fundargerð bæjarráðs 375
10.04.2007 Fundargerð bæjarráðs 375
03.04.2007 Fundargerð bæjarráðs 374
26.03.2007 Fundargerð bæjarráðs 373
20.03.2007 Fundargerð bæjarráðs 372
13.03.2007 Fundargerð bæjarráðs 371
06.03.2007 Fundargerð bæjarráðs 370
27.02.2007 Fundargerð bæjarráðs 369
13.02.2007 Fundargerð bæjarráðs 368
06.02.2007 Fundargerð bæjarráðs 367
30.01.2007 Fundargerð bæjarráðs 366
23.01.2007 Fundargerð bæjarráðs 365
16.01.2007 Fundargerð bæjarráðs 364
11.01.2007 Fundargerð bæjarráðs 397
11.01.2007 Fundargerð bæjarráðs
10.01.2007 Fundargerð bæjarráðs 394
10.01.2007 Fundargerð bæjarráðs 404
10.01.2007 Fundargerð bæjarráðs 404
09.01.2007 Fundargerð bæjarráðs 363
29.12.2006 Fundargerð bæjarráðs 362
18.12.2006 Fundargerð bæjarráðs 361
11.12.2006 Fundargerð bæjarráðs 360
05.12.2006 Fundargerð bæjarráðs 359
28.11.2006 Fundargerð bæjarráðs 358
21.11.2006 Fundargerð bæjarráðs 357
14.11.2006 Fundargerð bæjarráðs 356
07.11.2006 Fundargerð bæjarráðs 355
31.10.2006 Fundargerð bæjarráðs 354
26.10.2006 Fundargerð bæjarráðs 353
17.10.2006 Fundargerð bæjarráðs 352
10.10.2006 Fundargerð bæjarráðs 351
04.10.2006 Fundargerð bæjarráðs 350
25.09.2006 Fundargerð bæjarráð 349
19.09.2006 Fundargerð Bæjarráðs 348
12.09.2006 Fundargerð bæjarráðs 347
07.09.2006 Fundargerð bæjarráðs 346
29.08.2006 Fundargerð bæjarráðs 345
22.08.2006 Fundargerð bæjarráðs 344
15.08.2006 Fundargerð bæjarráðs 343
01.08.2006 Fundargerð bæjarráðs 342
11.07.2006 Fundargerð bæjarráðs 341
27.06.2006 Fundargerð bæjarráðs 340
16.06.2006 Fundargerð bæjarráðs 339
30.05.2006 Fundargerð bæjarráðs 338
18.05.2006 Fundargerð bæjarráðs 337
11.05.2006 Fundargerð bæjarráðs 336
04.05.2006 Fundargerð bæjarráðs 335
27.04.2006 Fundargerð bæjarráðs 334
19.04.2006 Fundargerð bæjarráðs 333
06.04.2006 Fundargerð bæjarráðs 332
31.03.2006 Fundargerð bæjarráðs 331
31.03.2006 Fundargerð bæjarráðs 331
30.03.2006 Fundargerð bæjarráðs 330
23.03.2006 Fundargerð bæjarráðs 329
16.03.2006 Fundargerð bæjarráðs 328
02.03.2006 Fundargerð bæjarráðs 327
24.02.2006 Fundargerð bæjarráðs 326
23.02.2006 Fundargerð bæjarráðs 325
15.02.2006 Fundargerð bæjarráðs 324
09.02.2006 Fundargerð bæjarráðs 323
03.02.2006 Fundargerð bæjarráðs 322
02.02.2006 Fundargerð bæjarráðs 321
26.01.2006 Fundargerð bæjarráðs 320
19.01.2006 Fundargerð bæjarráðs 319
12.01.2006 Fundargerð bæjarráðs 318
05.01.2006 Fundargerð bæjarráðs 317
29.12.2005 Fundargerð bæjarráðs 316
13.12.2005 Fundargerð bæjarráðs 315
01.12.2005 Fundargerð bæjarráðs 314
25.11.2005 Fundargerð bæjarráðs 313
17.11.2005 Fundargerð bæjarráðs 312
08.11.2005 Fundargerð bæjarráðs 311
03.11.2005 Fundargerð bæjarráðs 310
27.10.2005 Fundargerð bæjarráðs 309
20.10.2005 Fundargerð Bæjarráðs 308
06.10.2005 Fundargerð bæjarráðs 307
29.09.2005 Fundargerð bæjarráðs 306
22.09.2005 Fundargerð bæjarráðs 305
08.09.2005 Fundargerð bæjarráðs 304
02.09.2005 Fundargerð bæjarráðs 303
25.08.2005 Fundargerð bæjarráðs 302
18.08.2005 Fundargerð bæjarráðs 301
10.08.2005 Fundargerð bæjarráðs 300
28.07.2005 Fundargerð bæjarráðs 299
07.07.2005 Fundargerð bæjarráðs 298
16.06.2005 Fundargerð bæjarráðs 296
02.06.2005 Fundargerð bæjarráðs 295
26.05.2005 Fundargerð bæjarráðs 294
19.05.2005 Fundargerð bæjarráðs 293
12.05.2005 Fundargerð bæjarráðs 292
06.05.2005 Fundargerð bæjarráðs 291
28.04.2005 Fundargerð bæjarráðs 290
22.04.2005 Fundargerð bæjarráðs 289
14.04.2005 Fudnargerð bæjarráðs 288
31.03.2005 Fundargerð bæjarráðs 287
17.03.2005 Fundargerð bæjarráðs 286
10.03.2005 Fundargerð bæjarráðs 285
04.03.2005 Fudnargerð bæjarráðs 284
22.02.2005 Fundargerð bæjarráðs 283
17.02.2005 Fundargerð bæjarráðs 282
10.02.2005 Fundargerð bæjarráðs 281
27.01.2005 Fundargerð bæjarráðs 280
20.01.2005 Fundargerð bæjarráðs 279
13.01.2005 Fundargerð bæjarráðs 278
06.01.2005 Fundargerð bæjarráðs 277
22.12.2004 Fundargerð Bæjarráðs 276
16.12.2004 Fundargerð bæjarráðs 275
10.12.2004 Fundargerð Bæjarráðs 274
02.12.2004 Fundargerð bæjarráðs 273
25.11.2004 Fundargerð bæjarráðs 272
18.11.2004 Fundargerð bæjarráðs 271
11.11.2004 Fundargerð bæjarráðs 270
28.10.2004 Fundargerð bæjarráðs 269
21.10.2004 Fundargerð Bæjarráðs 268
14.10.2004 Fundargerð Bæjarráðs 267
07.10.2004 Fundargerð Bæjarráðs 266
30.09.2004 Fundargerð Bæjarráðs 265
23.09.2004 Fundargerð Bæjarráðs 264
09.09.2004 Fundargerð Bæjarráðs 263
26.08.2004 Fundargerð Bæjarráðs 262
12.08.2004 Fundargerð Bæjarráðs 261
29.07.2004 Fundargerð Bæjarráðs 260
15.07.2004 Fundargerð Bæjarráðs 259
01.07.2004 Fundargerð Bæjarráðs 258
24.06.2004 Fundargerð Bæjarráðs 257
23.06.2004 Fundargerð Bæjarráðs 256
16.06.2004 Fundargerð Bæjarráðs 255
03.06.2004 Fundargerð Bæjarráðs 254
27.05.2004 Fundargerð Bæjarráðs 253
19.05.2004 Fundargerð Bæjarráðs 252
12.05.2004 Fundargerð Bæjarráðs 251
06.05.2004 Fundargerð Bæjarráðs 250
29.04.2004 Fundargerð Bæjarráðs 249
20.04.2004 Fundargerð Bæjarráðs 248
06.04.2004 Fundargerð Bæjarráðs 246
25.03.2004 Fundargerð Bæjarráðs 245
18.03.2004 Fundargerð Bæjarráðs 244
11.03.2004 Fundargerð Bæjarráðs 243
02.03.2004 Fundargerð Bæjarráðs 242
19.02.2004 Fundargerð Bæjarráðs 241
12.02.2004 Fundargerð Bæjarráðs 240
05.02.2004 Fundargerð Bæjarráðs 239
22.01.2004 Fundargerð Bæjarráðs 238
15.01.2004 Fundargerð Bæjarráðs 237
14.01.2004 Fundargerð Bæjarráðs 236
08.01.2004 Fundargerð Bæjarráðs 235
18.12.2003 Fundargerð Bæjarráðs 234
11.12.2003 Fundargerð Bæjarráðs 233
04.12.2003 Fundargerð Bæjarráðs 232
27.11.2003 Fundargerð Bæjarráðs 230
20.11.2003 Fundargerð Bæjarráðs 231
13.11.2003 Fundargerð Bæjarráðs 229
30.10.2003 Fundargerð Bæjarráðs 228
23.10.2003 Fundargerð Bæjarráðs 227
16.10.2003 Fundargerð Bæjarráðs 226
09.10.2003 Fundargerð Bæjarráðs 225
02.10.2003 Fundargerð Bæjarráðs 224
24.09.2003 Fundargerð Bæjarráðs 223
18.09.2003 Fundargerð Bæjarráðs 222
28.08.2003 Fundargerð Bæjarráðs 221
19.08.2003 Fundargerð Bæjarráðs 220
07.08.2003 Fundargerð Bæjarráðs 219
17.07.2003 Fundargerð Bæjarráðs 218
03.07.2003 Fundargerð Bæjarráðs 217
20.06.2003 Fundargerð Bæjarráðs 216
19.06.2003 Fundargerð Bæjarráðs 215
05.06.2003 Fundargerð Bæjarráðs
22.05.2003 Fundargerð Bæjarráðs
15.05.2003 Fundargerð Bæjarráðs
12.05.2003 Fundargerð Bæjarráðs
29.04.2003 Fundargerð Bæjarráðs
23.04.2003 Fundargerð Bæjarráðs
09.04.2003 Fundargerð Bæjarráðs
02.04.2003 Fundargerð Bæjarráðs
26.03.2003 Fundargerð Bæjarráðs
20.03.2003 Fundargerð Bæjarráðs
13.03.2003 Fundargerð Bæjarráðs
13.03.2003 Fundargerð Bæjarráðs
06.03.2003 Fundargerð Bæjarráðs
27.02.2003 Fundargerð Bæjarráðs
27.02.2003 Fundargerð Bæjarráðs
18.02.2003 Fundargerð Bæjarráðs
04.02.2003 Fundargerð Bæjarráðs
23.01.2003 Fundargerð Bæjarráðs
16.01.2003 Fundargerð Bæjarráðs
09.01.2003 Fundargerð Bæjarráðs
19.12.2002 Fundargerð Bæjarráðs 194
19.12.2002 Fundargerð Bæjarráðs
12.12.2002 Fundargerð Bæjarráðs 193
12.12.2002 Fundargerð Bæjarráðs
05.12.2002 Fundargerð Bæjarráðs
27.11.2002 Fundargerð Bæjarráðs
21.11.2002 Fundargerð Bæjarráðs
14.11.2002 Fundargerð Bæjarráðs
05.11.2002 Fundargerð Bæjarráðs
24.10.2002 Fundargerð Bæjarráðs
17.10.2002 Fundargerð Bæjarráðs
10.10.2002 Fundargerð Bæjarráðs
03.10.2002 Fundargerð Bæjarráðs
29.09.2002 Fundargerð Bæjarráðs
19.09.2002 Fundargerð Bæjarráðs
12.09.2002 Fundargerð Bæjarráðs
29.08.2002 Fundargerð Bæjarráðs
20.08.2002 Fundargerð Bæjarráðs
08.08.2002 Fundargerð Bæjarráðs
25.07.2002 Fundargerð Bæjarráðs
11.07.2002 Fundargerð Bæjarráðs
03.07.2002 Fundargerð Bæjarráðs
26.06.2002 Fundargerð Bæjarráðs
20.06.2002 Fundargerð Bæjarráðs
28.05.2002 Fundargerð Bæjarráðs
21.05.2002 Fundargerð Bæjarráðs
14.05.2002 Fundargerð Bæjarráðs
07.05.2002 Fundargerð Bæjarráðs
30.04.2002 Fundargerð Bæjarráðs
16.04.2002 Fundargerð Bæjarráðs
16.04.2002 Fundargerð Bæjarráðs
09.04.2002 Fundargerð Bæjarráðs
03.04.2002 Fundargerð Bæjarráðs
19.03.2002 Fundargerð Bæjarráðs
12.03.2002 Fundargerð Bæjarráðs
05.03.2002 Fundargerð Bæjarráðs
26.02.2002 Fundargerð Bæjarráðs
19.02.2002 Fundargerð Bæjarráðs
12.02.2002 Fundargerð Bæjarráðs
05.02.2002 Fundargerð Bæjarráðs
29.01.2002 Fundargerð Bæjarráðs
22.01.2002 Fundargerð Bæjarráðs
08.01.2002 Fundargerð Bæjarráðs
01.09.0005 Fundargerð bæjarráðs 303
Fundargerð bæjarráðs 322
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica