Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 406
406. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 28. janúar 2008kl. 16:00.
Mættir voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, 176. fundur 22. janúar 2008.
Stefán fór yfir breytingar á framfærslukvörðum frá 2007 til 2008. Greindi hann frá því að kvarðinn byggði ekki lengur á viðmiðun við ákveðna bótaflokka almannatrygginga. Nú og hér eftir verði byggt á útgefnum kvarða frá félagsmálaráðuneyti sem muni breytast í samræmi við breytingar á vísitölu á milli ára.
Fundargerð samþykkt.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar, 79. fundur 22. janúar 2008.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar, 100. fundur 23. janúar 2008.
Rætt um samskipti Grunnskólans í Hofgarði við aðra skóla og sérfræðiþjónustu skólanna. Greindi starfsmaður skólanefndar frá þeim samskiptum og breytingum sem á þeim hafa orðið með breytingum á skólunum og sérkennsluþjónustu. Rætt um ferðalög á vegum skólanna, vettvangsferðir o.fl. Bæjarráð bendir á að það fjármagn sem varið er á fjárhagsáætlun til þessara ferðalaga skólanna ár hvert ræður því hvað ferðast er mikið.
Fundargerð samþykkt.
2. Þriggja ára áætlun
Áætlunin, sem tekur yfir árin 2009-2011, gerir ráð fyrir um 90 m.k.r rekstrarafgangi á hverju ári í A og B hluta. Gert er ráð fyrir að skuldir við lánastofnanir lækki um 100 m.kr. á tímabilinu. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir að framkvæmdir verði um 560 m.kr. á þessu þriggja ára tímabili. Bæjarráð samþykkir áætlunina fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu í bæjarstjórn.
3. Tilboð í urðun úrgangs í sveitarfélaginu
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Rósabergs, lægstbjóðanda í verkið.
4. Málefni Jöklaseturs
Stjórn Jöklaseturs fer fram á tvær milljónir króna sem aukið framlag sveitarfélagsins til setursins. Bæjarráð vísar til starfsmanna að fylgja eftir samþykkt bæjarstjórnar um aðkomu þjóðgarðsins að rekstri Jöklaseturs uns gestastofa er komin á laggirnar. Björn Ingi óskaði eftir að fjárhagsáætlun 2007 verði lögð fram. Var það samþykkt og jafnframt frestað til næsta fundar að afgreiða málið.
5. Umferðarmál á Höfn
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar
6. Styrkumsókn
· Legóhópurinn Ísjakarnir
Samþykkt að leggja kr. 250.000.- í þetta verkefni, samkvæmt fyrirliggjandi umsókn. Tekið af óráðstöfuðu.
7. Ósk um umsögn á tækifærisleyfi
· Sýslumaðurinn á Höfn vegna dansleiks 22. mars frá 00:30 til 00:05.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við þessa ósk.
8. Frummatsskýrsla v. hringvegar um Hornafjörð
Frummatsskýrslan: http://www.vso.is/MAU-Gogn/3-6-mau-hornafjardarfljot/skjol-og-myndir/Frummatsskyrsla/Frummatsskyrsla.pdf
Kortahefti: http://www.vso.is/MAU-Gogn/3-6-mau-hornafjardarfljot/skjol-og-myndir/Frummatsskyrsla/Kortahefti.pdf
Samantekt: http://www.vso.is/MAU-Gogn/3-6-mau-hornafjardarfljot/skjol-og-myndir/Frummatsskyrsla/Samantekt.pdf
Starfsmönnum falið að vinna drög að umsögn um frummatsskýrslu sem lögð verði fyrir næsta fund bæjarráðs.
9. Innsend bréf og erindi
· Verkfræðingafélag Íslands, Tæknifræðingafélag Íslands, Umhverfisráðuneytið og fleiri, bréf dags. 10. janúar 2008, ráðstefna um snjóflóðavarnir, skipulagsmál og samfélagsmál á Egilsstöðum 11.-14. mars 2008.
Til kynningar.
· Hafnasamband sveitarfélaga, bréf dags. 14. janúar 2008, gjaldskrármál hafna.
Vísað til hafnarstjórnar.
· Ferðamálafélag Austur-Skaftafellssýslu, bréf dags. 16. janúar 2008, samrit bréfs til Vegagerðarinnar um veg og brú yfir Sultartungnaá í Suðursveit.
Til kynningar. Bæjarráð tekur undir bréf Ferðamálafélagsins.
· Hafnasamband sveitarfélaga, bréf dags. 21. janúar 2008, úttekt Eftirlitsstofnunar EFTA á vettvangi siglingaverndar, afrit af bréfi Siglingastofnunar dags. 12. desember s.l. til sambandsins.
Vísað til hafnarstjórnar.
10. Önnur mál
(Ásta vék af fundi undir dagskrárliðnum önnur mál.)
- Ósk Heiðars Sigurðssonar, f.h. Galdurs ehf., um skriflegan rökstuðning við val á tilboði í stjórnsýsluvef sveitarfélagsins. Starfsmönnum falið að vinna að þessum rökstuðningi.
- Ósk Hátíðni hf., dags. 25. janúar 2008, um “að nota Eplica [hugbúnaður] í stað þess að nota php eins og boðið var í því tilboði sem bæjarráð hefur samþykkt að taka frá Hátíðni.” Boðið er að stofn- og rekstrarkostnaður verði hinn sami og í hinu samþykkta tilboði. Starfsmönnum falið að leita eftir lögfræðiáliti vegna þessarar óskar Hátíðni.
- Haukur Ingi kynnti tilboð í leiktæki í vaðlaug. Áætlaður heildarkostnaður með flutningi til Hafnar er 1.400.000.- Bæjarráð samþykkir að taka tilboðinu.
- Sala á Nesjaskóla og tengd mál. Bæjarráð samþykkir að greiða kr. 650 kr. fyrir leigðan fermetra í hinu auglýsta kennsluhúsnæði. Fermetrafjöldi fari eftir þörf skólans hverju sinni.
- Tillaga að skrá Sveitarfélagsins Hornafjarðar samkvæmt 2. mgr. 19. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Bæjarráð samþykkir fram lagða tillögu.
- Björn Ingi spurði um starf Nefndar um íþróttamannvirki og hvort hún væri virk. Sagði hann a.m.k. mjög langt á milli funda og eðlilegt að nefndin taki fyrir mál sem upp kunna að koma á byggingartíma.
Fundi slitið kl. 18:30


