Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 405
405. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 21. janúar 2008kl. 07:00.
Mættir voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir bauð fundarmenn velkomna og gengið var til dagskrár:
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, 87. fundur 17. janúar 2008.
Bæjarráð óskar eftir því að byggingar- og skipulagsnefnd ljúki vinnu við skipulag á Leirusvæði og svæðið verði undirbúið strax í kjölfarið.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar, 88. fundur 16. janúar 2008.
Fram kom að halli á rekstri, rúmlega 31 millj. af 33 millj., sbr. fundargerð, stafar fyrst og fremst af vangoldnu framlagi Tryggingastofnunar.
Bæjarráð óskar eftir skýrslu um viðhöldsþörf á húsnæði HSSA og tillögum um nýtingu á þeim fjárveitingum sem berast munu í tengslum við mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar. Bæjarráð minnir á að enn er eftir að klára uppbyggingu hjúkrunarheimilisins.
Bæjarráð tekur undir bókun HÖR, sbr. 6. lið á fundi nefndarinnar.
Árni gerði að umtalsefni þjónustusamninginn og vangoldnar greiðslur vegna hjúkrunarrýma. Fram kom að beðið er eftir svörum frá fjármálaráðuneyti vegna þess máls.
Fundargerð samþykkt.
· Gjafasjóður Skjólgarðs 38. fundur 16. janúar 2008.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 175. fundur 8. janúar 2008.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar, 96. fundur 9. janúar 2008.
Lögð er áhersla á að öllum umsóknum um styrki verði svarað, einnig þeim sem ekki fengu úthlutun á fundi nefndarinnar.
Hjalti gerði að umtalsefni greinargerð vegna flokkunar og skráningar safna Sverris Scheving og Lovísu H. Gunnarsdóttur. Sagði Hjalti þessa greinargerð vera vel unna og þakkaði forstöðumanni Menningarmiðstöðvar fyrir hana. Lagði hann áherslu á að niðurstaða fáist í þetta mál fyrir lok þessa mánaðar.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 74. fundur 10. janúar 2008.
Gjaldskrár, samkvæmt fundargerð nefndarinnar, verða teknar fyrir sem sérliður á næsta fundi bæjarráðs.
Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs og tómstundaráð Hornafjarðar, 96. fundur 17. janúar 2008.
Rætt um skautasvell og mögulega staðsetningu þess á miðbæjarsvæði. Hjalti sagðist fagna þeirri hugmynd og var undir það tekið.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 43. fundur, 15. janúar 2008.
Bæjarráð samþykkir að keypt verði rennibraut sú sem nefnd um íþróttamannvirki mælir með. Áður en endanlega verði gengið frá kaupunum liggi fyrir heildarkostnaður við brautina.
Björn Ingi gerði að umtalsefni myndavélakerfi og rofakerfi í sundlaug. Fram kom í máli hans að ágreiningur væri milli hönnuða og tilbjóðanda í verkið um hvaða tæki skuli valin. Óskaði hann eftir að niðurstaða fáist í það mál því þarna væri valin dýrari leið af hönnuðum en tilbjóðandi telur nauðsynlega. Var undir þetta sjónarmið tekið af bæjarráðsmönnum.
Fundargerð samþykkt.
· Starfshópur um félagslíf í grunnskólum, 8. fundur 15. janúar 2008.
Fundargerð samþykkt.
· Ungmennaráð Hornafjarðar 1. fundur 10. janúar 2008.
Fundargerð samþykkt.
2. Lóðarumsókn
· Bjarni Hákonarson ums. dags. 4. janúar 2008.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar með þeim fyrirvara að lóðin er skipulögð sem byggingarlóð og verður því úthlutun hennar háð því að komi til umsóknar um byggingu á henni seinna yrði umsækjandi að rýma lóðina. Bæjarráð leggur einnig áherslu á að frágangur lóðarinnar verði viðunandi.
3. Opnun tilboða í urðun úrgangs í sveitarfélaginu
Haukur greindi frá tilboðum í urðun úrgangs, fjögur tilboð bárust vegna útboðsins frá eftirtöldum aðilum:
Rósaberg ehf. 4,75 kr. á urðað kíló án vsk.
Funi ehf. 5,00 kr. á urðað kíló án vsk.
Gröfuþjónusta Olgeirs ehf. 7,45 kr. á urðað kíló án vsk.
Papafjörður ehf. 5,75 kr. á urðað kíló án vsk.
Starfsmönnum falið að fara yfir tilboðin og leggja fyrir næsta fund.
4. Tilboð í stjórnsýsluvefinn Hornafjordur.is
Starfsmenn gerðu grein fyrir vinnu við yfirferð tilboða, þar á meðal yfirferð sérstaks ráðgjafa, sem ákveðið var af bæjarráði að fenginn yrði til að fara yfir tilboðin og bera þau saman. Björn Ingi gerði að umtalsefni úttekt ráðgjafans sem hann gaf ekki góða einkunn, taldi hana beinlínis lélega. Fram kom að ráðgjafinn var valinn eftir ábendingu Ríkiskaupa.
Bæjarráð samþykkir að taka lægsta tilboðinu, tilboði 2 (PHP) frá Hátíðni. Árni og Reynir telja að með þessu sé verið að velja farsælustu niðurstöðuna, bæði með tilliti til verðs og gæða. Björn Ingi telur að með þessu sé stigið skref aftur á bak, ekki sé verið að taka bestu lausnina tæknilega séð auk þess sem ekki liggi fyrir hvað kostnaður felist í því að skipta úr núverandi kerfi yfir í annað.
5. Sala á Nesjaskóla
(Ásta Halldóra vék af fundi undir þessum lið.) Gerð var grein fyrir þeirri vinnu við málið sem fram hefur farið á milli funda bæjarráðs. Bæjarstjóra falið að ræða við starfsmenn ráðuneyta vegna þessa máls.
6. Verkfallslistar
Bæjarráð samþykkir að unnið verði í samræmi við þær tillögur sem kynntar voru á fundinum.
7. Styrkumsóknir til bæjarráðs vegna 2008
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi styrki:
|
21. jan. 2008 |
|
|
Björgunarfélag Hornafjarðar |
200.000 |
|
Björgunarskipið Ingibjörg auk þess að greiða ekki hafnargjöld. |
100.000 |
|
Björgunarsveitin Kári |
100.000 |
|
Félag aldraðra, kr. 400.000.- sem fram koma í rekstrarliðum. |
100.000 |
|
Golfklúbbur Hornafjarðar styrkur v. framkvæmda |
500.000 |
|
Landgræðsla ríkisins |
0 |
|
Páll Heimisson/hlaðvarpi |
100.000 |
|
Perlan Mýrar jarðfræðistígur við Fláajökul |
100.000 |
|
Skógræktarfélag A-Skaft. |
100.000 |
|
Snorraverkefnið |
0 |
|
Fuglaathugunarstöð Suðausturlands |
250.000 |
|
Félagsstarf aldraðra í Öræfum |
60.000 |
|
Óráðstafað |
390.000 |
|
Samtals: |
2.000.000 |
8. Ósk um umsagnir á útgáfu tækifærisleyfa til skemmtanahalds
· Góuhóf í Hofgarði í Öræfum, bréf sýslumannembættisins á Höfn, dags. 7. janúar 2008.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
· Þorrablót á Hrollaugsstöðum, bréf sýslumannembættisins á Höfn, dags. 9. janúar 2008.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
· Þorrablót í Mánagarði, bréf sýslumannembættisins á Höfn, dags. 9. janúar 2008.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
· Þorrablót í íþróttahúsi á Höfn, bréf sýslumannsembættisins á Höfn, dags. 18. janúar 2008.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
9. Umsögn skólanefndar á frumvörpum til laga um grunnskóla mál nr. 285 og leikskóla mál nr. 287
Bæjarráð samþykkir að senda umsögnina eins og hún var kynnt í útsendum gögnum
10. Innsend bréf og erindi
· Jöfnunarsjóður, bréf dags. 31. desember 2007, uppgjör framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga 2007 ogáætluð almenn framlög, útgjaldajöfnunarframlög og húsaleigubætur 2008.
Til kynningar.
· Samgönguráðuneyti, bréf dags. 28. desember 2007, breytingar á Stjórnarráðinu.
Til kynningar.
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 7. janúar 2008, uppreiknuð tekju- og eignamörk félagslegra íbúða.
Til kynningar.
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 7. janúar 2008, uppreiknuð eignamörk vegna húsaleigubóta.
Til kynningar.
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 10. janúar 2008, svar við bréfi bæjarstjóra 28. mars. vegna hugmynda um meðferðarheimili á Hornafirði.
Til kynningar.
· Landsskrifstofa um Staðardagskrá 21, bréf dags. 11. janúar 2008, ráðstefna um Staðardagskrá 21, 8-9. febrúar að Hótel Örk í Hveragerði.
Vísað til umhverfisnefndar.
· Bestfiskur ehf., bréf dags. 16. janúar 2008, ósk um hlutdeild í styrkveitingu skv. fjáraukalögum ríkissjóðs 2007, „til að koma til móts við þau sveitarfélög sem verða fyrir tekjumissi vegna tímabundins samdráttar í aflamarki þorsks“.
Vísað til atvinnumálanefndar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 17. janúar 2008, Norðurslóðaáætlun 2007-2013.
Vísað til starfsmanna.
11. Önnur mál
Árni taldi tímabært að samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins verði tekin til endurskoðunar.
Fundi slitið kl. 9:45


