Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 400
400. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar á Hrollaugsstöðumþriðjudaginn 27. nóvember 2007 kl. 17:15.
Mættir voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna og gat þess að þetta væri tímamótafundur bæjarráðs sem er sá 400.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd, 83. fundur, 14. nóvember 2007.
Haukur greindi frá fyrirhuguðum fundi í byggingar- og skipulagsnefnd þar sem m.a. verður rætt um gestastofu á Stekkanesi. Fram kom í framhaldi af fyrirspurn Björns Inga að enn hefur ekki verið talað við aðrar stofur en Glámu-Kím vegna skipulagsvinnu í sveitarfélaginu. Hjalti greindi frá viðbrögðum manna við staðsetningu gestastofu.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar, 94. fundur, 14. nóvember 2007.
Hjalti ræddi 7. lið fundargerðar nefndarinnar. Taldi hann að vart yrði um byggingu geymslu- og þjónustuhúss fyrr en á árinu 2009. Einnig ræddi hann heimasíðu og kynningarefni og greindi frá samtölum við formann nefndarinnar og forstöðumann Menningarmiðstöðvar og minnti um leið á væntanlegt útboð heimasíðu sveitarfélagsins. Spunnust nokkrar umræður um geymslu- og þjónustuhús, m.a. hvort kaupa ætti hús eða byggja nýtt.
Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundaráð, 94. fundur, 15. nóvember 2007.
Björn Ingi lýsti yfir ánægju með fyrirhugað samstarf við FAS um starfsmenn Þrykkjunnar. Var undir það tekið.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 748. fundur 16. nóvember 2007, til kynningar.
Björn Ingi gerði að umtalsefni 5. lið á dagskrá stjórnar Sambandsins og benti á að ákveðið sveitarfélag næði til sín störfum með hagsmunagæslu. Spannst umræða um þessi mál og hvaða áherslur ætti að leggja í samskiptum við ríkið og aðra opinbera aðila þegar kemur að flutningi starfa út á land.
2. Fjárhagsáætlun 2008 – síðari umræða
Styrkir til íþróttamála hækka um 5. m.kr. Rekstur íþróttavalla á Höfn lækkar um 1,5 m.kr.
Óráðstafaður liður á 21 lækkar um 1,5 m.k. Hækkun á fjárhagsáætlun milli umræðna er 2,5. m.kr. Niðurstaða A hluta er 123.926 í stað 126.426.
Undir þessum lið var einnig farið yfir úthlutun fjár til stofnbúnaðarkaupa. Björn Ingi gerði að umtalsefni hversu gegnsæjar þessar tillögur væru og hvort þær væru fyllilega í samræmi við óskir forstöðumanna og þeirra áherslur til eins árs annars vegar og hins vegar til þriggja næstu ára. Spannst nokkur umræða um þá aðferðir sem notaðar eru við úthlutun fjár til stofnbúnaðar. Reynir gerði að umtalsefni liðinn óráðstafað og lagði til að hann lækkaði úr 8,5 millj. króna í 6 millj. króna. Var það samþykkt.
Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2008 til síðari umræðu í bæjarstjórn með áorðnum breytingum á milli umræðna ásamt fram komnum tillögum að fjárframlögum til stofnbúnaðarkaupa og framlögum til framkvæmda, sbr. vinnuskjal dags. 20. nóv. 2007.
3. 3ja ára áætlun
Björn Ingi gerði að umtalsefni hvað kynni að gerast gagnvart framlögum úr Jöfnunarsjóði ef íbúafjöldinn færi undir 2000. Hjalti sagði að miðað við sínar upplýsingar, sem. m.a. kæmu frá starfsmanni Jöfnunarsjóðs, hefði það engin áhrif.
Bæjarráð samþykkir að vísa 3ja ára áætlun til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
4. Drög að samningi við Umf. Sindra
Hjalti fór yfir drögin og sagði að töluverðar breytingar yrðu með nýjum samningi frá því sem verið hefur um nokkurt skeið ef hann yrði samþykktur. Bæði hækkaði framlag til Sindra verulega, umsjón valla færðist frá félaginu til sveitarfélagsins og Sindri bæri aukna ábyrgð á félags-, íþrótta- og æskulýðsstarfi í sveitarfélaginu. Umræða skapaðist um fylgiskjal 2 og hvort það þurfi endurskoðunar við.
Samþykkt að vísa þessum drögum að samningi til umfjöllunar í æskulýðs- og tómstundaráði með fram komnum ábendingum. Jafnframt er því beint til ráðsins hvort æskilegt sé að skilgreina með meiri nákvæmni þann tímafjölda sem Sindra er ætlaður í íþróttahúsum og öðrum íþróttamannvirkjum.
5. Samþykkt um búfjárhald
Hjalti greindi frá breytingum sem bent hefur verið á að þurfi að gera á samþykktinni. Fram kom að frístundabændur hafa óskað eftir að koma að þessari vinnu. Bæjarstjóra falið að ræða við frístundabændur. Samþykkt að vísa samþykktinni til atvinnumálanefndar til yfirferðar.
6. Innkaupareglur
Hjalti greindi frá vinnunni við innkaupareglurnar. Sagði m.a. að þær byggðu að hluta til á reglum Sambands ísl. sveitarfélaga. Björn Ingi taldi að viðmiðunarfjárhæðir sem fram kæmu væru fullþröngar sem skerti e.t.v. svigrúm starfsmanna og hugsanlega þungt í vöfum. Bæjarráð samþykkir að vísa innkaupareglunum til afgreiðslu í bæjarstjórn.
7. Heilbrigðismál – kynnt á fundinum
Hjalti greindi frá skiptingu verkefna á milli tveggja ráðuneyta þar sem fram kemur að hluti verkefna sem áður voru hjá heilbrigðisráðuneyti muni flytjast til félagsmálaráðuneytisins með nýrri verkaskiptingu milli ráðuneytanna. Þetta geti haft áhrif á samninga um heilbrigðismál. Einnig fór hann yfir breytingar á aldurssamsetningu í sveitarfélaginu og útreikninga á fjárframlögum í nýjum samningi miðað við mismunandi forsendur. Hjalta falið að vinna áfram í samræmi við fram komnar upplýsingar á fundinum.
8. Drög að samningi við Rósaberg ehf.
Björn Ingi sagðist óhress með að þetta skuli verða steypustöðin sem nota á við byggingu sundlaugarinnar og tilgreindi upplýsingar sem hann hafi aflað sér um steypu og gerð hennar. Hjalti sagði mestu máli skipta að gæði byggingarinnar verði í samræmi við þær kröfur sem sveitarfélagið gerði. Sagði hann mikilvægt að eftirlit með byggingunni verði bæði nákvæmt og gott. Reynir sagðist ekki vera með þessum samningi að samþykkja að steypan verði notuð við sundlaugarbyggingu. Náist gæðakröfur hins vegar gerði hann ekki athugasemdir við þau not.
Bæjarráð er tilbúið að samþykkja fram lögð drög að samningi um steypustöð með áorðnum breytingum sem gerðar voru á fundinum. Jafnframt samþykkt að bæjarráðsmenn fái samninginn sendan í tölvupósti með áorðnum breytingum áður en skrifað verður undir hann.
9. Vatnsnot úr Hólmslindum
Fundi frestað kl. 19:20 og haldið áfram kl. 23:20
Stefán greindi frá samskiptum sínum við Jón Jónsson lögfræðing sveitarfélagsins vegna málsins, fundum með Kjartani Jónssyni vegna spurninga sem beint hafi verið til hans sem og svörum hans og einnig fundi með Hjalta Egilssyni. Samþykkt að ljúka við viljayfirlýsingu á næsta fundi bæjarráðs. (Hjalti Þór vék af fundi undir þessum dagskrárlið.)
10. Innsend bréf og erindi
· UMFÍ, dags. 14. nóvember 2007, þingskjöl nr. 5 og 6.
Til kynningar.
· VÍS, tölvubréf dags. 15. nóvember 2007, Hafnarbraut 40.
Til kynningar.
· Dagbjört Edda Sverrisdóttir, dags. 15. nóvember 2007, ný brú yfir Hornafjarðarfljót.
Til kynningar. Óskað að bréfið verði sent Vegagerðinni
· Landsamtökin Þroskahjálp, dags. 16. nóvember 2007, ályktun á landsþingi samtakanna 11.-13. október.
Vísað til félagsmálaráðs.
· Hafdís S. Roysdóttir og Jóhann Þorsteinsson, dags. 19. nóvember 2007, GSM mastur í Öræfum.
Undir þessum lið greindi Árni frá tveimur bréfum sem varða þetta mál þar sem tekið er undir orð Hafdísar. Hauki Inga falið að funda með íbúum í Öræfum um þetta mál og kynna þar þær upplýsingar sem fram hafa komið hjá Símanum og Geislavörnum ríkisins.
· Veiðistjórnunarsvið UST, dags. 19. nóvember 2007, drög að úthlutun hreindýraarðs.
Til kynningar.
· Iðnaðarráðuneyti, dags. 20. nóvember 2007, um þörf fyrir þriggja fasa rafmagn í sveitarfélaginu.
Vísað til starfsmanna.
· Jafnréttisstofa, tölvubréf dags. 21. nóvember 2007, ráðstefna um kynbundinn launamun.
Til kynningar.
11. Önnur mál
- Tilboð í búnað í kjallara sundlaugar, dags. 23. nóvember 2007. Um er að ræða dælur, sandsíur og klórbúnað að upphæð kr. 8.801.000. m.vsk. Kostnaðaráætlun fyrir þennan búnað var 10.172.000. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði í hreinsitæki sundlaugar.
- Kynnt drög að kauptilboði í hluta ríkisins á neðstu hæð að Hafnarbraut 27, ráðhúsi og uppgjör vegna endurbóta og viðhalds á húseigninni. Kostnaðarhlutur ríkisins vegna framkvæmda er 4.247.113 og tilboð í hlut ríkisins er 4,5 millj. Jafnframt verði gefinn frestur í eitt ár að rýma húsið og þyrfti ríkið ekki að greiða leigu fyrir árið 2008. Bæjarráð samþykkir að málið verði afgreitt með framangreindum hætti.
Samþykkt að fundargerð verði send í tölvupósti til nefndarmanna og afgreidd þar.
Fundi slitið kl. 24.17


