Bæjarráð
Fundargarð bæjarráðs 399
399. fundur
Yfirlit
- 4. Ósk um umsögn á endurútgáfu leyfis til reksturs gististaðar að Ránarslóð 3 á Höfn
- Ósk um leyfir til reksturs gististaðar samþykkt.
- · Dýralæknafélag Íslands, bréf dags. 8. nóvember 2007, varðar stofnun örmerkjagrunns gæludýra.
- · Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 9. nóvember 2007, um niðurstöður úr rannsókninni Ungt fólk 2007 grunnskólanemar meðal nemenda 5.,6. og 7. bekk grunnskóla.
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal í Ráðhúsi mánudaginn 19. nóvember 2007 kl. 16:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson varaformaður, Elín Magnúsdóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Árni setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 97. fundur 14. nóvember 2007.
Rætt um útibú á vegum Siglingastofnunar, sbr. 2. lið á dagskrá nefndarinnar. Hjalti greindi frá stöðu mála og næstu skrefum. Hjalti lagði áherslu á að fylgja þessu eftir þannig að þetta verði ljóst fyrir fjárlög 2009.
Björn Ingi spurði um dýpkun í höfninni og samninga þar að lútandi. Fram kom að gengið hafi verið frá samningum við aðila sem sjá munu um dýpkun. Rætt var um hvort dýpkun við nýtt stálþil teljist viðhaldsdýpkun eða stofndýpkun.
Fundargerð samþykkt
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 172. fundur 13. nóvember 2007.
Elín gerði að umtalsefni undir þessum lið sérstaka aðstoð við einstæða foreldra, svo sem vegna náms og spurði hvað gert væri í þeim efnum. Hjalti greindi hvað gert hafi verið og sagði þetta verða skoðað sérstaklega við gerð fjölskyldustefnu.
Fundargerð samþykkt
2. TV-einingar kjarasamningar leikskólakennara
Hjalti fór yfir málið og greindi frá því að þetta tengist kjarasamningum leikskólakennara frá árinu 2006. Þetta hafi t.d. verið tekið upp á Akureyri og í Kópavogi. Þá útskýrði hann á hvaða grunni hugsanlegar greiðslur vegna TV-eininga byggist. Spannst um þetta fyrirkomulag veruleg umræða og m.a. hvað þetta þýddi fyrir starfshópa sem ekki eiga aðild að kjarasamningum leikskólakennara.
Bæjarráð samþykkir að unnið verði eftir fram lögðum drögum að reglum þar sem að hámarki verði til útdeilingar samtals fimm TV-einingar. Jafnframt samþykkt að bæjarráð fari með útdeilingu TV-eininga.
3. Ósk um leyfi til landsskipta út úr Svínafelli 3, Öræfum
Ósk um leyfi til landsskipta samþykkt.
4. Ósk um umsögn á endurútgáfu leyfis til reksturs gististaðar að Ránarslóð 3 á Höfn
Ósk um leyfir til reksturs gististaðar samþykkt.
5. Boð um forkaupsrétt að hlutafé í NorðurBragði ehf.
Samþykkt að sveitarfélagið hyggist ekki nýta forkaupsrétt að hlutafé í Norðurbragði.
6. Áfangaskýrsla lögreglunnar á Höfn
Hjalti greindi frá fundi um löggæslumál sem sátu Inger L. Jónsdóttir, Jónas Wilhelmsson, Elvar Óskarsson, Sigurður Guðnason, Hjalti Þór Vignisson og Stefán Ólafsson. Fram komu hjá bæjarráði áhyggjur af þróun mála og miklar efasemdir komu fram um breytingar á lögregluumdæmum, svo sem að markmiðum um hagræðingu og eflingu starfseminnar hafi náð fram að ganga eins og stefnt hafi verið að af hálfu dómsmálaráðuneytisins. Þá lagði bæjarráð mikla áherslu á almannavarnir og stöðu þeirra eftir sameiningu umdæmanna.
7. Innsend bréf og erindi
· Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra bréf dags. 8. nóvember 2007, varðar umsóknir í framkvæmdasjóð fatlaðra vegna úthlutunar árið 2008.
Til kynningar.
· Siglingastofnun, bréf dags. 8. nóvember 2007, vegna breytinga á samgönguáætlun 2007-2010.
Til kynningar.
· Dýralæknafélag Íslands, bréf dags. 8. nóvember 2007, varðar stofnun örmerkjagrunns gæludýra.
Vísað til umhverfisnefndar.
Vísað til skólanefndar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 12. 2007, um verkefnið 50+.
Til kynningar.
· Reikningsskila og upplýsinganefnd sveitarfélaga, álit 1/2007, eignarhlutur sveitarfélaga í Lánasjóði sveitarfélaga ohf. .
Til kynningar.
8. Önnur mál
- Vatnsnot úr Hólmslindum. Stefán greindi frá samskiptum sínum við lögmann sveitarfélagsins og drögum að viljayfirlýsingu um málið, dags. 16. nóv. 2007. Bæjarráð felur starfsmanni að vinna áfram að málinu.
- Borgarafundur vegna fjárhagsáætlunar 2008, Vatnajökulsþjóðgarðs o.fl. mála. Samþykkt að borgarafundurinn verði á Hrollaugsstöðum þriðjudaginn 27. nóvember næstkomandi. Hjalti sagði mikilvægt að rætt verði við íbúa sveitarfélagsins um þjóðgarðinn og mál honum tengd.
- Haukur Ingi fór yfir drög að útboðslýsingu vegna sorpurðunar. Bæjarráð samþykkir útboðsgögnin.
- Árni spurðist fyrir um fund í yfirstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs. Hjalti greindi frá umræðum og sagði stjórnina m.a. sátta við staðsetningu gestastofu á Stekkanesi. Þá greindi hann frá umræðum um yfirstjórn þjóðgarðsins og jafnframt að það mál hafi ekki verið klárað á fundinum en tekið fyrir á næsta fundi stjórnarinnar.
Fundi slitið kl. 18.05


