Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 398
398. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal í Ráðhúsi mánudaginn 12. nóvember 2007 kl. 16:00.
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 34. fundur 2. nóvember 2007.
Björn Ingi gerði að umtalsefni 2. lið á dagskrá atvinnumálanefndar og ræddi umferðaröryggi vegna staðsetningar fjóss sunnan vegar og annarra bygginga austan vegar. Hjalti greindi frá áhuga landeigenda á undirgangi undir þjóðveginn fyrir búpeninginn.
Bæjarráð tekur undir bókun atvinnumálanefndar um framtíðarsýn og hvetur atvinnumálanefnd að halda áfram vinnu í þessum anda.
Undir þessum lið var rætt um háhraðatengingar í dreifbýli. Björn Ingi upplýsti stöðu mála. Bæjarráð leggur áherslu á að íbúum í dreifbýli Hornafjarðar verði tryggðir sömu möguleikar til háhraðatenginga og rætt er um á vegum Fjarskiptasjóðs, bæði í gæðum og verði.
Fundargerð samþykkt.
Heilbrigðis- og öldrunarráð, 85. fundur 24. október 2007.
Fram kom að staðan í læknamálum er góð og fyrirséð að festa verði í þeim málum fram á vorið.
Árni lagði til að stefnt yrði að málþingi um heilbrigðismál í dreifbýli snemma á nýju ári.
Fundargerð samþykkt.
Starfshópur um félagslíf grunnskólanema, 3. fundur, 6. nóvember 2007.
Fundargerð samþykkt.
- Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs, 7. nóvember 2007.
Í ljósi umræðu um starfsstöð framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs vill bæjarráð koma eftirfarandi á framfæri:
Umræða um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs hefur lifað meðal íbúa í Austur-Skaftafellssýslu í um áratug. Sérstaða héraðsins byggir ekki síst á nábýli við Vatnajökul. Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur, skrifaði eitt sinn að það skipti ekki máli fyrir Austur-Skaftfellinga hvaða stjórnarfar ríkti í landinu, hvort það væri þjóðveldi, einveldi eða lýðveldi. Á þeim slóðum ríkti Vatnajökull einn. Saga þess byggðarlags bæri öll merki um glímu mannsins við jökulinn.
Nú eru aðrir tímar. Jökullinn er tekinn að hörfa inn til landsins, tekist hefur að hemja jökulárnar með varnargörðum og tryggja greiðar samgöngur um héraðið. Nábýli við jökulinn felur núna í sér tækifæri sem íbúar vilja nýta til fullnustu.
Uppbygging Vatnajökulsþjóðgarðs er mikilvægur hluti af framtíðarsýn Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Þjóðgarðurinn kemur til með auka stórlega möguleika ferðaþjónustu á svæðinu til frekari landvinninga. Rannsóknartækifærum á náttúrunni fjölgar í kjölfar tilkomu þjóðgarðsins sem styrkir þekkingarstarfsemi í sveitarfélaginu. Helsti rökstuðningur bæjarráðs Hornafjarðar fyrir því að staðsetja framkvæmdastjóra þjóðgarðsins í Sveitarfélaginu Hornafirði er að:
- Hornfirðingar líta til Vatnajökulsþjóðgarðs sem einn helsta aflvaka í byggðaþróun í héraðinu.
- Allar aðstæður fyrir framkvæmdastjóra yfirstjórnar eru til staðar á Hornafirði. Samgöngur til og frá svæðinu eru greiðar. Yfirstjórnin yrði hluti af þeirri starfsemi sem byggst hefur upp í Nýheimum.
- Starfsstöð Vatnajökulsþjóðgarðs á Hornafirði er mikilvæg viðbót við þá grósku sem er í rannsóknum og atvinnuþróun í tengslum við ferðaþjónustu, útivist og þjóðgarða á svæðinu.
- Með samstarfi Háskólasetursins í Nýheimum og Vatnajökulsþjóðgarðs yrði markvisst sótt fram í að efla fræðslutengda ferðaþjónustu í Vatnajökulsþjóðgarði, efla umhverfisvitund, vinna að samanburðarrannsóknum á þjóðgörðum víðsvegar að í heiminum og byggja upp þekkingargrunn fyrir atvinnustarfsemi sem þrífst innan þjóðgarða víða um heim.
- Ferðaþjónusta sunnan Vatnajökuls hefur vaxið umtalsvert á síðustu árum. Stofnun þjóðgarðsins í Skaftafelli, uppbygging á aðstöðu og bætt aðgengi að svæðinu er einn af hornsteinum þessarar þróunar. Á svæðinu er því til staðar mikil þekking á uppbyggingu atvinnulífs í tengslum við þjóðgarða.
- Mörg þróunarverkefni í Ríki Vatnajökuls koma til með að styrkja þjóðgarðinn og öfugt. Hægt er að nefna að nú er unnið að gerð göngustíga í Haukafelli á vegum Skógræktar Austur-Skaftafellssýslu, á Heinabergssvæðinu á vegum ferðaþjónustuaðila á Mýrum og Suðursveit, uppbygging vetrarferðamennsku og fuglaskoðun. Stór hluti af samfélaginu á Hornafirði er því vel meðvitaður um gildi þjóðgarðs og mikilvægi hans fyrir þróun byggðar, ferðaþjónustu og útivistar á landinu öllu.
2. Stuðningur við félagslíf ungmenna - umræður á fundinum
Hjalti gerði grein fyrir viðræðum við nemendafélag FAS um aðstöðu og stuðning til félagslífs. Bæjarráð samþykkir að veita nemendafélaginu styrk upp á kr. 300 þúsund fjárhagsárið 2008. Bæjarráð óskar eftir tillögum frá nemendafélagi FAS um aðgang félagsins að Pakkhúsinu og umgengnisreglur þar að lútandi. Í kjölfarið mun bæjarráð óska eftir umsögn menningarmála-nefndar um hugmyndina og taka ákvörðun um aðgengi nemendafélagsins að Pakkhúsinu í kjölfarið. Hugmyndin sveitarfélagsins er að samkomulag þetta sé hugsað fyrir öll ungmenni á aldrinum 16 - 20 ára.
3. Staðsetning gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs
Fyrir fundinum lá tillaga frá Svæðisráði Vatnajökulsþjóðgarðs, dags. 7. nóvember 2007. Tillaga svæðisráðsins er að gestastofa rísi á svæðinu við Stekkakeldu, nánar tiltekið á Stekkanesi. Svæðisráðið fjallaði einnig um þann möguleika að staðsetja gestastofu á Leiðarhöfða sem er við enda Sandbakkavegar á Höfn. Sú staðsetning hefur þann kost að vera í miklu návígi við aðra þjónustu en samrýmist ekki þeirri stefnumörkun sem lá til grundvallar lögum um Vatnajökulsþjóðgarð sem samþykkt voru af Alþingi vorið 2006. Ennfremur var það ríkjandi skoðun fulltrúa í svæðisráði að þröngt yrði um gestastofu á Leiðarhöfða.
Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs telur að staðsetning gestastofu á Stekkanesi hefur ótvíræða kosti í för með sér að mati svæðisráðsins. Útsýni til allra átta stórkostlegt og aðgengi að nesinu er í góðu lagi. Einnig er nægt rými fyrir bílastæði á nesinu. Þá hefur þessi staðsetning þann kost að vera ekki inn í íbúabyggð en í ágætri nálægð við byggðina á Höfn. Svæðisráðið trúir því að þannig geti stofan sómt sér vel og verið áberandi kennimerki þjóðgarðsins en jafnframt aukið dregið fleiri ferðamenn til Hafnar.
Bæjarráð samþykkir framkomna tillögu fyrir sitt leyti og vísar henni til byggingar- og skipulagsnefndar.
4. Útboð á sorpurðun
Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram í samræmi við umræður á fundinum
5. Fjárhagsáætlun 2008 - gögn send í tölvupósti
Starfsmönnum falið að fara yfir tekjuáætlun milli umræðna m.t.t. lækkandi útsvarstekna vegna aflaskerðingar. Einnig er stafsmönnum falið að koma með tillögu á skiptingu stofnbúnaðar á deildir á milli umræðna um fjárhagsáætlun. Bæjarráð samþykkir framlagða fjárhagsáætlun og vísar henni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
6. Innsend bréf og erindi
- Landhelgisgæsla Íslands, bréf dags. 29. október 2007, svar við bréfi dags. 8. október s.l. með bókun bæjarstjórnar frá 4. . október um staðsetningu björgunarþyrlu.
Til kynningar. - Starfsfólk leikskólanna Krakkakots og Lönguhóla, ódagsett bréf, ósk um fund með starfsmönnum skrifstofu sveitarfélagsins.
Bæjarstjóri upplýsti að hann hafi fundað með starfsmönnum leikskólanna og málið sé í vinnslu. - Samband íslenskra sveitarfélaga, bréf dags. 6. nóvember, verkfallslistar fyrir 1. febrúar 2008.
Vísað til starfsmanna. - Lögfræðiálit um tiltekin réttindi landeigenda vegna Hólmslinda, dags. 7. nóvember 2007.
(Jón Jónsson, lögfræðingur hjá REGULA, var í síma undir þessum lið.) Bæjarráð felur Stefáni Ólafssyni að fara með forræði í þessu mál og sjá um samskipti við landeigendur í samvinnu við lögfræðing sveitarfélagsins og bæjarráð. (Hjalti vék af fundi undir þessum lið.)
7. Önnur mál
- Laugardaginn 10. nóvember unnu nemendur í Grunnskóla Hornafjarðar til fyrstu verðlauna í FIRST LEGO league keppninni. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem grunnskólanemendur á Hornafirði sýna góðan árangur þegar kemur að vísindum og nýsköpun. Af þessu tilefni vill bæjarráð bjóða sigurvegurunum, kennara þeirra og þeim foreldrum sem hópnum fylgdu í keppnina til samsætis. Auk þess fer bæjarráð fram á það við bæjarstjóra og hans starfsmenn að Eiríki Hanssyni kennara verði þakkað sérstaklega fyrir þennan góða árangur sem hann á svo stóran þátt í.
- Farið yfir drög að samningi um tímabundna leigu á aðstöðu við gömlu steypustöð til að framleiða steypu, m.a. til sundlaugarbyggingar. Bæjarráð leggur áherslu á að sú steypa sem nota skal til sundlaugarbyggingar standist allar gæðakröfur og prófanir. Framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs falið að vinna áfram að málinu. Afstaða til málsins verður tekin þegar fyrir liggja staðfestar yfirlýsingar um gæði steypunnar.
- Rætt um hugmyndir að stofnun útibús Siglingastofnunar á Hornafirði og minnisblað þar að lútandi.
- Á fundi með starfsmönnum Vegagerðarinnar þann 12. nóv. 2007 kom fram að stofnunin mælir með að farin verði leið 1. Rökin eru þau að umhverfisáhrif þeirrar leiðar séu minnst af þeim leiðum sem eru til skoðunar, leiðin uppfylli einnig öll markmið um umferðaröryggi og greiðfærni auk þess sem hún sé verulega hagkvæmari en aðrar leiðir. Þrátt fyrir þessa niðurstöðu Vegargerðarinnar ítrekar bæjarráð Hornafjarðar fyrri afstöðu sína í þessu máli. Bæjarráð telur það farsælustu lausnina í samgöngumálum Hornfirðinga til framtíðar að ákveðið verði að fara leið 3. Það er sú leið sem kemur til með að styrkja best búsetu og atvinnuskilyrði íbúanna í sveitarfélaginu.
- Samþykkt að næsti bæjarstjórnarfundur, 15. 11. 2007, verði í fundarsal í Nýheimum.
Fundi slitið kl. 18.45


