Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs
397. fundur
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Guðrún Ingimundardóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fjárhagsáætlun 2008
· Forstöðumenn mættu á fundinn til að ræða fjárhagsramma stofnana í þessari röð:
Guðmundur Ingi Sigbjörnsson.
Jóhann Morávek.
Margrét Ingólfsdóttir.
Snæfríður Svavarsdóttir.
Björg Erlingsdóttir.
Pálína Þorsteinsdóttir (í síma).
Borgþór Freysteinsson.
Haukur Helgi Þorvaldsson.
Maren Sveinbjörnsdóttir.
Jón Kristján Rögnvaldsson.
2. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, 82. fundur 18. október 2007.
Björn Ingi gerði lönd í eigu sveitarfélagsins að umtalsefni og benti á að byggingar- og skipulagsnefnd hafi vísað þeim málum til bæjarráðs. Hann greindi frá sjónarmiðum sem hann hafi heyrt frá ýmsum sem komið hafa að máli við hann. Haukur Ingi gerði grein fyrir umræðum í byggingar- og skipulagsnefnd um málið. Hjalti gerði grein fyrir þeirri vinnu sem fram hefur farið að undanförnu og sagði m.a. frá því að drög liggi fyrir að leigusamningi, samþykkt um búfjárhald sé í yfirlestri hjá Bændasamtökunum og að hugmynd sé um að kalla frístundabændur til fundar í ráðhúsi til að fjalla um málefni þeirra og leigu á löndum í eigum sveitarfélagsins.
Rætt um Vesturbraut 3 og breytingar á starfsemi hússins.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, 171. fundur 23. október 2007.
Fundargerð samþykkt
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar, 85. fundur 24. október 2007.
Björn Ingi spurði hvort niðurstaða væri fengin um verkaskiptingu milli ráðuneyta. Upplýst að svo væri ekki. Björn Ingi spurði einnig um stöðuna í viðræðum við heilbrigðisráðuneytið. Hjalti upplýsti að málin muni ekki þokast mikið þar til niðurstaða fáist í verkaskiptingu á milli ráðuneyta.
Fundargerð samþykkt
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar, 78. fundur 25. október 2007.
Fundargerð samþykkt
· Skólanefnd Hornafjarðar, 97. fundur 24. október 2007.
Samþykkt að vísa umræðu um systkinaafslátt á milli skólastiga til vinnu við gerð fjölskyldustefnu fyrir sveitarfélagið.
Mikil umræða skapaðist um vettvangsferðir og skólaferðalög.
Fundargerð samþykkt
· Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar, 93. fundur 18. október 2007.
Rætt um hugmyndir um skautasvell. Bæjarráð leggur áherslu á að málinu verði fylgt eftir þannig að hægt verði að skauta á Hornafirði þegar þannig viðrar. Nokkrar hugmyndir ræddar um hugsanlegan stað fyrir skautasvell og starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
Fundargerð samþykkt
· Starfshópur um félagslíf grunnskólanema, 2. fundur 23. október 2007.
Fundargerð samþykkt
· Fundargerð 747. fundar stjórnar sambands ísl. sveitarfélaga 29. október 2007.
Rætt um lið 7 um bjargráðasjóð.
Til kynningar.
3. Rekstraryfirlit bæjarsjóðs 30. september 2007
Niðurstaða fyrstu níu mánuði ársins er jákvæð um 133 m.kr. sem er í samræmi við áætlun.
4. Húsnæðismál
Hjalti greindi frá umræðum um stöðu á íbúðamarkaði á Hornafirði. Hann sagði til dæmis að fyrirséð væri að stofnanir í Nýheimum myndu ráða til sín nokkra starfsmenn á næstu mánuðum. Vandamál væri að skortur væri á frambærilegu húsnæði til leigu. Ræddi hann jafnframt um ýmsar hugmyndir að lausn í þessum málum.
Haukur Ingi Einarsson, gerði grein fyrir samtali sínu við verktaka sem hyggur á íbúðabyggingar á Höfn.
Bæjarráð mun taka málið til frekari umræðu á næstunni.
5. Ósk um umsögn um lágmarks viðmiðunarfjárhæðir fjárhagsaðstoðar til einstaklinga
Jón Kristján Rögnvaldsson, félagsmálastjóri, mætti á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir málinu.
Bæjarráð felur félagsmálastjóra að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.
6. Fjárhagsleg aðkoma sveitarfélaga að Starfsendurhæfingu Austurlands
Óskað eftir frekari upplýsingum. Afgreiðslu frestað.
7. Innsend bréf og erindi
· Hjalti Egilsson og Birna Jensdóttir, bréf dags. 15. október 2007, varðar framleiðslu á vatni.
Bæjarráð fagnar framkomnum hugmyndum en óskar eftir að lögfræðingar sveitarfélagsins lesi yfir lögfræðiálit sem fylgir erindinu. ( Hjalti Þór vék af fundi við afgreiðslu þessa máls )
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 16. október 2007, bæklingur um stuðning við dönskukennslu á Íslandi.
Til kynningar.
· Heilbrigðiseftirlit Austurlands, bréf dags. 17. október 2007 fundarboð á aðalfund.
Samþykkt að Haukur Ingi Einarsson fari með atkvæði sveitarfélagsins á aðalfund HAUST.
· Háskólinn í Reykjavík, bréf dags. 19. október 2007, varðar rannsókn á áhrifum mannauðsstjórnunar á hollustu, jafnvægi, ánægju og jákvæða hegðun starfsmanna.
Til kynningar.
· Norðurbragð, bréf dags. 19. október 2007, fundarboð á aðalfund. 30. október 2007.
Til kynningar.
· Landvernd, ódagsett bréf um verkefnið „Skólar á grænni grein“.
Vísað til skólanefndar.
· Samband íslenskra sveitarfélaga kjarasvið,tölvubréf dags. 22. október 2007, undirbúningur kjarasviðs og LN vegna komandi kjaraviðræðna, umboð LH og fleira.
Til kynningar.
· Martölvan ehf., bréf dags. 21. júní 2007, internetþjónusta á Hornafirði.
Kom fram að erindið barst 23. október en ekki í júní eins og dagsetning bréfsins gefur til kynna.
Umræða um háhraðatengingar í dreifbýli.
Starfsmönnum falið að kynna sér aðkomu fjarskiptasjóðs að sambærilegum verkefnum.
· Martölvan ehf., bréf dags. 21. júní 2007, viðskipti við Martölvuna ehf.
Kom fram að erindið barst 23. október en ekki í júní eins og dagsetning bréfsins gefur til kynna.
Vísað til starfsmanna.
· StorIce ehf., bréf dags. 21. júní 2007, afritun gagna.
Kom fram að erindið barst 23. október en ekki í júní eins og dagsetning bréfsins gefur til kynna.
Vísað til starfsmanna.
· Jöfnunarsjóður, bréf dags. 25. október 2007, áætlun um heildargreiðslur sveitarfélaga á húsaleigubótum 2008.
Til kynningar
· Sýslumaðurinn á Höfn, bréf dags. 26. október 2007, yfirlandskipti Skógeyjarsvæðis.
Til kynningar.
8. Önnur mál
· Samþykkt að innleiða rafrænt uppáskriftakerfi í tengslum við nýja uppfærsla á Navison samkvæmt framlögðu tilboði.
Fundi slitið kl. 15.00


