Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 395
395. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal í ráðhúsi mánudaginn 15. október 2007 kl. 16:00
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Guðrún Ingimundardóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 81. fundur 27. september 2007.
Björn Ingi spurðist fyrir um reglur varðandi útleigu á landi í eigu sveitarfélagsins. Vinna er í gangi varðandi málið.
Vegna fjórða liðar á dagskrá nefndarinnar kom fram að margvíslegur aukakostnaður gæti fylgt búgarðabyggð, svo sem vegna vegagerðar, vatnsveitu, frárennslis, skólaaksturs o. fl., kostnaður sem gæti lagst á sveitarfélagið.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 170. fundur 9. október 2007.
Fundargerð samþykkt
· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 746. fundur 28. september 2007.
Bæjarráð tekur undir bókun stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga um að hlutafall ríkis / sveitarfélaga skiptist 60% / 40% eins og upphaflega var að stefnt en ekki að velta kostnaði á sveitarfélögin umfram 40% sem ítrekað hefur gerst.
Til kynningar.
2. Fjárhagsáætlun 2008 – rekstrarrammar – gögn send út í tölvupósti þegar þau liggja fyrir
Ásta fór yfir útsend gögn, tillögur að forsendum fjárhagsáætlunar 2008 og tillögur að rekstrarrömmum.
Bæjarráð samþykkir framlagt minnisblað dags. 15. október 2007 og ennfremur samþykkir bæjarráð fyrstu drög að rekstrarrömmum dags. 15. október 2007.
3. Ósk um styrkfrá útskriftarnemum FAS – verkefni
Styrkveitingu vegna útskriftarferðlags hafnað.
4. Need verkefnið – hugsanleg aðild sveitarfélagsins í verkefninu
Afhent kynning frá Þorvarði Árnasyni um málið. Afgreiðslu málsins frestað til næsta fundar, starfsmönnum falið að afla nánari upplýsinga um málið.
5. Innsend bréf og erindi
· Lýðheilsustofnun, bréf dags. 25. september 2007, 9. norræna lýðheilsuráðstefnan 10.-13. júní 2008 í Svíþjóð.
Til kynningar.
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 26. september 2007, um úthlutun úr framkvæmdasjóði fatlaðra til aðgengismála í Grunnskóla Hornafjarðar.
Framkvæmdasjóður fatlaðra leggur til allt að 50% af heildarkostnaði, eða kr. 4.500.000.- vegna lagfæringa á aðgengi í grunnskólanum. Kostnaði vegna breytinga að öðru leyti vísað til fjárhagsáætlunar 2008.
· Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum, bréf dags. 28. september 2007, lækkun hitakostnaðar íbúðarhúsnæðis. Skýrsla send í tölvupósti.
Til kynningar.
· Heilbrigðiseftirlit Austurlands, bréf dags. 1. október 2007, heildarúttekt á neysluvatni.
Til kynningar. Fram koma ánægja með að slík úttekt verði gerð.
· Félagsmálaráðuneytið,reglur dags. 2. október 2007, reglur um ráðstöfun 1.400 aukaframlags til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á árinu 2007.
Ásta upplýsti að búið er að úthluta 700 m.kr. af aukaframlagi Jöfnunarsjóðs.
Til kynningar.
· Foreldraráð grunnskóla Hornafjarðar , ódagsett bréf, áskorun vegna staðsetningar íþróttahúss.
Starfsmönnum falið að svara foreldraráði að bréfið hafi verið móttekið og það sé til skoðunar ásamt öðrum gögnum um byggingu knattspyrnuhúss.
· Landbúnaðarráðuneytið, bréf dags. 26. september 2007, ósk um ábendingar frá sveitarfélaginu vegna landaskipta ríkislandsins í Flatey.
Vísað til umhverfisnefndar, byggingar- og skipulagsnefndar og atvinnumálanefndar.
· Matís, 2. október, niðurstöður sýna úr sjó í Hornafirði.
Samþykkt að slík sýni verði tekin reglulega og þéttar en gert hefur verið. Fram kemur að gerlamagn hefur minnkað verulega frá sambærilegum sýnum 2002.
· Heilbrigðiseftirlit Austurlands, bréf dags. 3. október 2007, eftirlitsskýrsla um áhaldahús sveitarfélagsins.
Vísað til starfsmanna.
· Síminn, tölvupóstur 8. október 2007, auglýsingar bæjarhátíða í símaskrá.
Vísað til starfsmanna.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf 10. október 2007, fundaröð um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði á Grand Hótel 19. október 2007.
Til kynningar.
6. Önnur mál
Greint frá bréfi samgönguráðuneytisins, dagsett 9. október, sem er svar við samþykkt (bókun) bæjarráðs um Hornafjarðarflugvöll á fundi þann 17. september sl.
Fundi slitið kl: 19:20


