Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 394
394. fundur
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson varaformaður, Elín Magnúsdóttir og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Árni setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 96. fundur 26. september 2007.
Farið yfir drög að þjónustusamningi við Siglingastofnun. Fram kom ánægja með þessi drög og því fagnað að þau skuli komin fram. Bæjarráð felur bæjarstjóra að leiða viðræður við Siglingastofnun um þjónustusamning við stofnunina, 4. liður á dagskrá hafnarstjórnar.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 92. fundur 26. september 2007.
Árni gerði það að tillögu sinni að hafa fimm fulltrúa í starfshópi um félagslíf grunnskólanema eins og áætlað var í upphafi en ekki sex eins og skólanefnd gerði að tillögu sinni. Halldóra sagðist taka undir orð Sigríðar um að skipa starfshóp um húsnæðismál skólanna. Hjalti sagðist fagna þeirri tillögu en ræddi einnig annað húsnæði sem þyrfti að skoða með tilliti til nýtingar, á því þyrfti að taka auk skoðunar á húsnæði skólanna.
Undir þessum dagskrálið var samþykkt að kjör fulltrúa bæjarráðs í starfshóp um félagslíf grunnskólanema væri sérstakur dagskrárliður á fundinum.
Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundaráð 92. fundur 20. september 2007.
Hjalti gerða að umtalsefni lýðheilsumál, 3. liður á dagskrá ráðsins. Samþykkt að vísa lýðheilsumálum til mótunar væntanlegrar fjölskyldustefnu sveitarfélagsins.
Einnig rætt um breytingar á vaktaðstöðu fyrir starfsmenn í íþróttahúsi og hvað hún gæti bætt eftirlit með nemendum sem eru að bíða eftir að komast inn í íþróttahús.
Rætt um textavél vegna kvikmyndasýninga. Samþykkt að vísa því máli til fjárhagsáætlunargerðar næsta fjárhagsárs.
Fundargerð samþykkt.
· Yfirstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs 24. september 2007, minnispunktar Hjalta Þórs Vignissonar
Hjalti fór yfir fundinn og ræddi m.a. staðsetningu gestastofa fyrir þjóðgarðinn sem hann sagði mikilvægt að fá niðurstöðu í. Halldóra þakkaði minnispunkta Hjalta en spurði jafnframt hvort fundargerðir yfirstjórnar og svæðisráða gætu ekki borist til bæjarráðs. Einnig ræddi hún staðsetningu gestastofu fyrir þjóðgarðinn. Þá var rætt um hollvinasamtök þjóðgarðsins og stöðu þess máls.
2. Kjör fulltrúa bæjarráðs í starfshóp um félagslíf grunnskólanema, nýr dagskrárliður.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Eygló Illugadóttur sem sinn fulltrúa og jafnframt sem formann starfshóps sem gera á úttekt og koma með tillögur um félagslíf grunnskólanema. Aðrir í ráðinu eru þau Iðunn Tara Ásgrímsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Gauti Árnason og Matthildur Ásmundardóttir.
3. Rekstrarstaða sveitarsjóðs 31. 08. 2007
Ásta fór yfir helstu niðurstöður í rekstri. Halldóra spurði hvað reikna megi með að fari í varanlega fjárfestingu á þessu ári og hvort tekið væri tillit til þess við endurskoðaða fjárhagsáætlun. Ásta sagði endurskoðaða fjárhagsáætlun þessa árs hafa verið lækkaða um 90 millj. vegna minni framkvæmda við sundlaug á Höfn en gert var ráð fyrir í upphaflegri fjárhagsáætlun.
4. Fjárhagsáætlun 2008
Farið yfir forsendur fjárhagsáætlunar 2008, fyrstu drög. Starfsmönnum falið að vinna áfram í samræmi við fram lagðar forsendur og þær umræður sem fram fóru á fundinum.
5. Afmörkun lóðar við heimavist og mötuneyti Nesjaskóla
Bæjarráð samþykkir afmörkun lóðar vegna þess hluta húsnæðis Nesjaskóla sem fyrirhugað er að selja.
6. Frágangur á íþróttavelli
Bæjarráð samþykkir að girt verði með sama efni og notað er til að girða af leikskólalóðir sveitarfélagsins, heildarupphæð verksins er áætluð kr. 3.015.000.-
7. Erindisbréf fyrir Ungmennaráð Hornafjaðar
Bæjarráð samþykkir erindisbréf ungmennaráðs fyrir sitt leyti.
8. Innsend bréf og erindi
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 19. september 2007, varðar sérúrræði fyrir lesblinda nemendur í samræmdum prófum í 4. og 7. bekk.
Vísað til skólanefndar.
· Sýslumaðurinn á Höfn, bréf dags. 20. september 2007, ósk um umsögn um útgáfu leyfis til reksturs gistiheimilis að Hoffelli II.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
· Kvennakór Hornafjarðar, bréf dags. 24. september 2007, ósk um styrk vegna starfsemi.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2008.
· Landsskrifstofa Staðardagskrár 21, bréf dags. 25. september 2007, ráðgjöf vegna Staðardagskrár 21.
Vísað til umhverfisnefndar.
· Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi, bréf dags. 20. september 2007, tilkynning um trúnaðarmenn hjá sveitarfélaginu.
Til kynningar.
· Landsbjörg, Umferðarstofa, Árvekni, bréf dags. 24. september, niðurstöður könnunar á öryggi barna í bílum fyrir utan leikskóla landsins.
Til kynningar.
· Samband sveitarfélaga á Austurlandi, bréf dags. 26. september 2007, samþykktir frá 41. aðalfundi SSA.
Til kynningar.
9. Önnur mál
- Haukur Ingi fór yfir verksamninga við Mikael ehf., Raf – Horn ehf., Króm og hvítt ehf., Málningarþjónustan ehf. og Rósaberg ehf. og ráðningarsamning við byggingarstjóra vegna byggingar sundlaugar við íþróttahús á Höfn. Bæjarráð samþykkti samningana fyrir sitt leyti og fagnar því að framkvæmdir vegna sundlaugar fari að hefjast.
- Halldóra gerði þá athugasemd að fundarboðið væri ekki rétt tímasett.
Fundi slitið kl. 19:55


