Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 392
392. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal í ráðhúsi mánudaginn 17. september 2007 kl. 16:00.
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, 169. fundur 11. september 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 41. fundur 10. september 2007.
Rætt um ráðningu byggingarstjóra við sundlaugarmannvirki. Samningur um þennan þátt verksins sem og samningar um aðra verkþætti verða bornir undir bæjarráð til lokaafgreiðslu.
Bæjarráð er því sammála að knattspyrnuhús verði byggt úr stálgrind eða sambærilegu efni. Haldið verði opnum möguleikum á efnisvali í þak og klæðningu hússins. Þá telur bæjarráð rétt að farið verði í alútboð vegna þessa verks. Einnig var fjallað um staðarval fyrir húsið. Nefnd um íþróttamannvirki falið að fjalla um byggingu knattspyrnuhúss á þessum forsendum um val á byggingarefni og einnig var nefndinni falið að koma með tillögur um staðarval.
Rætt var um girðingu um frjálsíþrótta- / knattspyrnuvöll og lögð áhersla á að ljúka því máli sem fyrst.
Fundargerð samþykkt.
2. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2007
Ásta kynnti vinnu við endurskoðun á fjárhagsáætlun 2007. Farið var yfir tekjuáætlun sem hækkar um 100 milljónir frá áætlun þeirri sem samþykkt var í desember 2006. Launaáætlun og um leið endanleg endurskoðuð fjárhagsáætlun verður lögð fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
3. Mótvægisaðgerðir ríkistjórnarinnar vegna samdráttar í þorskafla
Lýst var yfir ánægju með ýmsa þætti í mótvægisaðgerðunum sem snúa að okkar samfélagi. Fram komu áhyggjur af stöðu einyrkja í útgerð og minni fiskverkendum sem og af stöðu fiskverkafólks og sjómanna.
4. Útboð á urðun sorps
Bæjarráð samþykkir að segja upp núverandi samningi um urðun á sorpi frá og með næstu mánaðamótun og að urðun á sorpi verði í kjölfarið boðin út.
5. Aðalfundar SSA
Hjalti greindi frá ferðatilhögun á aðalfundinn. Einnig farið yfir undirbúning fyrir þingið.
6. Innsend bréf og erindi
· Samband íslenskra sveitarfélaga, bréf dags. 5. september 2007, verkefni um hagsmunagæslu í úrgangsmálum.
Vísað til umhverfisnefndar.
· Samband íslenskra sveitarfélaga, bréf dags. 6. september 2007, þjóðlendumál.
Vísað til atvinnumálanefndar.
· Samband íslenskra sveitarfélaga, bréf dags. 7. september 2007, viðmiðunarreglur um kirkjugarðsstæði o.fl.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
· Starfs og endurmenntunardeild Landbúnaðarháskóla Íslands, tölvubréf dags. 7. september 2007, Ráðstefna á Hótel Örk 21. og 21. september 2007 um miðlun og þekkingu í evrópskum landbúnaði og garðyrkju.
Til kynningar.
· Sýslumaðurinn á Höfn, bréf dags. 7. september 2007, varðar landaskipti á Skógeyjarsvæði.
Til kynningar.
· Lögreglan á Höfn, dagbókarfærslur dags. 10. september 2007, lausaganga búfjár.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 12. september 2007, Landupplýsingar 2007, ráðstefna 17. október n.k. á Grand Hótel í Reykjavík.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf 13. september 2007, Námsstefna um gagnkvæmd viðurkenningu prófsskírteina og starfsréttinda á Evrópska Efnahagssvæðinu hjá Endurmenntun HÍ.
Til kynningar.
7. Önnur mál
- Bæjarráð Hornafjarðar leggur áherslu á að gerðar verði endurbætur á öryggis- og eftirlitsþáttum á Hornafjarðarflugvelli þannig að hægt verði að taka þar á móti minni farþegaflugvélum í millilandaflugi. Hornafjörður er í 3 – 4 klukkustunda akstursfjarlægð frá Egilsstaðaflugvelli og 7 – 8 klukkustunda akstursfjarlægð frá Keflavíkurflugvelli. Með aukinni flugumferð til landsins á minni farþegaflugvélum skapast aukin tækifæri á atvinnuuppbyggingu vegna slíks flugs. Í Skaftafellssýslum eru margir af eftirsóknarverðustu ferðamannastöðum á Íslandi og straumurinn þangað mun að öllum líkindum aukast með tilurð Vatnajökulsþjóðgarðs. Það er því sjálfsögð og eðlileg krafa þeirra sem ferðast til landsins og þeirra sem atvinnu hafa af ferðaþjónustu að aðgangur erlendra ferðamanna verði auðveldaður að nokkrum helstu náttúruperlum Íslands með bættum flugsamgöngum til Hornafjarðar. Meðan þetta mál verði skoðað af viðkomandi yfirvöldum er farið fram á að ekki verði af fyrirhuguðum breytingum sem varða ferjuflug og annað sambærilegt flug til og frá Hornafirði.
- Greint frá fyrirhuguðum fundi með fjárlaganefnd þann 28. september næstkomandi.
- Reynir óskaði eftir upplýsingum um eignarhald á núverandi netdreifikerfi á milli stofnana sveitarfélagsins.
- Greint frá viðræðum við starfsmenn starfsgreinafélagsins Afls vegna tillagna um að breyta lausráðningu stuðningsfulltrúa í grunnskólum í fastráðningu á ársgrundvelli. 100% starf á starfstíma skóla breyttist þá í ríflega níutíu prósent starf á heils árs grunni. Gengið yrði út frá því að enginn lækkaði í launum við þessa breytingu. Jafnframt kynntir útreikningar á launum starfsmanna við þessa breytingu. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga um breytt ráðningarkjör stuðningsfulltrúa við Afl á forsendum sem kynntar voru á fundinum.
- Björn Ingi gerði að umtalsefni fyrirhugaðan veg yfir Hornafjarðarfljót. Hjalti sagði málið enn vera í höndum veghönnunardeildar Vegagerðarinnar.
Fundi slitið kl. 18:17


