Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 390
390. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal í ráðhúsi mánudaginn 3. september 2007 kl. 16:00.
Reynir Arnarson formaður, Árni Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 168. fundur 28. ágúst 2007.
Jón Kristján Rögnvaldsson félagsmálastjóri fór yfir samantekt og ábendingar félagsmálaráðs vegna þjónustukönnunar Capacent. Benti hann m.a. á erfiða stöðu einstæðra foreldra. Hjalti sagði ábendingar ráðsins vera góðar og gætu þær verið þáttur í mótun fjölskyldustefnu fyrir sveitarfélagið. Tekið var undir það sjónarmið að hefja þurfi vinnu að fjölskyldustefnu fyrir sveitarfélagið.
Bæjarráð samþykkir að hafin verði vinna við fjölskyldustefnu fyrir sveitarfélagið. Félagsmálastjóra falið að leggja fram tillögur að verkáætlun vegna vinnu við hana.
Fundargerð samþykkt
· Heilbrigðisnefnd Austurlands 71. fundur 22. ágúst 2007.
2. Sala á Nesjaskóla
Hjalti greindi frá samskiptum sínum við menntamála- og fjármálaráðuneyti vegna þessa máls.
Bæjarráð samþykkir að stefnt skuli að auglýsingu á Nesjaskóla í samræmi við fyrri samþykktir um það mál. Auglýst verði í þessum mánuði með það í huga að afhending geti farið fram í byrjun árs 2008 ef viðunandi tilboð berst.
3. Náttúrustofa Suðausturlands
Hjalti fór yfir málið og greindi frá samskiptum sínum við starfsmenn Skaftárhrepps.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu í samræmi við fyrirliggjandi drög að samkomulagi Skaftárhrepps og Sveitarfélagsins Hornafjarðar um Náttúrustofu Suðausturlands.
4. Innsend bréf og erindi
· Þorkell Ó. Vignisson og Sigmar P. Einarsson, bréf ódagsett, um Sindrabíó.
Vísað til æsku- og tómstundaráðs og jafnframt samþykkt að senda bréfriturum svar um í hvaða farveg málið hafi farið.
· Starfsfólk leikskólanna, bréf dags. 17. ágúst 2007, varðar launalaus leyfi.
Bæjarráð telur ekki hægt að samþykkja sérstaka meðferð (reglur) um launalaust leyfi og skerðingu orlofs vegna þess fyrir þessar tvær umræddu stofnanir sveitarfélagsins. Eitt verði að gilda fyrir allar stofnanir í samræmi við gildandi kjarasamninga viðkomandi starfsmannahópa. Erindinu því vísað til fyrirhugaðrar endurskoðunar á starfsmannastefnu sveitarfélagsins.
· Samgönguráðuneytið, bréf dags. 20. ágúst 2007, GSM farsímaþjónusta.
Bæjarráð leggur áhersla á að endurbótum á GSM-farsímaþjónustu ljúki sem fyrst. Jafnframt samþykkt áskorun um að nú þegar verði hafist handa við uppbyggingu á háhraðanettengingum í dreifbýli.
· Menntamálaráðuneytið bréf dags. 21. ágúst 2007, Evrópskur tungumáladagur 26. september 2007.
Vísað til skólaskrifstofu.
· Siglingastofnun, bréf dags. 23. ágúst 2007, niðurstöður verðkönnunar vegna viðhaldsdýpkunar.
Siglingastofnun sér um samninga við tilbjóðanda og málið verður tekið fyrir í hafnarstjórn.
· Samband ísl. sveitarfélaga , tölvubréf dags. 27. ágúst 2007, fundur um endurnot opinberra upplýsingar í Kornhlöðunni 5. september 2007.
Til kynningar.
5. Önnur mál
- Hjalti gerði grein fyrir samtölum sínum við ábúendur í Svínafelli í Nesjum og Viðborðsseli á Mýrum um breytingar á rennsli Hornafjarðarfljóta. Landbrot á Viðborðsströnd hefur aukist umtalsvert í kjölfar þess að Fljótin renna nú sameinuð í Suðurfljótum. Einnig ræddi Hjalti landbrot í grennd við Haukafell og ágang Jökulsár í Lóni á landið inn með Stafafellsfjöllum og landbrot við Laxá í Lóni. Bæjarráð leggur áherslu á að gróin lönd verði varin fyrir ágangi jökulfljóta og annarra fljóta sem skaða valda á grónu landi. Bæjarstjóra er falið að rita þingmönnum Suðurkjördæmis og einnig ráðherrum umhverfis- og landbúnaðarmála bréf vegna þessa.
- Ásta greindi frá ársreikningum Nýherjabúða ehf. Nokkur umræða spannst um aðkomu og ábyrgð sveitarfélagsins vegna fyrirtækisins.
- Samþykkt að senda Ríkisútvarpinu bréf þar sem farið er fram á að RDS-tækni verði virk í útvarpssendum Ríkisútvarpsins í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Fundi slitið kl. 18:20
Fundi slitið kl. 18:20


