Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 389
389. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal í ráðhúsi mánudaginn 27. ágúst 2007 kl. 16:00.
Árni Þorvaldsson varaformaður, Elín Magnúsdóttir og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig Stefán Ólafsson.
Árni setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 33. fundur 21. ágúst 2007.
Bæjarráð leggur þunga áherslu á sauðfjárveikivarnalína á milli Mýra og Nesja verði óbreytt. Bæjarráð telur að eina varanalega lausnin sé fólgin í girðingu frá jökullóni við Hoffellsjökul og að brúnni yfir Hornafjarðarfljót. Þetta er sú lína sem staðið hefur um langa hríð og er að mati bæjarráðs mjög mikilvæg til varnar búfjársjúkdómum.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 95. fundur 17. ágúst 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar83. fundur 22. ágúst 2007.
Elín spurðist fyrir um stöðu þjónustusamningsins og gerði að umtalsefni læknamálin. Árni fór yfir stöðu mála og greindi m.a. frá samtölum við ráðherra heilbrigðismál- og fjármála. Lagði hann áherslu á að vinnu við samninginn ljúki sem fyrst.
Halldóra spurðist fyrir um hvernig 7 mánaða rekstaruppgjör hafi komið út. Þá greindi hún frá samtölum við heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra og taldi vilja hjá þeim ráðherrum að ljúka þjónustusamningi. Einnig ræddi Halldóra framhaldið, hvaða vinnulag menn sæju fyrir sér.
Árni sagði rekstrarstöðuna í góðu lagi og er þá miðað við að ákvörðun Tryggingastofnunar um skert framlög vegna ónýttra hjúkrunarrýma komi ekki til framkvæmda. Þá sagði hann að Hjalti muni leiða vinnu vegna áframhaldandi þjónustusamnings um heilbrigðismál.
Fundargerð samþykkt.
· Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs 36. fundur 22. ágúst 2007.
Fundargerð samþykkt.
2. Samþykkt um búfjarhald í Sveitarfélaginu Hornafirði
Samþykkt að í 5. gr., 5. síðasta lína, komi í stað “landbúnaðarnefndar” orðið atvinnumálanefndar.
Bæjarráð samþykkir að vísa samþykkt um búfjárhald til afgreiðslu í bæjarstjórn með fyrrgreindri breytingu.
3. Samkomulag um búfjárlausa vegi og vegsvæði í Sveitarfélaginu Hornafirði
Samþykkt að bæta við 1. grein samningsins – og þjóðvegur nr. 99, Hafnarvegur - . Orðin “verður friðaður” í sömu grein verði friðaðir.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning við Vegagerðina með áorðnum breytingum.
4. Ósk um umsagnir vegna útgáfu/endurútgáfu rekstrarleyfa
· Sýslumaðurinn á Höfn, bréf dags. 17. ágúst 2007 vegna Gistiheimilis að Hofi 1Austurbæ, Öræfum og Farfuglaheimilisins Nýjabæ, Hafnarbraut 8 á Höfn.
Bæjarráð samþykkir útgáfu leyfanna.
5. Lóðarumsókn fyrir gripahús á Ægissíðu
Bæjarráð óskar eftir umsögn byggingar- og skipulagsnefndar.
6. Innsend bréf og erindi
· Brunabót, bréf dags. 21. ágúst 2007, ágóðahlutagreiðsla 2007.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf um ráðstefnu um vistvænar lausnir í samgöngum, 17. og 18. september n.k..
Vísað til umhverfisnefndar.
· Minnisblað Guðjóns Bragasonar, dags. 5. júlí 2007, til Þórðar Skúlasonar framkvæmdastjóra Sambands ísl. sveitarfélaga um aðkomu sambandsins að þjóðlendumálaum.
Til kynningar.
7. Önnur mál
Halldóra óskaði eftir upplýsingum um fjölda nemanda í skólunum, breytingar á mannahaldi og sameiningu bekkja. Afhent Halldóru að loknum fundi. upplýsingum um fjölda nemanda í skólunum, breytingar á mannahaldi og sameiningu bekkja. Afhent Halldóru að loknum fundi. Fundi slitið kl. 17:10


