Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 388
388. fundur
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni Þorvaldsson og Halldóra Bergljót Jónsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 32. fundur 2007.
Spurt var um bótaábyrgð vegna tjóns af völdum búfjár. Upplýst að eftir sem áður bæri ökumaður kostnað af tjóni. Spurt var um hver beri kostnað vegna viðhalds girðinga og eftirlits með þjóðvegum. Upplýst að Vegagerðin taki yfir viðhald girðinga en sveitarfélagið hafi eftirliti með þjóðvegunum.
Fundargerð samþykkt.
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, 80. fundur 8. ágúst 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð, 167. fundur, 14. ágúst 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar, 77. fundur 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd, 95. fundur, 13. ágúst 2007.
Halldóra óskaði eftir upplýsingum um fjölda barna í leikskólum og grunnskóla sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt.
2. Gjaldskrá lengdrar viðveru skólaárið 2007 – 2008
Bæjarráð samþykkir að lækka gjaldskrá lengdrar viðveru um 10%. Að öðru leyti breytist gjaldskráin ekki.
3. Nýheimar
Fyrir fundinum lá fundargerð frá 10. ágúst 2007 um framtíðaruppbyggingu Nýheima. Miklar umræður spunnust um framtíð Nýheima, starfsemi og aðstöðusköpun til framtíðar. Kom fram að stefnt er að því að ljúka við stefnumótun fyrir Nýheima í haust.
4. Erindisbréf starfshóps um úttekt og tillögur er varða félagslíf grunnskólanema
Lögð fram tillaga um að í starfshópnum eigi sæti fimm aðilar, einn skipaður af skólanefnd, einn skipaður af æskulýðs- og tómstundaráði, einn skipaður af foreldrafélagi, formaður nemendaráðs 6.-10. bekkjar Grunnskóla Hornafjarðar og einn skipaður af bæjarráði sem yrði formaður hópsins.
Bæjarráð samþykkir erindisbréfið með áorðnum breytingum. Samþykkt að fulltrúi bæjarráðs verður skipaður þegar aðrir aðilar hafa tilnefnt sína fulltrúa.
5. Ósk um umsögn á reglugerð um heilbrigðisumdæmi og heilsugæslustöðvar
· Heilbrigðisráðuneytið 30. júlí 2007.
Halldóra benti á að langt er í aðrar heilbrigðisstofnanir og mikilvægt að minna á sérstöðu okkar að því leyti.
Bæjarráð vísar málinu til HÖR.
6. Ósk um umsögn á tillögu um breytingu á svæðisskipulagi miðhálendis innan Skaftafellsþjóðgarðs við Lakagíga og á aðliggjandi svæðum í Skaftárhreppi
· Samvinnunefnd um miðhálendi Íslands, bréf dags. 10. ágúst 2007.
Engar athugasemdir.
7. Ósk um umsagnir vegna útgáfu rekstrarleyfa
· Sýslumaðurinn á Höfn, bréf dags. 13. ágúst 2007 vegna gistiheimilis að Flatey á Mýrum og gistiheimilisins Hafnarnesi.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir fyrir sitt leyti.
Undir þessum lið sköpuðust umræður um skipan lögreglumála og breytingar á sýslumannsembættum. Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir fundi með sýslumanninum á Eskifirði um málið.
8. Innsend bréf og erindi
· Heilbrigðiseftirlit Austurlands, bréf dagsett 30. júlí 2007. Niðurstöður rannsókna á baðvatni í sundlauginni á Höfn.
Til kynningar.
· Fornleifavernd ríkisins, bréf dags. 15. ágúst 2007, breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Vísað til starfsmanna.
· Haust, bréf dags. 7. ágúst 2007, eftirlitsskýrsla um urðunarstað í Lóni.
Haukur upplýsti um vinnu við gerð útboðsgagna.
· Hinsegin dagar í Reykjavík, bréf dags. 1. ágúst 2007, ósk um styrk.
Hafnað.
· Umhverfisráðuneyti, bréf dags. 8. ágúst 2007, styrkur til fráveituframkvæmda.
Til kynningar.
9. Önnur mál
Engin.
Fundi slitið kl. 17.00


