Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 387
387. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal í ráðhúsi fimmtudaginn 9. ágúst 2007 kl. 10:00.
Mættir: Reynir Arnarson formaður, Árni Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Nefnd um íþróttamannvirki 40. fundur 30. júlí 2007.
Haukur greindi frá stöðunni í sambandi við útboð sundlaugarmannvirkja og viðræðum við verktaka. Bæjarráð samþykkir að auglýst verði eftir byggingarstjóra sundlaugarmannvirkja og að samið verði við Verkfræðiþjónustuna ehf. vegna eftirlits með byggingaframkvæmdum.
Fundargerð samþykkt
2. Lóðaumsóknir
· Umsókn Skeljungs, bréf dags. 27. júlí 2007, ósk um viðræður um lóð fyrir bensín og þjónustustöð á mótum Hafnarvegar og nýs hringvegar.
Bæjarráð telur að ekki sé tímabært að hefja þessar viðræður. Hvorki er vitað með fullri vissu hvar þessi gatnamót verða og skipulag á væntanlegum gatnamótum liggur ekki fyrir.
· Umsókn Trausta Magnússonar. dags. 1. ágúst 2007, Fákaleira 10a.
Umsókn samþykkt.
3. Deiliskipulag á Leirusvæði
Greint frá umræðum á fundi byggingar- og skipulagsnefndar þann 8. ágúst sl. þar sem samþykkt var að helstu umferðargötur á Leirusvæði verði 7 metrar á breidd og botnlangarnir tveir 6 metrar á breidd og að ekki verði skylt að byggja 2ja hæða hús á byggingarreit E3 sem er næst Hrossabithaga. Bæjarráð samþykkir deiliskipulag á Leirusvæði með fram komnum breytingum í byggingar- og skipulagsnefnd þann 8. ágúst 2007 og vísar því til afgreiðslu í bæjarstjórn.
4. Innsend bréf og erindi
· Vegagerðin, tölvubréf dags. 29. júní , safnvegaáætlun.
Til kynningar
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 4. júlí 2007, ný lög um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
Til kynningar.
· Hafnasamband Íslands, bréf dags. 19. júlí 2007, tilkynning um hafnafund 14. september 2007.
Vísað til hafnarstjórnar.
· Samkeppniseftirlitið, bréf dags. 19. júlí 2007 ósk um upplýsingar um sorpmál.
Vísað til tækni- og umhverfissviðs.
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 30. júlí 2007, svar vegna bókunar á fundi bæjarráðs 9. júlí vegna skerðingar þorskkvóta.
Til kynningar.
· Lex lögmannsstofa, afrit af bréfi til Vegagerðarinnar, dags. 30. júlí 2007, varðar úrskurð umhverfisráðherra frá 11. maí 2007 um matsáætlun mats á umhverfisáhrifum lagningar hringvegar um Hornafjaðarfljót.
Til kynningar
· Bréf Hákonar Valdimarssonar byggingarfulltrúa dags. 1. ágúst v. athugasemda um breytingu á aðalskipulagi vegna lagningu ljósleiðara.
Starfsmanni falið að ganga frá texta í samræmi fram komnar ábendingar.
5. Önnur mál
- Mötuneyti grunnskólanna. Stefán fór yfir útsend drög að samningi við Kaffi Hornið, dagsett 26. júlí 2007, um skólamötuneyti fyrir nemendur í 4. – 10. bekk grunnskólans,. Bæjarráð samþykkir fram lögð samningsdrög. (Árni vék af fundi undir þessum dagskrárlið)
- Bæjarráð samþykkir að mötuneytisgjöld fyrir nemendur á yngsta stiginu, 1. – 3. bekk verði óbreytt frá síðasta skólaári, 259 krónur á máltíð, en taki breytingum í samræmi við önnur mötuneytisgjöld í skólum ef þær verða einhverjar um áramót.
- Rætt um skipan starfshóps sem hefur það verkefni að og móta stefnu í félagslífi nemenda í grunnskólum. Stefán leggur til að hópinn skipi samtals fimm fulltrúar frá grunnskólanum, skólaskrifstofu, æskulýðs- og tómstundaráði og íþróttahreyfingu. Fulltrúar foreldra og nemenda og annarra sem hagsmuna eiga að gæta verði kallaðir á fund starfshópsins. Ábendingar komu frá Birni Inga um að foreldrar eigi einnig fulltrúa í starfshópnum.
- Hjalti greindi frá fyrirhuguðum fundum í stjórnarráðinu í næstu viku.
- Stefán greindi frá aðsókn að Sundlaug Hafnar mótsdagana um sl. helgi sem voru fyrir utan keppendur um tvö þúsund.
Fundi slitið kl. 11:30


