Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 218
218. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn. 17. júlí 2003, kl 14:00
Mætt voru: Einar Karlsson, Elín Magnúsdóttir, Friðrik Ingvaldsson og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi.
Einnig: Inga Jóna Halldórsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir, Hákon Valdimarsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Byggingar- og skipulagsnefnd 46. fundur 10. júlí 2003.
Vegna 1. liðar í fundargerð kom fram fyrirspurn um hvort tankur og olíuafgreiðsla gætu rúmast í og við núverandi girðingu í Álaugarey. Ekki var hægt að svara þeirri fyrirspurn á fundinum. Einnig var spurt um hvernig þetta samrýmist deili- og aðalskipulagi. Ekki er til deiliskipulag af svæðinu þar sem sótt er um lóð fyrir umrædda olíuafgreiðslu, skilgreint sem hafnarsvæði á aðalskipulagi. Bæjarráð tók jákvætt í erindi umsækjanda. Samþykkt að fresta afgreiðslu 1. liðar í fundargerð til að kanna aðra möguleika á staðsetningu og skipulagi svæðisins.. Starfsmönnum tækni- og umhverfissviðs falin sú vinna. (Elín sat hjá afgreiðslu þessa liðar.)
Fundargerð samþykkt.
2. Umsóknir um vínveitingaleyfi
Veitingahúsið Ósinn efh.- Hótel Höfn, umsókn dags. 24. júní 2003.
Bæjarráð samþykkir útgáfu vínveitingaleyfis fyrir Veitingahúsið Ósinn ehf. – Hótel Höfn til fjögurra ára.
Frost og funi ehf. – Gistiheimilið Frost og funi, umsókn 26. júní 2003.
Bæjarráð samþykkir útgáfu vínveitingaleyfis fyrir Gistiheimilið Frost og funa.
3. Umsóknir um breytingar á lóðarmörkum
Bréf Hákonar Valdimarssonar byggingafulltrúa v/ vörulóðar Kask á Álaugarey bréf dags. 7. júlí 2003.
Erindinu frestað, sbr 1. lið fundargerðar.
Bréf Finns Jónssonar v/Vesturbrautar 19, dags. 29. júní 2003.
Bæjarráð samþykkir erindi umsækjanda.
4. Ósk um leyfi til uppsetningar afgreiðslustöðvar fyrir olíu
Bréf Hákonar Valdimarssonar byggingafulltrúa v/ umsóknar Sigurðar Einarssonar f.h. Olíufélagsins ehf. dags. 26. júní 2003.
Erindinu frestað, sbr 1. lið fundargerðar.
(Hákon vék af fundi)
5. Ósk um styrk til verkefnisins „Krakkar á ferð“
Bréf Lindu Ásgeirsdóttur f.h. Ljósaskipta ódagsett.
Bæjarráð telur sér ekki fært að verða við ósk um kostnaðarþátttöku sveitarfélagsins í verkefninu.
6. Innsend erindi og til kynningar
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið dags. 30. júní 2003.
Bæjarráð felur starfsmönnum að svara erindinu.
Félag leikskólakennara – bréf dags. 30. júní 2003.
Til kynningar.
Samsø kommune – bréf dags. 3. júlí 2003.
Til kynningar.
Ríkisskattstjóri – bréf dags. 7. júlí 2003.
Stefán fór yfir forsögu málsins og ákvæði um virðisaukaskatt af skólamáltíðum sem framleiddar eru af einkareknum fyrirtækjum. Bæjarráð samþykkir að Stefán ræði við aðila í veitingarekstri í sveitarfélaginu um sölu á skólamáltíðum.
Til kynningar.
7. Önnur mál
Erindi frá stjórn Þórbergsseturs þar sem kannað er hvort Sveitarfélagið Hornafjörður hafi áhuga á að verða stofnaðili að setrinu
Bæjarráð samþykkir að verða við erindinu og jafnframt að leggja til verkefnisins krónur 50.000. Tekið af óráðstöfuðu.
Beiðni um aukið stöðugildi stuðningsfulltrúa í Heppuskóla
Bæjarráð samþykkir að fela framkvstj. fræðslu- og félagssviðs að kanna málið betur og leggja í kjölfarið tillögu fyrir bæjarráð.
Leigusamningur v. dagvistar fatlaðra í Sjálfstæðishúsinu á Höfn
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við leigusala, Sjálfstæðisfélag Austur-Skaftafellssýslu, samkvæmt fram lögðum drögum að samningi.. (Einar tók ekki þátt í umræðu og sat hjá við afgreiðslu málsins)
Samkomulag Sveitarfélagsins við KASK um uppgjör gatnagerðargjalda
Ásta kynnti fyrirliggjandi samkomulag við KASK. Bæjarráð samþykkir samkomulagið. (Elín sat hjá afgreiðslu þessa liðar.)
Fundi slitið kl. 15:35


