Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 386
386. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal í ráðhúsi mánudaginn 23. júlí 2007 kl. 9:00.
Mættir: Reynir Arnarson formaður, Guðrún Ingimundardóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
Bæjarráð og starfsmenn óska Birni Inga til hamingju með brúðkaupið.
1. Fundargerðir
· Æskulýðs- og tómstundaráð 90. fundur 26. júní 2007 . Félagslíf í Grunnskóla Hornafjarðar, bréf dags. 15. júní 2007.
Bæjarráð samþykkir að skipaður verði starfshópur þriggja manna til að fara yfir og móta stefnu í félagslífi nemenda í grunnskólum. Framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs falið að koma starfshópnum á laggirnar.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd 68. og 69. fundur 9. júlí og 16. júlí 2007.
Bæjarráð vísar málinu til starfsmanna til nánari skoðunar varðandi bókun umhverfisnefndar (4. liður) um útboð vegna sorpurðunar.
Fundargerð samþykkt.
2. Umsókn um lóðir
· Bugðuleira 1, 5 og 7. Bréf frá Verkfræðistofunni Höfn ehf. dags 11. júlí 2007.
Umsóknir um ofangreindar lóðir samþykktar.
3. Jarðhitaleit í Öræfum.
· Bréf frá Ómari Bjarka Smárasyni dags. 27. júní sl.
Ómar Bjarki kom inn á fundinn undir þessum lið. Rætt var hvaða möguleikar séu á því að heitt nýtanlegt vatn finnist í Skaftafelli. Einnig rætt um stöðuna í leit að heitu vatni í Hoffelli.
Nauðsynlegt er að gerður verði samningur við landeigendur áður en farið verði í áframhaldandi leit við Skaftafell. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
4. Mötuneyti Grunnskóla Hornafjarðar 4. ? 10. bekkur.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Kaffihornið um skólamötuneyti fyrir 4. ? 10. bekk fyrir skólaárið 2007 ? 2008.
5. Staðfesting á lóðaleigusamningi
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við lóðarleigusamning dags. 29. júní í Gjádal í Lóni.
6. Umhverfisskýrsla. Breyting á aðalskipulagi Hornafjarðar 1998-2018 vegna nýlagningar vegar yfir Hornafjarðarfljót.
Farið yfir umhverfisskýrsluna og einstakir hlutar hennar ræddir.
Eftirfarandi bókun var samþykkt á 79. fundi byggingar- og skipulagsnefndar:
Í ljósi úrskurðar umhverfisráðuneytisins 11. maí 2007, í kæru Vegagerðarinnar vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar um matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum lagningar Hringvegar um Hornafjarðarfljót, sér byggingar ? og skipulagsnefnd ekki ástæðu til þess að taka afstöðu til leiða 4 og 5 sem fjallað er um í Umhverfisskýrslunni.
Um þrjár leiðir er að ræða skv. tillögu Vegagerðarinnar. Byggingar- og skipulagsnefnd er sammála um að leið 2 hafi umtalsverða ókosti í för með sér. Í fyrsta lagi hefur leiðin umtalsverð áhrif á landslag á austasta hluta leiðarinnar, þ.e. eftir að hún tekur land við Dilksnes. Þar er gert ráð fyrir að hún liggi í gegnum stór klapparholt sem geta talist einkennandi fyrir landslag á þessum slóðum. Ennfremur liggur hún yfir nær samfelldar sjávarfitjar á milli Árnaness og Dilksness. Þá liggur hún mun nær Árnanesbæjunum en leið 3. Á leið 2 um Skógey og á Mýrum liggur hún á votlendisgróðri. Byggingar- og skipulagsnefnd hafnar því að leið 2 verði farin og lítur svo á að valið standi fyrst og fremst á milli leiðar 1 og leiðar 3.
Byggingar- og skipulagsnefnd telur einnig einsýnt að leið 3 hafi minni áhrif á landslag en leið 2 auk þess að leið 3 sker jarðir landeigenda í sveitafélaginu minnst þeirra þriggja leiða sem í mati eru. Helsti munur á milli leiðanna felst í því að leið 3 liggur yfir Flóa í Skarðsfirði sem er á náttúruminjaskrá. Á hinn bóginn liggur leið 3 ekki í sama mæli yfir sjávarfitjar og leið 2. Einnig bendir flest til þess að leið 3 hafi ekki jafn mikil áhrif á landslag og leið 2. Þá er það einnig mat byggingar ? og skipulagsnefndar að jákvæð samfélagsleg áhrif yrðu mest fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð ef farin verður leið 3 vegna verulegra styttinga vegalengda innan sveitafélagsins.
Byggingar- og skipulagsnefnd þykir ljóst að leið 1 hafi minni áhrif á náttúrufar í för með sé en leiðir 2 og 3. Ákveðnir annmarkar eru þó á þeirri leið. Í fyrsta lagi liggur leiðin norðan í skeiðvelli Hestamannafélagsins Hornfirðings og sker sundur ræktunarlönd í Borgum, Akurnesi og Seljavöllum. Umhverfisáhrif leiðar 1 eru talin vera töluvert minni í Hornafirði, Skógey og á Mýrum en leiðir 2 og 3. Á móti kemur að sú leið styttir vegalengdir innan sveitafélagsins Hornafjarðar mun minna en leiðir 2 og 3. Munurinn er 4 km á leið 3 og leið 1 en að sama skapi 2,6 km á milli leiðar 1 og leiðar 2. Stytting vegalengda innan sveitafélagsins Hornafjarðar er grundvallaratriði að mati byggingar- og skipulagsnefndar. Sú umtalsverða stytting sem verður samfara því að fara leið 3 samanborið við að fara leið 1 er það mikil að byggingar- og skipulagsnefnd telur að almannahagsmunir liggi við.
Leiðir 2 og 3 hafa það báðar sammerkt að stór hluti Nesjasveitar liggur ekki lengur í alfaraleið. Byggingar- og skipulagsnefnd telur það mikilvægt að merkingar og auglýsingar verði settar upp við gatnamót þjóðvegar og Hafnarvegar þar sem þjónusta í sveitafélaginu verði auglýst.
Það er því niðurstaða byggingar- og skipulagsnefndar að leið 3 í tillögum Vegagerðarinnar sé besti kosturinn af þeim leiðum sem hún leggur til að verði metnar í framkvæmdamati. Ekki síst vegna bætts umferðaröryggis sem og verulegra styttinga á vegalengdum innan sveitafélagsins sem leið 3 hefur í för með sér.
Niðurstaða byggingar- og skipulagsnefndar er því sú að leið 3 verði fyrir valinu.
Bæjarráð tekur undir bókun byggingar- og skipulagsnefndar og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.
7. Tjaldstæði ? nauðsynlegar lagfæringar á rafmagni.
· Bréf frá Huga Einarssyni dags. 18. júlí 2007
Bæjarráð felur tækni- og umhverfissviði að leysa málið í samræmi við umræður á fundinum.
8. Innsend bréf og erindi
· Bréf frá Þorleifi Hjaltasyni dags. 15. júlí 2007, athugasemd við tillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna ljósleiðarstrengs í Hólalandi.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
· Bréf frá MSÍ,ódagsett, varðandi akstur torfæruvélhjóla.
Vísað til starfsmanna.
· Bréf frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins dags. júlí 2007 varðandi stuðning í sjúkra- og líknasjóð.
Umsókn hafnað.
· Bréf frá Umhverfisráðuneytinu dags. 10. júlí sl. varðandi breytingu á aðalskipulagi vegna Víkurbrautar 11 og 13.
Til kynningar.
· Bréf frá Tryggingastofnun ríkisins dags. 5. júlí varðandi ofgreidd daggjöld til HSSA og svar framkvæmdastjóra við því.
Vísað til starfsmanna og HÖR
· Bréf frá Landgræðslu ríkisins dags. 4. júlí varðandi Skógeyjarsvæðið.
Vísað til atvinnumálanefndar.
· Bréf frá Umhverfisráðuneytinu dags. 29. júní varðandi Umhverfisþing 2007.
Vísað til umhverfisnefndar.
· Bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga dags. 3. júlí varðandi jöfnun á tekjutapi vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti.
Til kynningar.
· Bréf frá Hafnasambandi Íslands dags. 5. júlí varðandi skerðingu aflaheimilda í þorski.
Vísað til hafnarstjórnar.
· Bréf frá Sambandi ísl. sveitarfélaga dags. 6. júlí varðandi ferð sveitarstjórnarmanna til Brussel 7.-12. okt. nk.
Til kynningar.
9. Önnur mál
Tilboð í uppsteypu, aðstöðusköpun, frágang inni og frágang úti á sundlaug við Heppuskóla. Tilboð við opnun 19. júlí sl.
Mikael ehf. 139.489.398
G. Þorsteinsson ehf. 166.063.406
Smiðir ehf. 163.363.496
Eftir yfirferð og samræmingu tilboða þar sem teknir hafa verið út þeir liðir sem ekki var boðið í af öllum tilbjóðendum þremur.
Mikael ehf. 131.163.348.-
G. Þorsteinsson ehf. 159.592.522.-
Smiðir ehf. 157.838.336.-
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Mikael ehf.
Jafnframt að gengið verði til samninga við verktaka sem skilað hafa inn tilboðum í aðra verkþætti.
Fundi slitið kl. 11.45


