Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 385
385. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal í ráðhúsi mánudaginn 9. júlí 2007 kl. 9:00.
Mættir: Reynir Arnarson formaður, Árni Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 166. fundur 26. júní 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 93. fundur 8. júní og 94. fundur 26. júní 2007.
Björn spurðist fyrir um dælingu. Fram kom að verið væri að ræða við heimaaðila um dælingu.
Fundargerðir samþykktar.
· Nefnd um íþróttamannvirki 39. fundur 26. júní 2007.
Haukur Ingi greindi frá því að verið væri að bíða eftir tilboðum í uppsteyptu á sundlaug á grundvelli verðkönnunar.
Fundargerð samþykkt.
· Byggingar og skipulagsnefnd 78. fundur 21. júní 2007.
Útsend fundargerð áður afgreidd. Bæjarráð samþykkir að taka fyrir fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 79. fundur 4. júlí. Umhverfisskýrsla um nýtt vegstæði yfir Hornafjarðarfljót verður tekin fyrir á næsta bæjarráðsfundi.
Fundargerð samþykkt.
· Samband ísl. sveitarfélaga 744. fundur 22. júní 2007.
Til kynningar.
2. Innköllun á lóð
· Álaleira 2
Bæjarráð samþykkir að fela starfsmönnum að vinna að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
3. Innsend erindi
· Haukur Ingi Einarsson , bréf dags. 25. júní 2007, umsögn um kostnað við girðingar
Bæjarráð felur stafsmönnum að vinna að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
4. Rekstrarstaða 31. maí 2007.
Ásta kynnti rekstrarstöðu 31. maí og eru tekjur A-hluta 52% af fjárhagsáætlun en gjöld 40% af fjárhagsáætlun. Búið er að framkvæma fyrir um 58 m.kr. og handbært fé er 348 m.kr.
5. Samkeppniseftirlitið bréf dags. 28. júní 2007.
Málinu vísað til starfsmanna til nánari skoðunar.
6. Gjaldskrá fyrir leyfisgjaldi vegna hunda- og kattahalds
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar með áorðnum breytingum á orðalagi.
7. Lóðir á Leirusvæði.
Deiliskipulag verður lagt fyrir bæjarráð á næsta fundi. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
8. Önnur mál
Bókun bæjarráðs 9. júlí 2007 v/ skerðingar þorskkvóta
Bæjarráð Hornafjarðar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna afleiðinga af hinni miklu kvótaskerðingu fyrir næsta fiskveiðiár. Skerðing aflaheimilda hefur víðtækar afleiðingar á atvinnulíf Hornfirðinga, þ.e. sjómenn, fiskverkafólk, fyrirtæki og sveitarfélag. Tekjur í sjávarútvegi munu dragast verulega saman og störf tapast í fiskveiðum, fiskvinnslu og afleiddum störfum.
Um leið og bæjarráð Hornafjarðar fagnar áformum ríkisstjórnarinnar um mótvægisaðgerðir vegna kvótaskerðingarinnar minnir bæjarráð á mikilvægi þess að aðgerðirnar nái til allra þeirra staða sem verða fyrir barðinu á kvótaskerðingunni, þ.m.t. Hornafjarðar. Í þessu sambandi hvetur bæjarráð ríkisvaldið til þess að flýta allri uppbyggingu í Sveitarfélaginu Hornafirði í tengslum við stærsta þjóðgarð Evrópu, Vatnjökulsþjóðgarð. Það er mat bæjarráðs Hornafjarðar að samhliða uppbyggingu í tengslum við þjóðgarðinn verði störf á náttúruverndar- og matvælasviði Umhverfisstofnunar staðsett til framtíðar í sveitarfélaginu í námunda við þjóðgarðinn. Bæjarráð Hornafjarðar hvetur yfirvöld til þess að kanna þennan möguleika af kostgæfni þar sem slík ráðstöfun myndi styrkja stofnunina til muna auk þess sem ríkisstjórnin væri með slíkri aðgerð að sýna vilja sinn og metnað í verki gagnvart stærsta þjóðgarði Evrópu.
Bæjarráð Hornafjarðar vill koma því á framfæri að þegar hefur verið óskað eftir samstarfi við forstöðumenn í Nýheimum um aðgerðir til að efla rannskóna-, þróunar- og vísindastarfsemi þar enn frekar.
Fundi slitið kl. 11.40


