Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 384
384. fundur
Mættir: Reynir Arnarson formaður, Árni Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Ráðgjafarnefnd Vatnajökulsþjóðgarðs 1. fundur 31. maí 2007.
Kom fram að fundur hafi verið í svæðisráði en ekki ráðgjafarnefnd Vatnajökulsþjóðgarðs. Kom fram að hlutverk svæðisráðsins fyrst í stað verði að vinna að reglugerð um þjóðgarðinn ásamt yfirstjórn hans.
Til kynningar.
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 78. fundur 21. júní 2007.
Rætt um tillögur að deiliskipulagi. Kom fram að byggingar- og skipulagsnefnd hafi gert ákveðnar breytingar á tillögunum.
Rætt um tillögur að umferðarhraða. Kom fram að málið sé áfram í vinnslu.
Fundargerð samþykkt.
2. Viðhorfskönnun meðal íbúa
Fyrir fundinum lá minnisblað dags. 20. júní 2007 um hvernig fylgja eigi eftir viðhorfskönnuninni. Þær tillögur gera ráð fyrir að gert verði átak í að kynna þjónustu sveitarfélagsins meðal íbúa, að nefndir fái ákveðnar spurningar til umfjöllunar og haldnir verði borgarafundir í haust, bæði í dreifbýli og þéttbýli.
3. Stjórnsýsluúttekt ríkisendurskoðunar – úttektin áður send
Lögð fram drög að athugasemdum við úttekt ríkisendurskoðunar. Bæjarráð er sammála um innihald athugasemdanna og felur bæjarstjóra að senda þær frá sér.
4. Samningur UMFÍ og sveitarfélagsins vegna unglingalandsmóts 2007
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.
5. Hafnarvík – Heppa
· Erindi Gísla Sverris Árnasonar sbr. tölvupóstur dags. 15. júní 2007.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga en leggur áherslu á að verkefnið verði fjármagnað með utanaðkomandi styrkjum.
6. Göngustígur milli Hlíðartúns og Miðtúns
· Erindi íbúa Hlíðartúns 12, dags. 18. júní 2007.
Vísað til tækni- og umhverfissviðs.
7. Umsókn tímabundið vínveitingaleyfi
· Erindi Valdimars Einarssonar f.h. Humarhátíðarnefndar dags. 19. júní 2007.
Bæjarráð samþykkir tímabundið vínveitingaleyfi eins og það kemur fram í umsókninni:
Íþróttahúsinu 30. júní frá kl. 23.30 til kl. 04.00
Pakkhúsið 29. júní og 30. júní frá kl. 22.00 til kl. 03.00 bæði kvöldin.
Sindrabæ 28. júní og 29. júní frá kl. 20.00 til kl. 03.00 bæði kvöldin.
Akurey 29. júní og 30. júní frá kl. 20.00 til kl. 24.00 bæði kvöldin.
8. Innsend erindi
· Umhverfisráðuneytið, bréf dags. 8. júní 2007, um efnistöku v. Falljökulskvíslar og framkvæmdaleyfi almennt.
Til kynningar.
· Samband íslenskra sveitarfélaga, bréf dags. 11. júní 2007, um hópferð á Opna daga sveitarstjórnarvettvangs ESB í Brussel 8-10. október n.k..
Óskað eftir upplýsingum um kostnað og fyrirkomulag.
· Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands, kynning fyrir framkvæmdastjóra sveitarfélaga.
Til kynningar.
9. Önnur mál
Bæjarráð ákveður að fundir verði á hálfsmánaðarfresti fram til 14. ágúst. Samþykkt að fundir í sumar verði á mánudögum kl. 9.00. Samþykkt að fundir eftir sumarleyfi verði á mánudögum kl. 16.00.
Fundi slitið kl. 10.30


