Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 382
382. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss fimmtudaginn 7. júní í 2007 kl. 16:00.
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 30. maí 2007.
Fundargerð samþykkt.
2. Tilboð í sundlaug
· Bréf G. Þorsteinssonar ehf.
Lagt fram tilboð frá G. Þorsteinssyni ehf. dags. 24. maí. Bæjarráð samþykkir að gera G. Þorsteinssyni gagntilboð.
3. Hafnarbraut 40
· Bréf Þrúðmars Þrúðmarssonar dags. 20. maí 2007.
Samþykkt að vísa erindinu til starfsmanna í samráði við umræður á fundinum.
4. Hringvegur um Hvalnes- og Þvottárskriður
· Bréf Vegagerðarinnar dags. 23. maí 2007, umsókn um framkvæmdaleyfi.
Fram kemur í svari Vegagerðarinnar við fyrirspurnum bæjarstjóra að veglína haldist nær óbreytt. Fyrst og fremst sé þetta breikkun til að koma fyrir vegriðum og grjótpúðum. Fram kemur í svarinu að samkvæmt 1. og 2. viðauka laga nr. 106/2000 teljist framkvæmdir þessar ekki matsskyldar.
Í umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi kemur fram að hér sé ekki um framtíðarlausn að ræða heldur aðgerðir til þess að auka umferðaröryggi á þessum stað þar til varanleg leið verður komin. Bæjarráð tekur undir með Vegagerðinni og bendir á Lónsheiðargöng sem framtíðarlausn.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindi Vegagerðarinnar til afgreiðslu í bæjarstjórn.
5. Ósk um umsögn á útgáfu rekstrarleyfis
· Bréf sýslumannsins á Eskifirði dags. 22. maí 2007, vegna Flugleiðahótela ehf.
Hótel Eddu, Nesjaskóla.
Bæjarráð gerir engar athugasemdir við rekstarleyfið og samþykkir það fyrir sitt leyti.
6. Ósk um aukafjárveitingu vegna kaupa á tölvum og símkerfi fyrir sameinaðan grunnskóla – framhald frá síðasta fundi
Sveinbjörn Imsland kom á fundinn og fór yfir tölvumál og sameiginlegt símkerfi fyrir stofnanir sveitarfélagsins. Töluverðar umræður sköpuðust um þessi mál.
Samþykkt að heimila kaup á 11 fartölvum í nýsameinaðan grunnskóla. Ákvörðun um símkerfi frestað til næsta fundar.
7. Innsend erindi – engin
8. Önnur mál
- Bæjarráð samþykkir að laun vinnuskólans verði byggð á sama grunni og sl. ár að viðbættum prósentuhækkunum sem orðið hafa á kjarasamningi við Vökul.
- Rætt um framkvæmdir á íþróttavöllum og stöðu þeirra.
Fundi slitið kl. 18:00


