Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 380
380. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 22. maí 2007 kl. 10:00.
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Guðrún Ingimundardóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 82. fundur 10. maí 2007.
(Guðrún Júlía Jónsdóttir sat fundinn undir þessum lið.)
Greint frá því að ekki hefur verið skrifað undir þjónustusamninginn.
Rætt var um gerð þjónustusamnings og það að upplýsingagjöf frá ráðuneyti sé ekki nógu góð einnig að nauðsynlegt sé að tryggja stöðu HSSA sem heilbrigðisstofnun.
Næsta skref er að fara yfir fjárhagsáætlun miðað við þau drög sem liggja fyrir og leggja þau fyrir Hör á næstu dögum. Guðrún Júlía vék af fundi kl 10:40.
Fundargerð samþykkt
· Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga. 743. fundur 27. apríl 2007.
Bæjarráð tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í 5. lið um að einingabært tónlistarnám á framhaldsskólastigi skuli kostað af ríkinu.
· Haust, fundargerð 69. fundar 15. maí 2007
Fram kemur í fundargerð Haust að Björn Gísli Arnarson hafi aflað sér starfsleyfis fyrir meindýraeyðingu og eftirlit.
2. Ósk um nýtingu forkaupsréttar á bújörð
· Bréf Víðis Guðmundssonar dags. 13. maí 2007.
Skv. upplýsingum frá landbúnaðaráðuneytinu dags. 21. maí sl. kom fram að sveitarfélög hafi ekki forkaupsrétt á ríkisjörðum og í ljósi þess hafnar bæjarráð beiðninni.
3. Ósk um innlausn á íbúð
· Bréf Erlu Einarsdóttur dags. 14. maí 2007.
Samþykkt að vísa erindinu til húsnæðisnefndar til afgreiðslu.
4. Innsend erindi
· Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi, bréf dags. 8. maí 2007, áskorun aðalfundar til sveitarstjórnarmanna á Suðurlandi um aðkomu að kjarasamningagerð.
Bæjarráð er sammála um að ekki sé ástæða til að breyta núverandi fyrirkomulagi á samningamálum sveitarfélagsins við stéttarfélög þau sem Launanefnd sveitarfélaga sér um að semja við fyrir hönd sveitarfélagsins.
· Samband ísl. sveitarfélaga, bréf dags. 9. maí 2007, um viðbragðsáætlun vegna sorphirðu komi til heimsfaraldurs inflúensu.
Bæjarráð vísar málinu til tækni- og umhverfissviðs.
· Umhverfisráðuneytið, afrit bréfs til Vegagerðarinnar dags. 11. maí 2007, um stjórnsýslukæru Vegagerðarinnar vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar frá 5. desember 2006, um matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum lagningar hringvegar um Hornafjarðarfljót.
Til kynningar.
· Siglingastofnun, bréf dags. 11. maí 2007, samþykki á tilfærslu á fjármunum til framkvæmda við Álaugarbryggju.
Vísað til hafnarstjórnar.
· Umhverfisráðuneytið, ljósrit af skipunarbréfum dags. 15. maí 2007 til fulltrúa sveitarfélagsins í svæðisráð rekstrarsvæðis 3 í Vatnajökulsþjóðgarði.
Til kynningar.
5. Önnur mál
Kynnt tilboð um birtingu á myndum og grein um sveitarfélagið í ritinu Iceland Today.
Bæjarráð vísar málinu til starfsmanna sem afgreiða það í samræmi við umræður á fundinum.
Haukur Ingi sagði frá fyrirhugaðri ferð til Slóveníu það sem umboðsaðili Duol hefur boðið til að kynna að kostnaðarlausu mjúkhús sem gætu nýst sem knattspyrnuhús.
Haukur lagði til að keyptur verði WC - gámur í staðinn fyrir elstu snyrtinga á tjaldstæði. Bæjarráð vísar málinu til tæknideildar.
Fundi slitið kl. 12:00


