Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 379
379. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar á Djúpavogi mánudaginn 14. maí 2007 kl. 18:00.
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri og Haukur Ingi Einarsson.
Kl. 16.00 fundaði bæjarráð með aðilum á Djúpavogi um sorpmál, samgöngumál, ferðamál og hafnarmál.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Byggingar og skipulagsnefnd 77. fundur 9. maí 2007.
Rætt um tillögu að deiliskipulagi. Reynir taldi mikilvægt að gerð verði áætlun um hvernig staðið verði að fergingu lóða á svæðinu og uppbyggingu veitukerfis.
Gerð grein fyrir framkomnum hugmyndum um umferðarhraða í íbúðargötum.
Reynir fagnaði framkomnum hugmyndum um nýtt fyrirkomulag á útleigu ræktunarlanda í eigu sveitarfélagsins. Bæjarráð sammála um að tillögur liggi fyrir ekki síðar en í september.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 92. fundur 9. maí 2007.
Árni spurðist fyrir um minnisblað vegna samstarfs Hornafjarðarhafnar og Siglingastofnunar um ýmiss verkefni. Bæjarráð fagnar hugmyndum sem koma fram í minnisblaðinu og hvetur Hafnarstjórn til að vinna áfram að hugmyndum sem þar koma fram.
Björn Ingi spurðist fyrir um olíutank á Austurfjörum. Haukur Ingi upplýsti að haft hafi verið samband við eigenda og var bjartsýnn um að tankurinn yrði fjarlægður á næstunni.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálráð Hornfjarðar 164. fundur 8. maí 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð 81. fundur 7. maí 2007.
Umræður spunnust upp um þjónustusamning um heilbrigðis- og öldrunarmál. Kom fram að ekki hafi verið skrifað undir samninginn.
Fundargerð samþykkt.
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 91. fundur 9. maí 2007.
Rætt um útleigu á Pakkhúsi.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki 36. fundur 7. maí og 37. fundur 9. maí 2007.
Rætt um skipan nýs fulltrúa í nefnd um íþróttamannvirki. Halldóra B. Jónsdóttir hefur sagt af sér sem nefndarmaður og í hennar stað er kjörinn Gestur Halldórsson.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 67. fundur 7. maí 2007.
Fundargerð samþykkt
2. Sundlaug – samanburður kostnaðaráætlunar og tilboðs
Samþykkt að taka fyrir undir þessum lið fundargerð 38. fundar nefndarinnar um íþróttamannvirki þar sem m.a. er tekin afstaða til tilboðs í byggingu sundlaugar við Heppuskóla.
Farið yfir útsend gögn sem varða þennan samanburð.
Tekið til afgreiðslu tilboð í sundlaug við Heppuskóla.
Eitt tilboð barst í byggingu þess verkþáttar sundlaugar við Heppuskóla sem boðinn var út. Tilboðsgjafi er G. Þorsteinsson ehf. og tilboðsupphæð er kr. 358.897.682.- Er tilboðið 25% umfram kostnaðaráætlun.
Bæjarráð er sammála um að hafna tilboðinu og tekur jafnframt undir bókun nefndar um íþróttamannvirki sem gerir tillögu um að ganga til samninga við tilboðsgjafa um aðra og lægri upphæð en boðin var.
3. Ósk um umsögn bæjarráðs á endurmati húseignar
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum um málið og telur að ekki sé hægt að taka afstöðu til málsins að svo stöddu.
4. Erindi frá byggingarfulltrúa dags. 10. maí vegna Miðtúns 7
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum um málið og telur að ekki sé hægt að taka afstöðu til málsins að svo stöddu.
5. Verk Svavars Guðnasonar - útgáfa bókar og skráning verka
Bæjarráð sammála um að taka þátt í útgáfu bókar um Svavar Guðnason sem kæmi út árið 2009. Bæjarráð samþykkir að Menningarmiðstöð vinni að verkefni sem lúti að heildarskráningu málverka Svavars Guðnasonar en leggur áherslu á að sú skrá verði eign Menningarmiðstöðvar. Bæjarráð leggur áherslu á að í tengslum við umfjöllun um útgáfu bókarinnar verði vísað til Hornafjarðar og jafnframt að aflað verði sértekna í þetta verkefni.
6. Söfn Sverris Scheving Thorsteinssonar og Lovísu H. Gunnarsdóttur
Bæjarráð fagnar þeirri niðurstöðu sem náðst hefur um söfn Sverris Scheving Thorsteinssonar og Lovísu H. Gunnarsdóttur. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning og gjafabréf fyrir sitt leyti.
7. Áframhaldandi samstarf við Búmenn
Bæjarstjóra falið að kanna raunverulega eftirspurn eftir íbúðum.
8. Húsnæði Nesjaskóla
Lagt fram yfirlit um spá um nemendaþróun í þéttbýlisskólum 2007-2013.
Mikil umræða skapaðist um nýtingu á húsnæði Nesjaskóla.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa til sölu allt húsnæði skólans að undanskildu skólahúsnæði. Ljóst er að kennt verður áfram í Nesjum næstu ár. Þróun nemendafjölda a.m.k. næstu fjögur til fimm árin gefur ekki tilefni til að áætla annað. Ekki verður séð annað en að kennsluhúsnæðið muni halda fullu verðgildi sínu næstu árin. Bæjarráð telur eðlilegt að heimavistarhlutinn verði seldur vegna breyttra aðstæðna frá því að Framhaldskólinn flutti og grunnskólinn hætti að nýta heimavistina. Bæjarráð útilokar ekki frávikstilboð þar sem boðið er í allt skólahúsnæðið.
9. Innsend erindi
· Rarik, bréf dags. 3. maí 2007, þrífösun heimtauga í Suðursveit og Öræfum.
Vísað til tæknideildar.
· Skólahreysti, ódagsett bréf, ósk um styrk.
Vísað til skólaskrifstofu.
· Frumkvöðlasetur Austurlands, bréf dags. 8. maí 2007, aðalfundarboð.
Samþykkt að Reynir Arnarson fer með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum.
10. Önnur mál
Reynir vakti máls á að kjósa verður í ýmsar nefndir og ráð á næsta fundi bæjarstjórnar. Starfsmönnum falið að fara yfir málið.
Fundi slitið kl. 20.15


