Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 376
376. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 17. apríl 2007 kl. 10:00.
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 76. fundur 11. apríl 2007.
Rætt um skipulagsmál á leirusvæði og í hvaða stöðu þau mál eru. Reynir gerði að umtalsefni ástand húss að Hafnarbraut 14 og umhverfi þess. Samþykkt að vísa málinu til starfsmanna.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga, 742. fundur til kynningar.
Undir þessum lið var rætt um þjóðlendumálið (21. liður í fundargerð) og hver staða þess máls er gagnvart landeigendum í okkar sveitarfélagi.
2. Atvinnulífssýning
Björg Erlingsdóttir kom inn á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir stöðu málsins. Gerði hún m.a. grein fyrir kynningarfundi í Nýheimum og öðrum í Öræfum. Á þá hafi verið þokkaleg mæting. Þá greindi hún frá hugmyndum um göngukort þar sem fyrirtæki verði merkt inn á og tíminn sem þau verða opin almenningi til sýnis. Einnig rætt um afmælishátíðina, 110 ára afmæli Hafnar, sem verður í tengslum við Humarhátíð.
3. Mánavöllur
(Hjalti vék af fundi undir þessum lið.) Rætt um drög að samkomulagi en lítils háttar breytingar hafa orðið á drögunum frá því að þau voru til umræðu á 373. fundi bæjarráðs. Breytingar þessar hafa verið gerðar í samráði við lögfræðing sveitarfélagsins. Fram kom í umræðum um málið að eign fylgi einnig skyldur. Björn Ingi taldi í ljósi þess að þá þurfi að vera skilgreining á hver eignarhlutur hvors aðila, Umf. Mána og sveitarfélagsins, ætti að vera í prósentum talið.
4. Skoðanakönnun vegna vegastæðis um Hornafjarðarfljót
Hjalti greindi frá samskiptum við nokkra aðila sem þekkja til sambærilegra skoðanakannana. Lagði hann áherslu á að ljóst þurfi að vera hvað spyrja eigi um, hvaða aðferðafræði eigi að byggja á og tímasetning slíkrar skoðanakönnunar, hvenær hún eigi að fara fram. Björn Ingi tók undir að tímasetning væri ávallt spurning og velti upp hugmyndum um hvaða vegstæði ættu að vera til skoðunar í slíkri könnun. Bæjarráð er sammála um að útiloka ekki þann möguleika að slík könnun fari fram. Bæjarráð var því sammála að menn þurfi að koma sér saman um aðferðafræði við hugsanlega skoðanakönnun.
5. Ársreikningar 2006
(Erna Einarsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið) Árið 2006 var rekstrarniðurstaða A-sjóðs jákvæð um 114,5 milljónir króna. Farið yfir ársreikninginn og fyrirspurnum svarað.
6. Innsend erindi
· Samsø kommune, bréf dags. 30. mars 2007, um vinabæjasamstarf. Til kynningar
· Fráveitunefnd, bréf dags. 5. apríl 2007, tilkynning um styrk. Til kynningar
· Íslensk þjóðfélagsfræði, ráðstefna á Akureyri 27.-28. apríl n.k.. Til kynningar
7. Önnur mál
· Greint frá því að kostnaðaráætlun vegna breytinga á vaktaðstöðu í íþróttahúsi næmi um 1,2 mkr.
· Dreift gjaldskrá fyrir leyfisgjald vegna hunda- og kattahalds. Tekið fyrir sem sérliður í bæjarráði síðar.
· Björn Ingi spurði um útboðsgögn vegna flugs til Hornafjarðar. Hjalti svaraði fyrirspurn og greindi frá hugmyndum rekstraraðila um aukið flug.
· Haukur Ingi ræddi losun jarðvegs frá uppgreftri við sundlaug og nauðsyn á drenlögn á svæði við Fiskhól. Gerð grein fyrir kostnaði við rör, fyllingu og frágang. Samþykkt að vísa framkvæmd verksins til starfsmanna.
· Reynir gerði að umtalsefni fundargerðir sem tengjast félögum og stofnunum sem sveitarfélagið á aðild að.
· Bæjarráð samþykkir að leggja kr. 100.000.- í Kvískerjasjóð í tilefni af afmælum bræðranna á Kvískerjum.
· Reynir greindi frá skipulagsdögum á Akureyri sem hann sótti fyrir skömmu.
Fundir slitið kl. 12:25


