Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 374
374. fundur
Mætt: Reynir Arnarson formaður, Árni Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 31. fundur 26. mars 2007.
Greint frá því að bæjarstjóri er á fundi syðra vegna náttúrustofu.
Bæjarráð ræddi fjarnám í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri og lagði áherslu á hægt verði að stunda fjarnám í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 162. fundur 27. mars 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 28. mars 2007.
Undir þessum lið var tekin fyrir ráðning skólastjóra við sameinaðan grunnskóla. Bæjarráð samþykkir í samræmi við tillögu skólanefndar fyrir sitt leyti að ráða Guðmund Inga Sigbjörnsson, Þorvald Jón Viktorsson og Þórgunni Torfadóttur sem skólastjóra við sameinaðan grunnskóla. ( Árni Þorvaldsson vék af fundi við þessa umræðu. )
Björn Ingi tekur undir með Sigríði Kristinsdóttur um vísinda ? og menningarferðir sbr. 10. lið fundargerðar .
Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundarráð Hornafjarðar 87. fundur 26. mars 2007.
Bæjarráð óskar eftir kostnaðaráætlun vegna vaktaðstöðu, sbr. 3. lið á dagskrá nefndarinnar.
Bæjarráð lýsti yfir ánægju sinni með umræðu innan æskulýðs- og tómstundaráðs um fyrirkomulag þátttökugjalda, sbr. 6. lið fundargerðarinnar
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki 34. fundur 27. mars 2007.
Fundargerð samþykkt.
2. Deiliskipulag í Haukafelli
Lögð fram eftirfarandi tillaga að bókun:
Rökstuðningur bæjarstjórnar vegna ákvarðanatöku sinnar um deiliskipulag í Haukafelli:
Þrátt fyrir það, að bæjarstjórn vitni, í afgreiðslu sinni 6. febrúar, 2007, í athugasemdir UST 20. mars, 2006, þar sem fram koma áhyggjur stofnunarinnar af því, að bygging frístundahúsa rýri eða skerði útivistargildi svæðisins, er hún ekki með því að taka undir það álit eða áhyggjur UST. Engu að síður leggur bæjarstjórn áherslu á mikilvægi þess, að svæðið haldi sem mest gildi sínu sem útivistarsvæði fyrir almenning, enda tekur bæjarstjórn undir það með UST, að húsum verði vel fyrir komið í umhverfinu og að vandað verði til hönnunar og litavals þeirra.
Í afgreiðslu bæjarstjórnar felst það, m.ö.o. að vel geti farið saman bygging frístundahúsa og útivist almennings, og samþykkir því, í ljósi þess, deiliskipulagið óbreytt.
Bæjarstjórn hafnar því, að mótsögn felist í afgreiðslu hennar.
Hákon Valdimarsson greindi frá deiliskipulagi í Haukafelli.
Bæjarráð samþykkir að vísa deiliskipulaginu til afgreiðslu í bæjarstjórn.
3. Innsend erindi og til kynningar
· Félagsmálaráðuneytið/Jöfnunarsjóður, bréf dags. 21. mars 2007, um endanlegt framlag til nýbúafræðslu. Til kynningar
· Umhverfisráðuneytið, bréf dags. 22. mars 2007, deiliskipulag við Víkurbraut 11-13. Búið er að auglýsa breytingu vegna deiliskipulags við Víkurbraut 11 ? 13.
· Talnakönnun, bréf dags. 2. mars 2007, lífeyrisskuldbindingar sveitarfélagsins. Til kynningar.
4. Önnur mál
Bæjarráð heimilar starfsmönnum að ganga til viðræðna við eigendur Sjálfstæðishússins vegna áframhaldandi leigu á húsnæði fyrir dagvist fatlaðra. (Björn Ingi tók ekki þátt í afgreiðslu þessa máls)
Björn Ingi bar fram kvörtun tilboðsgjafa í Nesjaskóla, tilboðsgjafi kvartaði yfir því að hafa ekki fengið svar við ákvörðun bæjarráðs 373. fundur.
Fundi slitið kl. 11:15


