Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 373
373. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss mánudaginn 26. mars 2007 kl. 18:00.
Mætt: Árni Þorvaldsson varaformaður, Elín Magnúsdóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Reynir setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 90. fundur 19. mars 2007.
Fundargerð samþykkt
Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 74. fundur 19. mars 2007.
Elín ræddi um fækkun íbúða í húsnæðiskerfinu, sbr. fundargerð og velti því upp hvort komin væri upp einhver ákv. tillaga um hversu margar íbúðir sveitarfélagið þyrfti að eiga til útleigu á þess vegum. Björn Ingi gerði færslur í trúnaðarbók að umtalsefni og sagðist ekki skilja hvers vegna hún væri notuð. Ásta upplýsti að nokkrir væru á biðlista eftir íbúðum.
Fundargerð samþykkt.
Menningarmálanefnd Hornafjarðar 89. fundur 19. mars 2007.
Bæjarráð heimilar að Pakkhúsið (efri hæð) verði auglýst til leigu, sbr. fundargerð nefndarinnar.
Rætt um safn Sverris Scheving sem geymt er í Vöruhúsi.
Fundargerð samþykkt.
2. Endurskoðun og áætluð staða sveitarfélagsins um áramót
Ásta fór yfir rekstraryfirlit og sjóðstreymisyfirlit 30. desember 2006. Bæjarráð samþykkir að bókafæra 7,9 milljón króna söluhagnað á Hvannabraut 3 – 5 (Skjólgarður) inn á eignasjóð en leggur áherslu á að þeir fjármunir verði nýttir til uppbyggingar öldrunarþjónustu. Einnig rætt um ávöxtun á handbæru fé.
3. Mánavellir
Lögð fram drög að samkomulagi vegna Mánavalla, dagsett 26. mars 2007. Einnig greindi Stefán frá fundi sínum með Hjalta Egilssyni, Hreini Eiríkssyni og Sigríði Kristinsdóttur, lögfræðingi Regula um Mánavelli. Bæjarráð samþykkir með tveimur atkvæðum gegn einu að ganga til samninga við Umf. Mána í samræmi við framlögð drög, dagsett 26. mars 2007. Björn Ingi sagðist ekki geta greitt þessu atkvæði. Bæði væri það fordæmisgefandi og ekki ljóst til hvers það gæti leitt í samskiptum við önnur félög. (Hjalti vék af fundi undir þessum lið.)
4. Drög að samningi um móttöku, meðhöndlun og flutning spilli- og endurvinnsluefna
Farið yfir drög að samningi á milli Sagaplasts ehf. og Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Bæjarráð samþykkir að fela starfsmönnum að ganga til samninga við Sagaplast ehf., sbr. framlögð drög sem til umræðu voru á fundinum.
5. Grenndargámastöð
Ræddar voru hugmyndir um grenndargámastöð í miðbæ Hafnar. Einkum er um að ræða móttöku á mjólkurfernum og dagblöðum. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til viðræðna við Sindra vegna grenndargámastöðvar í mibænum. Lögð var áhersla á snyrtilega umgengni og afgirt svæði.
6. Lóðarumsókn
Bæjarráð vísar málinu til byggingar- og skipulagsnefndar þar sem lóðin er ekki á skipulagi.
7. Innsend erindi og tilkynningar
· Tilboð vegna stýringar á langtímalánum sveitarfélagsins. .
Samþykkt að ganga til samninga við Landsbankann. Bæjarráð leggur áherslu á að rætt verði sérstaklega um fasta árlega þóknun, sbr. framlagt tilboð.
· Landhelgisgæslan, bréf dags. 16. mars 2007, um staðsetningu björgunarþyrlu, til kynningar.
· Lionsklúbbur Hornafjarðar, bréf dags. 21. mars 2007, viðhald á minnisvarða um Jón Eiríksson í Suðursveit.
Vísað til menningarmálanefndar.
· Risør kommune, bréf dags. 19. mars 2007, ósk um svör við boði á vinabæjamót.
Elín Magnúsdóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson og Björn Ingi Jónsson fara sem fulltrúar framboðanna. Bæjarráð sammála því að fleiri geti farið í þessa ferð frá hverju framboði en framlag sveitarfélagsins breytist ekki við það.
· Regula lögmannsstofa, álit varðandi hæfi, bréf dags. 14. febrúar 2007.
Í greinargerðinni er fjallað um hæfi ákv. starfsmanna og kjörinna fulltrúa og aðkomu þeirra að málum. Greinargerðin var unnin að ósk bæjarstjóra.
8. Önnur mál
· Kynnt auglýsing á útboði vegna byggingar sundlaugar við Heppuskóla.
· Kynnt tölvubréf frá Flugleiðahótelum þar sem óskað er eftir viðræðum um framhald á leigusamningi vegna sumarhótels í Nesjaskóla. Vísað til starfsmanna.
· Hjalti greindi frá tilboði sem borist hefur í Nesjaskóla. Bæjarráð hafnar framkomnu tilboði.
· Starfsmönnum falið að leggja fram tillögur að nýtingu Nesjaskóla.
· Björn Ingi gerði að umtalsefni samning um flug til Hafnar. Bæjarstjóra falið að fara yfir málið með Vegagerðinni.
Fundi slitið kl.20:20


