Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 371
371. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 13. mars 2007 kl. 10:00.
Mætt: Reynir Arnarson, Árni Þorvaldsson, Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson.
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 89. fundur 26. febrúar 2007.
Greint frá því að fulltrúi Siglingastofnunar og Gáma- og tækjaleigunnar verði hér þann 14. mars.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar 66. fundur 26. febrúar 2007.
Vísað til starfsmanna að fá útreiknaðan kostnað vegna tillagna um refa- og minkaveiðar, sbr. 3. lið á dagskrá nefndarinnar.
Fundargerð samþykkt.
· Æskulýðs- og tómstundaráð 86. fundur 5. mars 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki 32. fundur 1. mars 2007.
Fundargerð samþykkt.
· Nefnd vegna 110 ára afmælis Hafnar og atvinnulífssýningar, 1. fundur 18. janúar 2007 og 2. fundur 7. mars 2007.
Björn Ingi benti á að vegna breytts tíma Humarhátíðar þurfi að auglýsa hana vel.
Fundargerðir samþykktar.
· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 741. fundur 23. febrúar 2007.
Til kynningar.
2. Náttúrustofa á Suðausturlandi
Farið yfir greinargerð um Náttúrustofu á Suðausturlandi, sameiginlegt verk Háskólaseturs, Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Skaftárhrepps. Hjalti lagði til að afgreiðslu málsins verði frestað um sinn og var það samþykkt.
3. Ósk um útgáfu vínveitingaleyfis fyrir veitingastofu í Þórbergssetri
Útgáfa leyfisins samþykkt.
4. Kosning fulltrúa á stofnfund Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.
Samþykkt að Hjalti Þór Vignisson sitji stofnfundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
5. Innsend erindi og tilkynningar
· Nýsköpunarkeppni grunnskólanema, bréf dags. 22. febrúar 2007, ósk um stuðning við verkefnið.
Samþykkt að vísa málinu til skólaskrifstofu. Minnt er á að verulegur launa- og ferðakostnaður hlýst af þátttöku sveitarfélaga á landsbyggðinni vegna Nýsköpunarkeppni grunnskólanema sem sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu sleppa að mestu við vegna staðsetningar keppninnar.
· Risør kommune,bréf dags. 30. janúar 2007, formlegt boð á vinabæjamót 31. maí -3. júní 2007 og ósk um tilkynningu um fjölda fulltrúa okkar.
Samþykkt að hvert framboð sendi einn fulltrúa á vinabæjarmótið. Einnig samþykkt að einn starfsmaður sveitarfélagsins fari á mótið.
· Félagsmálaráðuneytið, bréf dags. 28. febrúar 2007, uppgjör framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Ásta fór yfir upplýsingar frá Jöfnunarsjóði.
· Neytendastofa, tölvubréf dags. 2. mars 2007, skólamötuneyti/virðisaukaskattur.
Tekið fyrir undir liðnum önnur mál.
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 5. mars 2007, kynning á aðalnámskrá grunnskóla ? íslenska, náttúrufræði og umhverfismennt.
Vísað til skólanefndar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, bréf dags. 5. mars 2007, dagskrá.
Til kynningar.
· Félag leiðsögumanna með hreindýraveiðum, ályktun aðalfundar félagsins 25. febrúar 2007 um að komið verði upp 3 viðurkenndum skotsvæðum á Austurlandi.
Til kynningar.
· SSA, ódagsett bréf, skýrslan: Svona gerum við,leiðir að fjölmenningarlegu samfélagi á Austurlandi ? http://austur.is/images/stories/skjol/Svona_gerum_vid_SSA2007_WEB.pdf
Vísað til félagsmálaráðs.
6. Önnur mál
- Ákvörðun um lækkun á matarverði í leik- og grunnskólum. Samþykkt að lækka verð í mötuneytum í samræmi við tillögur, dagsettar 12. mars 2007. Björn Ingi sagðist vilja lækka mat um 6,1% í leikskólunum og Nesjaskóla sem er í samræmi við útreikninga Neytendastofu en mat frá Kaffihorninu í samræmi við fram komnar tillögur seljanda matarins. Fram kom að ekki var hækkun á gjaldskrá skólamötuneytanna um áramót 2006 ? 2007.
- Lögð fram gögn um áhrif á launagreiðslur sveitarfélagsins vegna nýgerðs samkomulags Launanefndar sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
- Framlag úr Varasjóði húsnæðismála vegna sölu á Víkurbraut 11 og 13 er um 16,3 millj. króna. Framlag vegna halla á kaupleigukerfi árið 2006 er rúmlega 4,5 millj.
- Björn Ingi spurði um mögulega skoðanakönnun á vegstæði yfir Fljótin í samræmi við samþykkta bókun á bæjarstjórnarfundi í febrúar. Hjalti sagði að samkvæmt upplýsingum frá Capacent Gallup væru á því ákveðnir annmarkar eins og staðan er í dag að framkvæma slíka könnun. Einnig rætt um möguleika á skoðanakönnun samhliða Alþingiskosningum 12. maí um sama mál.
Fundi slitið kl. 12:10


