Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 369
369. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss þriðjudaginn 27. febrúar 2007 kl. 10:00.
Mætt: Árni Þorvaldsson, Elín Magnúsdóttir, Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Árni setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Leitaði hann eftir athugasemdum við tillögu um breytingu á dagskrá fundarins þannig að stjórn sameinaðs grunnskóla verði tekin fyrir sem 7. liður. Var það samþykkt.
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 30. fundur 19. febrúar 2007.
Fram kom ánægja með störf Þekkingarnetsins og þátt þess í að afla fjarnám.
Drög að samþykkt um búfjárhald í Sveitarfélaginu Hornafirði, dags. 21. febrúar 2007 til kynningar.
Fundargerð samþykkt
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 74. fundur 14. febrúar 2007.
Fram kom að búast má við fréttum af lóðamálum frá Ullu Pedersen í þessari viku, bæjaráð telur afar mikilvægt að þessi mál vinnist fljótt og vel. Vinnu með hraðabreytingar innanbæjar var á sínum tíma vísað til vinnufundar í bæjarstjórn, Halldóra telur eðlilegt að byggingar- og skipulagnefnd komi með tillögur um málið.
Fundargerð samþykkt
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 88. fundur 9. febrúar 2007.
Tekið var undir þau sjónarmið hafnarstjórnar, sem fram koma í fundargerð, um kjör sjómanna á dæluskipi Gáma- og tækjaleigunnar.
Fundargerð samþykkt
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 79. fundur 21. febrúar 2007.
Halldóra Bergljót bendir á að bæjarráð og bæjarstjórn hefur ekki tekið þjónustusamninginn til formlegrar umræðu.
Fundargerð samþykkt
· Fundargerð 34. fundar Gjafa og minningarsjóðs Skjólgarðs.
Fundargerð samþykkt
· Félagsmálráð Hornafjarðar 159. fundur 13. febrúar 2007.
Fundargerð samþykkt
· Menningarmálanefnd Hornafjarðar 88. fundur 24. janúar 2007.
Elín fagnaði að verk Svavars Guðnasonar verði til sýnis á sérstakri sýningu, sbr. fundargerð. Þá ítrekaði hún að stofnanir sveitarfélagsins, svo sem skólar o.fl., verði nýttar til að sýna verk í eigu Menningarmiðstöðvar.
Fundargerð samþykkt
· Skólanefnd Hornafjarðar 90. fundur 22. febrúar 2007.
Fundargerð samþykkt
· Nefnd um íþróttamannvirki 31. fundur 19. febrúar 2007.
Haukur Ingi upplýsti hvernig staðan er varaðandi framkvæmdir við íþróttavöllinn. Rætt um verkefnastjóra / verkefnastjórn vegna byggingarframkvæmda.
Fundargerð samþykkt
· Heilbrigðisnefnd Austurlands 67. fundur 9. febrúar 2007, til kynningar
2. Þjónustusamningur um þjónustu við fatlaða – gögn höfð sér
Maren Sveinbjörnsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið og vék af fundi kl: 10:35. Stefán fór yfir samninginn og gerði grein fyrir meginþáttum hans. Bæjarráð samþykkir að vísa samningnum til bæjarstjórnar.
3. Ósk um landaskipti
Bæjarráð samþykkir umbeðin landskipti og vísar málinu til starfsmanna til úrlausnar.
4. Ósk um styrk
Bréf frá nemendum í félagsráðgjöf á 4. ári við HÍ dags. 12. febrúar sl. þar sem óskað er eftir styrk vegna útgáfu blaðs til að styrkja umrædda nemendur til að sækja alþjóðlega ráðstefnu um félagsráðgjöf sem haldin verður í Parma á Ítalíu. Styrkbeiðni hafnað.
5. Málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings
Bréf undirritað af Kjartani Hreinssyni dags. 14. febrúar 2007, fyrir hönd Hestamannafélagsins Hornfirðings, þar sem óskað er eftir að umsamdar greiðslur sveitarfélagsins til hestamannafélagsins vegna byggingar reiðhallar verði með þeim hætti að greiðslur fyrir árin 2006, 2007 og 2008 verði inntar af hendi á yfirstandandi ári. Bæjarráð samþykkir að greiðslur fyrir árin 2006 og 2007 verða inntar af hendi þegar framkvæmdir eru hafnar. Samþykkt með þeim fyrirvara að fyrir liggi endanleg fjármögnun framkvæmdarinnar, en ákvörðun tekin síðar varðandi framlag 2008. (Elín vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.)
Í bréfi Kjartans er einnig óskað eftir viðræðum við bæjarfélagið vegna afrennslis úr rotþró Nesjahverfis. Erindinu vísað til tækni- og umhverfissviðs.
6. Innsend erindi og til kynningar
· Samband ísl. sveitarfélaga, bréf dags. 8. febrúar 2007, XXI. landsþings sambandsins 23. mars n.k.
Samþykkt að eftirfarandi verði aðalfulltrúar á þinginu veði: Árni Rúnar Þorvaldsson og Reynir Arnarson. Samþykkt að varafulltrúar verði Halldóra B. Jónsdóttir og Elín Magnúsdóttir.
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 9. febrúar 2007, varðar aðalnámskrár grunnskóla í heimilisfræðum, íþróttum- líkams- og heilsurækt, kristinfræði, siðfræði, trúarbragðafræði og listgreinum.
Vísað til kynningar.
· Endurmenntun HÍ, Lífsgæði í búsetu, námstefna Öldrunarfræðafélags Íslands, 1. mars 2007.
Vísað til starfsmanna félagsþjónustu og HSSA.
· Samgönguráðuneytið, bréf dags. 16. febrúar 2007, tilkynning um móttöku bókunar um gögn undir Lónsheiði. Til Kynningar
· Samgöngunefnd Alþingis, bréf dags. 22. febrúar 2007, ósk um umsögn á þingsályktunartillögu um samgönguáætlun 2007-2010, 574. mál. http://www.althingi.is/altext/133/s/0852.html
Samþykkt að vísa umsögn til starfsmanna sem vinni umsögn í samráði við bæjarráð.
7. Stjórn sameinaðs grunnskóla, sbr. samþykkt á breyttri dagskrá
Á 90. fundi skólanefndar var eftirfarandi bókun samþykkt: „Menntamálaráðherra heimilar Sveitarfélaginu Hornafirði með vísan til 53. gr. laga um grunnskóla nr. 66/1995 að gera tilraun með nýtt stjórnunarform í sameinuðum grunnskóla á Hornafirði, til næstu þriggja ára frá skólaárinu 2007-2008 að telja. Sveitarstjórn Hornafjarðar fær því undanþágu frá ákvæðum laga og reglugerða um fyrirkomulag stjórnunar grunnskóla. Menntamálaráðuneytið setur það skilyrði fyrir tilraun með nýtt stjórnunarform að ávallt sé ljóst gagnvart öllum aðilum hver sé forsvarsmaður og fyrsti aðili skólans, þ.m.t. ráðuneytinu og stofnunum skólakerfisins.” Með hliðsjón af framangreindri samþykkt menntamálaráðherra samþykkir skólanefnd að við sameinaðan grunnskóla starfi þrír skólastjórar og tveir deildarstjórar. Jafnframt er samþykkt að verkefni sérkennslufulltrúa við skólaskrifstofu færist yfir til skólans og falli undir starfssvið annars tveggja deildarstjóra. Í ljósi fyrri samþykkta er áréttað að verði breytingar á hópi stjórnenda á því tímabili sem heimild menntamálaráðherra nær til muni fyrirkomulag skólastjórnunar verða endurskoðað. Í lok þessa þriggja ára tímabils fari fram faglegt og fjárhagslegt mat á hvernig til hafi tekist og í ljósi þess tekin ákvörðun um fyrirkomulag stjórnunar til lengri tíma litið.
Halldóra Bergljót bað um útreikninga sem varða málið og er sammála Sigríði Kristinsdóttur varðandi deildarstjóra nr. tvö. Guðrún og Elín telja að góð sátt hafi náðst um málið og eru samþykkar tillögu skólanefandar.
Bæjarráð samþykkir framangreinda tillögu skólanefndar um stjórn sameinaðs grunnskóla með og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarstjórn. (Árni vék af fundi undir þessum dagskrárlið og Guðrún Ingimundardóttir tók sæti hans.)
8. Önnur mál
Staðsetning björgunarþyrlu á Hornafjarðarflugvelli.
Halldóra Bergljót er með tillögu að eftirfarnandi bókun:
Bæjarráð Hornafjarðar vill benda á mikilvægi þess að björgunarþyrla sé staðsett á Hornafirði. Hornafjörður er landfræðilega einangraður og langt í aðra öryggisþjónustu. Hornafjarðarflugvöllur er mikilvægur hlekkur í björgunarstarfi í landinu. Þar eru lendingarskilyrði góð og veðurskilyrði ólík því sem er á suðvesturhorninu. Flugvöllurinn gegnir mikilvægu hlutverki í björgunaraðgerðum ef skip lenda í vandræðum á leið sinni til og frá Evrópu enda fjölfarnar siglingaleiðir meðfram strönd Suðausturlands og gjöful fiskimið. Völlurinn hefur einnig verið notaður í björgunaraðgerðum á Austurlandi. Ferjuflugvélar hafa oft viðkomu á Hornafirði og geta má þess að nýlega var fyrsti viðkomustaður nýrrar björgunarþyrlu Íslendinga á Hornafjarðarflugvelli.
Frá Hornafirði er einnig stutt í fjölfarna ferðamannastaði, t.d. á Vatnajökli og ætla má að á næstu árum muni verða mikil aukning ferðamanna á suðausturhorni landsins í tengslum við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Með tilliti til þess er mikilvægt að öryggis- og björgunarmál á svæðinu séu viðunandi.Rætt um samninga um Mánavöll. Samþykkt að taka fyrir sem sérstakan dagskrárlið á næsta fundi bæjarráðs.
Rætt um samninga um Mánavöll. Samþykkt að taka fyrir sem sérstakan dagskrárlið á næsta fundi bæjarráðs.
Haukur Ingi upplýsti þá vinnu sem farið hefur fram varðandi umhverfismál s.s. endurvinnslu, sorpurðun og flokkun sorps.
Fundi slitið kl. 12:55


